Heimsmynd - 01.04.1990, Page 58

Heimsmynd - 01.04.1990, Page 58
Með pabba, Páli ísólfssyni. Á fimmtugsafmæli Arnar 1971. Þuríður og Örn við sumarbústaðinn á Stokkseyri. mundssyni, aðalbókara hjá Olíuverslun Islands, og þau giftust þegar Þuríður var átján ára. Stuttu seinna eignuðust þau fyrsta barnið og hefðu eflaust margar konur látið þar við sitja og lagt drauma um frekara nám á hilluna. En ekki hún Þuríður. Sautján ára gömul hafði hún byrjað að syngja opinberlega og tuttugu og þriggja ára var hún orðin þekkt söng- kona um allt land. Þá var að hrökkva eða stökkva og hún stökk. Hélt til Ítalíu í söngnám burt frá eiginmanni og barni þrátt fyrir að slíkt þætti naumast sæm- andi á þeim árum. „Það voru engir pen- ingar til í þá daga,“ segir hún, „engin námslán og ekkert um það að ræða að Örn kæmi með mér. Hann varð að vera heima og vinna fyrir okkur.“ Hún vill sem minnst tala um námsárin og söng- ferilinn: „Elskan mín, það er búið að skrifa heila bók um mig og þetta vita all- ir sem kæra sig um að vita það,“ segir hún ákveðin og snýr sér að því að spjalla við páfagaukinn Tobías, sem allan tímann hefur reynt að ná athygli hennar. Bókin sem hún er að vísa til er ævisagan hennar Líf mitt og gleði sem kom út í skrásetningu Jónínu Mikaelsdóttur 1986. „Tölum heldur um Örn,“ segir hún og verður dreymin á svipinn, „það hefur verið skrifað svo mikið um mig, en nán- ast ekkert um hann.“ Það eru þrjú ár síðan Örn dó, eftir skamma sjúkdóms- legu og Þuríður segir söknuðinn ennþá jafnsáran: „Veistu það að síðan hann dó þá kann ég ekki að lifa. Eg kann bara að vinna. Allt sem áður veitti mér ánægju er núna lítils virði því hann er ekki leng- ur til að njóta þess með mér. Það er eins og helmingnum af mér hafi verið kippt burt og það getur aldrei neinn komið í staðinn. Hann var svo skemmtilegur, greindur og fallegur og við vorum svo samrýmd að það var alveg ótrúlegt. Auðvitað áttum við okkar krísur eins og önnur hjón. Eg fór til dæmis fjórum sinnum til Italíu til langdvalar og það reynir auðvitað á hjónabandið og á tíma- bili vorum við skilin. En okkur tókst að vinna okkur í gegnum alla erfiðleika saman og eftir að það hefur tekist eru hjónabönd orðin svo sterk að manni finnst óhugsandi að þau geti slitnað. Mér datt heldur aldrei í hug að Örn gæti dáið á undan mér. Þessi sterki, lífsglaði mað- ur. En þótt það sé erfitt að verða ekkja á ég þó allar góðu minningarnar óskemmdar og börnin mín eru yndislegt fólk og ég á sex dásamleg barnabörn svo það er kannski engin ástæða fyrir mig að kvarta. Margar af vinkonum mínum og frænkum hafa lent í því að maðurinn þeirra skildi við þær vegna annarrar konu eftir tuttugu til þrjátíu ára hjóna- band og það er miklu sárara. Þeim finnst sér vera hafnað og að allt það góða sem var í hjónabandinu sé eyðilagt." Margir eiginmenn eiga erfitt með að kyngja því að konan þeirra sé meira í sviðsljósinu en þeir, en Þuríður segir Örn aldrei hafa fundið fyrir því: „Hann gerði grín að þessu og sagði brandara um það, en hann hafði aldrei neitt á móti mínum frama og studdi mig á jákvæðan hátt í öllu sem ég tók mér fyrir hendur. Móðir hans, Laufey Vilhjálmsdóttir, var mikil athafnakona og hann var alinn upp við það að konur ættu að sinna sínum störfum ekkert síður en karlmenn. Lauf- ey hvatti mig líka alltaf til að halda mínu striki, sem var mjög óvanalegt af tengda- móður á þeim tíma. Ég hef verið ótrú- lega heppin í lífinu og hef fengið stóran skammt af mannlegri gæfu. Og fyrir það er ég þakklát þótt mér finnist vissulega á köflum erfitt að vera ein.“ au Örn eignuðust þrjú börn, Kristínu, Guðmund Pál og Laufeyju, og voru með í einu fyrsta byggingarfélaginu í Reykjavík, byggingarfélagi starfsmanna Olíuverslunar ís- lands sem byggði fyrstu blokk- ina við Kleppsveginn: „Mín reynsla af húsbyggingum er eflaust í samræmi við reynslu flestra jafnaldra minna,“ segir Þuríður, „Við hjónin leigðum í kjallara í níu ár en réðumst þá í að byggja í samvinnu við starfsfélaga mannsins míns. Ibúðin okkar í blokkinni var meiriháttar áfangi í lífinu. Allir starfsmennirnir lögðu mikla vinnu í hús- bygginguna og margir fluttu inn á ber steingólfin. Hurðir og skápar komu eftir hendinni og þótti ekki tiltökumál. Fyrir öllu var að vera komin í eigin íbúð. í dag er það til að ungt fólk hefji sambúð í eig- in húsnæði, gjarnan nýju og fullkláruðu. Slíkt var nánast óþekkt jregar ég var ung nema hjá þeim örfáu Islendingum sem áttu einhverja peninga. Það voru nefni- lega flestallir fátækir, að minnsta kosti miðað við nútímakröfur. Ég segi þetta vegna þess að fólk er stundum að koma fram í fjölmiðlum og útmála fátækt æskuheimila sinna eins og slíkt hafi verið eitthvert einsdæmi. Fram til 1940 var fá- tækt fremur regla en undantekning á ís- landi. Húsnæðiskaup hjá minni kynslóð voru eins og nú eins konar íslensk her- skylda sem flestir vörðu manndómsárum sínum í. Því fer fjarri að við eignuðumst þau heimili, sem við sitjum í núna þegar aldurinn færist yfir, fyrirhafnarlaust eins og þessir gulldrengir sem nú stjórna þjóðfélaginu virðast álíta.“ A síðasta ári reis Þuríður upp ásamt nokkrum öðrum konum og mótmælti harðlega álagningu skattsins sem gengur undir nafninu ekknaskattur. Konurnar boðuðu til borgarafundar um málið og var Þuríður í forsvari. Hún hefur síðan „Við ætlum ekki að taka því þegjandi að þessi kynslóð dekurbarna hreki okkur á efri árum út af heimilum okkar.“ 58 HEIMSMYND

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.