Heimsmynd - 01.04.1990, Síða 76

Heimsmynd - 01.04.1990, Síða 76
við miklar vinsældir á Broad- way og voru síðar kvikmynd- uð. A stríðsárunum varð hún fulltrúadeildarþingmaður fyr- ir Connecticut og áhrifamikil innan Repúblíkanaflokksins. Eisenhover forseti skipaði hana sendiherra 1953 en hún lét af því starfi þremur árum seinna vegna heilsubrests. Sem ritstjóri varð hún þekkt fyrir stundum háðug- leg skrif sín um þá ríku og frægu. Hún missti einkadótt- ur sína Ann í bílslysi árið 1944 og náði sér aldrei eftir þann missi. Dóttir hennar var við nám í Stanfordhá- skóla þegar slysið varð en í uppeldi hennar hafði Clare Boothe Luce verið störfum hlaðin á öðrum vígstöðvum. Sektarkenndin fylgdi henni alla ævi og á efri árum sneri hún til kaþólskrar trúar. Hjónaband hennar og Henry Luce var ekki gott og hann leitaði á náðir annarra kvenna. í ítarlegri úttekt um Clare Boothe Luce í gamla blaðinu hennar, Vanity Fair sem var endurvakið árið 1983, segir að þrátt fyrir erf- iðleika í hjónabandinu hafi Clare Boothe og Henry Luce gengið vel að starfa saman að pólitískum hugðarefnum sín- um, sérstaklega á efri árum. Henry Luce hætti sem rit- stjóri á Time árið 1964 og lést þremur árum síðar. Clare Boothe Luce fékk heilaæxli 84 ára gömul og lést árið 1987. Mannfræðingurinn mikli. Einn virtasti mann- fræðingur 20. aldar- innar, Bronislaw Maiinowski fæddist í Kraká í Póllandi 7. apríl 1884. Hann er talinn upphafsmaður fé- lagsfræðilegrar mannfræði og er sérstaklega þekktur fyrir rannsóknir sínar á þjóðum Eyjaálfu, Astralíu, Melenes- íu, Nýja Sjálands, Míkrónes- íu og Pólýnesíu. Faðir hans var prófessor við háskólann í Kraká og móðir hans var af efnuðum og menntuðum landeigend- um. Hann var strax heilsu- laus sem barn og fylgdi það honum alla ævi. Hann lauk doktorsprófi í heimspeki 1908 með framúrskarandi árangri og tók efnafræði og stærð- fræði sem aukagreinar. Eftir það fór hann til náms við London School of Econom- ics en þar var nýhafin kennsla í mannfræði. Hann vakti athygli fyrir skrif sín um frumbyggja Astralíu og nokkrum árum síðar hófst eiginlegt lífsstarf hans þegar hann fór til Eyjaálfu. Um líkt STRÍÐ GEGN ÖLDRUN Frá örófi alda hafa menn þráð að finna æskubrunninn. Tímaritið Newsweek greindi frá því nýlega að þann brunn væri líkast til að finna hið innra með okkur, í frumum og genum líkamans. Sú spurning sem vísindamenn velta fyrir sér nú er ekki hvort hægt sé að fjölga æviárum umfram það sem nú þekkist heldur hvernig megi auðvelda fólki að búa við betri heilsu á efri árum. Til að ná þessum árangri hafa vísinda- menn gefið fólki sérstök lyf sem eiga að snúa rás dagatalsins við með fikti við genin í þeirri von að seinka öldrun. Aðr- ir vísindamenn rannsaka áhrif viðhorfs, mataræðis og hreyfingar á öldrunarferil- inn og eru flestir sammála um að þessir þættir auk heppni hafi sín áhrif. Kenningum um öldrun má skipta í tvo flokka. Önnur kenningin er sú að þær breytingar sem verði á líkamanum með árunum séu óhjákvæmilegur fylgifiskur lífsins. DNA, erfðagenið, geri stundum mistök sem í tímans rás valdi því að líf- færi grotna niður. Hin kenningin er sú að öldrun sé skráð í genin rétt eins og kynþroski. Fyrir þessu öllu eru sannanir. Ólíkar dýrategundir hafa ákveðna lífs- lengd. Fílar lifa að meðaltali í 35 ár en mýs í tvö ár og eineggja tvíburar með sams konar gen eru líklegir til að lifa jafnlengi. Öldrun er samkvæmt þessu skráð í genin en utanaðkomandi áhrif spila einnig stórt hlutverk. Samspil gena og umhverfisþátta er raunverulega það sem skiptir máli í þessum rannsóknum. Öldrun er óhjákvæmileg þar sem sér- hver fruma er dauðleg og eldri frumur skipta sér mun sjaldnar en yngri frumur. Hver fruma skiptir sér um fimmtíu sinn- um þar til hún deyr. Blóðsykurinn kann að vera sökudólgur í þessu efni en hann myndar prótein inni í og á milli frum- anna sem loðir saman eins og togleður. Þessi viðbrögð kallast á ensku cross-link- Markmiðið er ekki að fjölga æviárunum heldur að lífga upp á síðustu árin. ing og kunna að útskýra öldrun að miklu leyti. Sykursjúkir sem hafa meira blóð- sykurmagn en aðrir eldast einnig hraðar en það að draga úr sykurneyslu kemur ekki í veg fyrir þessa þróun. Þegar við eldumst ryðgum við. Frumur eru óvarð- ar gagnvart ýmsum tegundum af súrefni og öðrum sindurefnum, efnahópum sem hafa óparaðar rafeindir og eru því hvarf- gjarnir. Þessi sindurefni vinna á frumun- um og nýjar rannsóknir benda til að þau hraði öldrun. Margt bendir til þess að við höfum ákveðinn kvóta af efnaskipt- um og þegar hann er búinn er lífinu lok- ið. Séu efnaskiptin aukin á hinn bóginn styttist lífið. Tegundir sem eru með hæg efnaskipti, þar á meðal dýr sem leggjast í vetrardvala, lifa lengur en þær sem eru með hröð efnaskipti. Hraði efnaskipta virðist því ákvarða öldrun að miklu leyti auk þess sem sindurefnin eru afleiðing efnaskiptanna. Leikfimi og líkamsrækt hraðar efnaskiptum á meðan fólk reynir á sig en hitt er sýnt að fólk sem er í lík- amlega góðu ásigkomulagi hefur hægari efnaskipti. Þá kunna að vera öldrunargen í mannslíkamanum sem ef til vill væri hægt að ná stjórn á. Eitt barn af hverjum milljón sem fæðast er með svokölluð Werners-einkenni þar sem þau eldast óeðlilega og eru orðin ellihrum upp úr fertugu lifi þau svo lengi. Jafnvel frumur þeirra eru gamlar og skipta sér helmingi sjaldnar en hjá heilbrigðu fólki. Ef kjarni þessa sjúkdóms yrði skýrður mundi það varpa auknu ljósi á ástæður venjulegrar öldrunar. Rannsóknir á músum og rottum sem hefur verið haldið í við með því að minnka hitaeiningaskammtinn um 40 prósent, sýna að lífslengd þeirra eykst um helming. Líkamshiti þeirra lækkar og sindurefnum fækkar. Vísindamennirnir sem hafa staðið fyrir þessum rannsókn- um í Bandaríkjunum hafa sjálfir tekið upp á því að neyta aðeins sextán hundr- uð hitaeininga á dag (venjulegur dag- 76 HEIMSMYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.