Heimsmynd - 01.04.1990, Page 87
Tvískinnungar...
framhald af bls. 50
ungsfjölskyldunnar, segir að Diana og
Fergie hafi mikilvægu hlutverki að gegna
þótt það sé í gamaldags skilningi. „Karl-
mennirnir voru og eru í aðalhlutverkum
en þær styðja við bakið á þeim."
Æ fleiri Bretar eru þeirrar skoðunar
að þessar ungu konur hafi ekki aðeins
breytt ímynd konungsfjölskyldunnar út á
við með glæsimennsku sinni heldur einn-
ig fært konungsfjölskylduna aðeins nær
nútímanum. Báðar þessar ungu konur
voru álitnar æskileg kvonföng en það
hefðu þær ekki verið í upphafi þessarar
aldar. Fyrir áttatíu árum máttu prinsar
aðeins giftast prinsessum, enda er allt
kóngafólk Evrópu meira og minna ná-
skylt. Að mati breskra fjölmiðla hafa
miklar breytingar átt sér stað í viðhorf-
um bresku kóngafjölskyldunnar og þær
hafa gerst með ógnarhraða. Elísabet
drottning og Margrét systir hennar fengu
allt öðruvísi uppeldi en þær hafa veitt
sínum eigin börnum. Sjálfar voru þær
aldar upp af barnfóstru og hlutu einka-
kennslu án nokkurs samneytis við önnur
börn. Barnabörn Elísabetar, þar á meðal
verðandi arftaki krúnunnar Vilhjálmur
prins, ganga í barnaskóla ásamt öðrum
yfirstéttarbörnum. Synir Díönu og Karls
voru einnig fyrstu börnin í þessari fjöl-
skyldu sem fæddust á sjúkrahúsi. Fergie
fylgdi í kjölfarið þegar hún ól frumburð
sinn.
Fyrir nokkrum árum vöktu Diana og
Fergie kátínu pressunnar þegar þær
dulbjuggu sig sem lögreglukonur og óðu
inn í piparsveinaveislu sem Andrew
prins hélt á Annabel’s, einum fínasta
næturklúbbi borgarinnar. Slíkt athæfi af
hálfu núverandi drottningar og systur
hennar Margrétar hefði þótt óhugsandi á
sínum tíma.
Engu að síður hefur Díana prinsessa
og verðandi drottning unnið hug og
hjörtu Breta sem annarra. Flún er ein
tryggasta réttlæting fyrir áframhaldi
bresku krúnunnar að mati margra. Hún
er eitt vinsælasta myndefni blaðaljós-
myndara hvar sem hún kemur og banda-
rísk blöð og tímarit láta ekkert tækifæri
ónotað til að fjalla um hana. Tímaritið
Vanity Fair birti nýlega um hana eina af
sínum mörgu greinum og þar er hún
sögð ný þjóðhetja Breta: Heilög Díana.
Greinarhöfundurinn, Joan Juliet, segir
að Díana sé gædd þeim einstaka eigin-
leika að hrífa fólk. Fólk hafi orð á því að
þegar hún heilsi því sé einbeiting hennar
gagnvart viðkomandi fullkomin, hvort
sem í hlut á barn eða gamalmenni, eitur-
lyfjaneytandi eða auðkýfingsfrú. Juliet
lýsir henni sem hærri og grennri en
nokkurri tískusýningarstúlku auk þess
sem hún þykir ein best klædda kona
heims.
Juliet líkir lífi Díönu Spencer og að-
lögun að hlutverki sínu innan kóngafjöl-
skyldunnar við lokastig banvæns sjúk-
dóms. Fyrsta stigið hafi verið áfall, þá
tók við afneitun, síðan reiði, þá leiði, því
næst uppreisn og löks hefur hún sætt sig
við hlutskipti sitt. Segir hún það undrun
sæta að þessa unga Lundúnadama skuli
hafa sigrast á þeim erfiðleikum sem fylgi
þvf óhjákvæmilega að giftast inn í nítj-
ándu aldar fjölskyldu sem hafi það eitt
að markmiði að varðveita krúnuna og
þær gamaldags hefðir sem henni tengj-
ast. Eiginmanni hennar, Karli prins, er
lýst sem hálfgerðum sérvitringi sem hafi
dálæti á plöntum og varðveislu gamalla
bygginga en um leið sé hann eigingjarn,
óöruggur og stefnulaus.
Hjónaband þeirra hefur verið stöðugt
í deiglunni en flestir virðast búnir að fá
leið á vangaveltum um hvort þau séu
mikið aðskilin. Sú staðreynd að hann er
einn í fríi á hverju hausti í Skotlandi er
fyrir flestum Bretum eins sjálfsögð og að
það styttir upp eftir skúrina. Margir
benda á það að tólf ára aldursmunur
þeirra geri það að verkum að þau eigi
fátt sameiginlegt utan þess hlutskiptis að
deila hásætunum í framtíðinni.
Pað er tvennt sem hin verðandi
drottning hefur lært að búa við: Stöðuga
öryggisvörslu vegna ógnana frá írska lýð-
veldishernum og stanslausa athygli fjöl-
miðla. Óskráðar reglur sem allir vinir
hennar þurfa að sætta sig við er að tala
SNIÐUGAR FERMIHGAGJAFIR
KRINGLUNNI S: 689720
i s V « 1 :| nltm --
Íi *
1 //
HEIMSMYND 87