Heimsmynd - 01.04.1990, Blaðsíða 47
eimurinn fylgdist agn-
dofa með þegar Karl
prins gekk að eiga
sakleysislega unga
fóstru með konung-
legri viðhöfn árið
1981. Hafði hann þá
um árabil verið nefnd-
ur eftirsóttasti pipar-
sveinn heims.
Díana Spencer upp-
fyllti öll þau skilyrði
sem enska kóngafjöl-
skyldan gat vænst í
sambandi við kvonfang krónprinsins.
Þetta er engin venjuleg fjölskylda eins og
öllum er ljóst og þegar svo mikið er í
húfi að velja verðandi drottningu breska
heimsveldisins er nærtækara að lýsa
þessu eins og fyrirtæki en fjölskyldu.
Díana var af góðu fólki, hún hafði útlitið
með sér og hafði hlotið menntun í
kvennaskóla þannig að það var lítil hætta
á að orðstír hennar hefði beðið hnekki.
Brúðkaup þeirra var eins og Holly-
wooddraumur þar sem unga, fagra og
saklausa stúlkan gekk að eiga prinsinn
eftirsótta. En ekki leið á löngu áður en
sögusagnir fóru á kreik þar sem þau áttu
að búa í aðskildum vistarverum hallar-
innar. Öll umfjöllunin um hjónaband
krónprinsessunnar og arftaka krúnunnar
hefur leitt hugann að þeirri tvöfeldni
sem virðist ráða ríkjum innan ensku kon-
ungsfjölskyldunnar og meðal enska að-
alsins almennt. Að yfirborðið sé slétt og
fellt skiptir öllu.
Líf þessara kvenna virðist nær draumi
en veruleika í hugum margra sem fylgj-
ast með þeim. Þær eru vellauðugar, stór-
glæsilegar og á ferð og flugi um víða ver-
öld. Hver vildi ekki fá að vera prinsessan
af Wales eða hertogaynjan af York um
vikuskeið? Eða hvað?
Hugo Vickers, breskur ættfræðingur
sem hefur fengist við ævisagnaritun, seg-
ir að nútímasiðferði, sérstaklega meðal
kóngafólks, sé í raun afar gamaldags og
konur séu fyrst og fremst í því hlutverki
að vera mæður erfingja, sérstaklega
sona.
Karlmenn bresku konungsfjölskyld-
unnar komast upp með ýmislegt og
drottningin lítur í aðra átt. Almenningur
virðist einnig horfa á athæfi þeirra með
öðrum augum en gert væri ef um konu
væri að ræða. Fjölmiðlar gefa pipar-
sveinunum og athæfi þeirra góðlátlegan
gaum. Það er hluti af ímyndinni að njóta
kvenhylli meira að segja fyrir þá kvæntu
líka svo fremi að þeir fari leynt með
framhjáhlaup sín.
Andrew prins og núverandi hertogi af
York fór sínu fram í kvennamálum án
þess að vera beittur miklum þrýstingi.
Áður en hann kvæntist Söru Ferguson
eltu blaðaljósmyndarar hann á röndum
og blöð birtu myndir af Andrew í fylgd
glæsilegra ljósmyndafyrirsæta, dans-
meyja og leikkvenna. Hann var í tygjum
við átján ára stúlku að nafni Carolyn
Seaward sem var kjörin ungfrú Bretland
en frægast varð samband hans við leik-
konuna Koo Stark.
Fengi Andrew áhuga á einhverri konu
var grennslast fyrir um hana þar til eitt-
hvað óhreint kom á daginn sem sýndi að
hún var ekki verðug hans. Prinsinn sjálf-
ur var aldrei gagnrýndur þótt í ljós kæmi
að ástkona hans hefði leikið í klám-
myndum eða fengist við annað ósæmi-
legt athæfi.
Þessi tvískinnungur sem ríkir í ólíkum
viðhorfum til karlmanna bresku kon-
ungsfjölskyldunnar annars vegar og
kvennanna hins vegar kemur fram í af-
stöðunni til Önnu prinsessu og fyrrver-
andi eiginmanns hennar Mark Philips.
Áður en hjónaband þeirra beið endan-
legt skipbrot hafði öll breska þjóðin vit-
að að ekki var allt með felldu á þeim bæ.
Höfuðsmaðurinn Mark Philips var aldrei
heima enda afar fáar ljósmyndir til af
honum með eiginkonu og börnum. Þeg-
ar þau skildu að borði og sæng birtust
myndir af honum með Pamelu nokkuri
Bordes, einni af fjölmörgum lagskonum
hans. Fulltrúum Buckinghamhallar tókst
að koma í veg fyrir fleiri myndbirtingar
af Philips og fögrum konum án þess að
mikill hávaði yrði út af því. En Anna
prinsessa fékk hins vegar fyrir ferðina
þegar henni varð það á að opna ástar-
bréf sem henni bárust frá myndarlegum
og ókvæntum sjóliðsforingja. Blöðin töl-
uðu um að prinsessan hefði dregið hann
á tálar þótt allir vissu að hann var ritari
bréfanna en ekki hún.
Aftur skín tvískinnungurinn í gegn
þegar Michael prins af Kent fer út að
borða með gömlum kærustum án þess að
nokkur geri veður út af því en allt ætlar
vitlaust að verða þegar eiginkona hans,
prinsessan af Kent, eyðir degi með
bandarískum olíuauðjöfri og vini að
nafni Thomas Hunt. Niðurstaðan sem
breskur greinarhöfundur dregur af þessu
er sú að karlmönnum konungsfjölskyld-
unnar leyfist að leika lausum hala þegar
það hentar þeim en kvenfólkið þarf að
virðast fullkomið.
Enginn meðlimur bresku kóngafjöl-
Fyrstu sex mánuði
ársins 1989____________
þurfti Díana prinsessa
að sinna níutíu og átta
opinberum athöfnum.
Frá því að hún giftist
Karli prins árið 1981
hefur lífi hennar verið
líkt við þróun
banvæns sjúkdóms.
Fyrst kom áfallið, því
næst afneitunin, þá
reiðin, síðan leiðinn,
loks uppreisnin og nú
hefur hún sætt sig við
hlutskipti sitt.