Heimsmynd - 01.04.1990, Blaðsíða 65
Áslaug Zöega
Börn, barnabörn
Hallgrímur Benediktsson
við það tækifæri
þegar hún skýrði
Dettifoss.
og tengdabörn Geirs Zöega
ásamt systrum sínum
Guðrúnu, Elísabetu og
Snorru.
Guðrún Björnsdóttir
með börnum sínum. Hallgrímur
stendur fyrir aftan hana.
Pétursson, síðar kenndur við Álafoss. En þetta var bara byrj-
unin. Um sumarið átti að keppa á Þingvöllum að viðstöddum
Friðriki VIII. Danakonungi og fleira stórmenni. Norður á
Akureyri strengdi ofurhuginn Jóhannes Jósefsson, síðar
kenndur við Hótel Borg, þess heit að sigra sunnanmenn í
glímunni eða liggja dauður ella. Væntanleg konungsglíma
varð þess vegna á allra vörum og menn biðu spenntir úrslita.
Er þess skemmst að minnast að Hallgrímur varð sigurvegari
glímunnar við mikil húrrahróp frá áhorf-
endum og var síðan krýndur lárviðar-
sveig og borinn hátt af fjórum mönnum
sem sigurvegari af leiksviðinu en Jó-
hannes Jósefsson mátti éta ofan í sig
stóru orðin. Hallgrímur var orðinn þjóð-
kunnur og þjóðhetja.
Á næstu árum var Hallgrímur í
fremstu röð íþróttamanna þjóðarinnar
og fór bæði á Ólympíuleikana í London
1908 og Stokkhólmi 1912 og sýndi þar
glímu ásamt félögum sínum. Vann hann
til verðlauna í Stokkhólmi. Sérstakt orð
fór af honum fyrir prúðmennsku og
drengilega framkomu. Hann tók mikinn
þátt í félagsstörfum íþróttahreyfingarinn-
ar, var formaður Ármanns 1907 til 1914,
átti um tíma sæti í stjórn IR og var lengi í
stjórn ÍSÍ. Auk glímunnar var hann lið-
tækur í öðrum íþróttagreinum, svo sem
fimleikum og sundi.
Mörgum þótti Hallgrímur vera á
grænni grein. Hann var dýrkaður sem
íþróttamaður og í góðri stöðu hjá Edin-
borgarverslun. Hann hafði þar 100 krón-
ur í árslaun sem þótti geypihátt kaup fyr-
ir verslunarmann í þann tíð. Það þótti
því óðs manns æði þegar hann sagði upp
stöðu sinni árið 1911 til þess að hefja eig-
in heildverslun. Þá voru fyrir aðeins tvær
smáar innlendar heildverslanir, annars
vegar Ó. Johnson & Kaaber, hins vegar Heildverslun Garðars
Gíslasonar. Mestallur innflutningur var þá enn í höndum
danskra umboðsmanna. Flestir íslenskir kaupmenn voru í
skuld við þá, fengu vörur fyrir þeirra milligöngu og urðu að
senda þeim allar íslenskar afurðir upp í viðskiptin.
H. BEN. & CO.
Sjálfstraust íþróttagarpsins, Hallgríms Benediktssonar, var í
góðu lagi og hann réðst nú í að sigla utan til að koma sér upp
samböndum. Fyrsta erlenda fyrirtækið, sem hann aflaði sér
umboðs fyrir, var Vacuum Oil Co. og það átti eftir að mala
honum gull. Vélvæðing var hafin af fullum krafti og stóraukin
þörf á olíum fyrir báta, skip og bíla.
Fyrri heimsstyrjöldin gerbreytti öllum aðstæðum á íslandi.
Ekki var unnt að flytja vörur frá Danmörku og meginlandi
Evrópu og varð því að afla nýrra viðskiptasambanda, einkum
í Bandaríkjunum, ef ekki ætti að verða hungursneyð á Islandi.
Og nú var tækifærið fyrir djarfa og at-
hafnasama kaupsýslumenn á íslandi.
Þeir gripu það og komu margir fótum
undir öflug innlend innflutningsfyrirtæki
í Reykjavík. Einn af þeim var Hallgrím-
ur Benediktsson. Hann sigldi til Amer-
íku og aflaði sér viðskiptasambanda sem
gerðu hann að auðmanni á skömmum
tíma. Seinna sagði hann að sér fyndist
merkilegast hversu fljótt tókst að breyta
öllum verslunarháttum og viðskiptum á
þessum árum og gera verslunina alinn-
lenda.
Fyrirtækið H. Benediktsson & co. var
eftir stríð orðið eitt umsvifamesta versl-
unarfyrirtæki landsins. Það einbeitti sér
að innflutningi á mikilvægum vörum fyr-
ir togaraflotann og byggingariðnaðinn.
Meðal þeirra voru salt, kol, vélar, sem-
ent og byggingarvörur en einnig flutti
það inn matvöru í stórum stíl, svo sem
hveiti og aðrar nýlenduvörur. Það hafði
umboð fyrir Marconifélagið og flutti inn
loftskeytatæki fyrir skip og tók að sér að
reisa útvarpsstöðina á Vatnsenda 1930.
Þá hafði fyrirtækið aðalumboð fyrir Bur-
meister og Wain í Danmörku en þar
voru smíðuð flest skip Eimskipafélags Is-
lands um langan aldur. Hallgrímur
Benediktsson hafði mikil ítök í Eim-
skipafélaginu og var stjórnarformaður
þess um tíma. Einnig flutti H. Ben. & Co. út íslenskar afurð-
ir.
Hallgrímur forstjóri tók sér aðstoðarmann, Hallgrím A.
Tulinius, árið 1913 og gerði hann að meðeiganda 1921. Sá var
sonur Axels Tuliniusar, fyrsta forseta ÍSÍ, og frændi margra
þekktra manna í Reykjavík, svo sem Sveins Björnssonar, síð-
ar forseta íslands (sjá HEIMSMYND, des 1989). Hallgrímur
A. Tulinius dró sig út úr fyrirtækinu 1939 en milli ætta þeirra
Systur Hallgríms,
Snorra og Guðrún.
HEIMSMYND 65