Heimsmynd - 01.04.1990, Side 38

Heimsmynd - 01.04.1990, Side 38
Hugmyndir Gorbatséffs hafa vakið hrifningaræði á Vesturlöndum, sem stundum hefur verið nefnt Gorbomanía eða Gor- basmi. Kastró er hins veg- ar ekki jafnhrifinn af þeim og Francois Mitter- and, Helmut Kohl og Margrét Thatcher. I des- ember 1988 tóku þeir Ronald Reagan og Geor- ge Bush á móti honum í New York. í desember 1989 ræddu þeir páfinn um stjórnmál og siðferði og altæk mannleg siðferð- isgildi. víkka. Perestrojka byrjaði sem kjörorð fyrir efnahagslega umbyltingu sem átti að gera út af við miðstýrt forræðishag- kerfi Stalínstímans. Nú notar Gorbatséff það sem heiti á allsherjar sálrænni með- ferð fyrir þegna ríkis síns. Skilgreiningin breytist í takt við þær breytingar sem gerast á honum sjálfum. I Mílanó sagði hann mannfjöldanum sem þyrptist kringum þau hjónin: „Á tímum ofsalegra umbreytinga verðum við að halda trú á sjálfsöryggi okkar og huga að hinum jákvæðu niðurstöðum og ákveða hvaða múrar skuli rifnir niður og hverjir byggðir í staðinn.“ Röddin róleg og traustvekjandi, miðjan í hringiðu at- burðanna. Sýnilega hrærður af ofsaleg- um ástartjáningum mannfjöldans að ít- ölskum hætti, bætti hann við: „Eg er sjálfur af suðlægum slóðum og kann virkilega að meta skaphita og tilfinning- ar í fólki. En það er aðeins hluti skýring- arinnar. Fólk krefst breytinga." Svo end- urtók hann til áherslu: “Fólk krefst breytinga alls staðar . . . það heimtar að stjórnmálaforingjar þess láti hendur standa fram úr ermum.“ aisa vakti athygli með því að mæta í rauðum kjól í stað hins skylduga og hefðbundna svarta klæðnaðar sem kon- ur ganga í fyrir páf- ann. Og ólíkt lands- mönnum sínum sem ævinlega kynna sig á pólitískan hátt frem- ur en menningarleg- an með því að kenna sig við Sovétríkin, sagði Raisa: „Ég er Raisa Maximovna frá Rússlandi. “ Samlífi Mikhails Sergeyevitsj og Raisu Maximovnu er með sérstökum hætti. Með öllu, sem þau segja og gera, sýna þau að þau eru leiðtogateymi nýrra tíma, að loknu köldu stríði og yfirvofandi kjarnorkumartröð. Á leiðtogafundinum í Washington sat Raisa fund með helstu embættismönnunum og sat í tveggja manna sófa við hlið Anatoly Dobrynins meðan Gorbatséff talaði við George Shultz. Og í Bonn í fyrrahaust sat hún uppi með Gorbatséff og sérfræðingalið- inu til klukkan tvö um nóttina, spurði spurninga og skaut inn athugasemdum meðan þeir fóru í gegnum árangurinn af tímamótaheimsókn þeirra til Vestur- Þýskalands. Bróðir Gorbatséffs sagði blaðamönnum í Moskvu einu sinni, að Raisa væri leynivopnið, sem hefði knúið Mikhail til valda. Hvort sem það er satt eða ekki þá eru þau samstiga í fram- göngu sinni, þrátt fyrir þær eitruðu til- finningar sem margir Rússar veita útrás þegar þeir fást til að ræða sína þjóðhöfð- ingjafrú og vestræna hætti hennar.

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.