Heimsmynd - 01.04.1992, Page 56

Heimsmynd - 01.04.1992, Page 56
* NÝJUNGAR KOMA OG FARA. VERIÐ ÚR SÉR GENGIÐ Á MO é ENDA FJÖLBREYTILEIKINN Þ Íólk sem með persónutöfrum, gerðum, viðhorfum og lífsstíl ryður nýjum straumum og stefnum braut mætti kalla tákngervingar tíðarandans. Þetta á bæði við um þá sem vekja athygli og aðdáun vegna þess að þeir eru fljótir að meðtaka nýjungar og það fólk sem skarar fram úr á einhverju sviði og verður af þeim sökum fyr- irmyndir annarra. Oft eru þetta ekki þeir sömu og öðlast eilíft líf á spjöldum sögunnar en áhrif þeirra á samtímann geta engu að síður verið mikil. Tákngervingar tíðarandans er fólkið sem setur svip á samtímann, gefur hversdagslífinu nýja vídd vegna þess að það fer leiðir sem öðrum hefði ekki dottið í hug eða þorað að feta en reynast síðan sjálfsagðar og vinna sér sess sem slíkar þegar frá líður. Það kann að vera áberandi um tíma en hverfur oft af sjónarsviðinu og fellur í gleymsku. Þau áhrif sem það hefur haft lifa hins vegar áfram og samlagast þjóðar- sálinni. Það væri væntanlega öðruvísi umhorfs á Islandi ef Ing- ólfur Guðbrandsson hefið ekki riðið á vaðið og tekið að bjóða fölleitum og veðurbörðum íslendingum upp á pakkaferðir til sólarlanda. Án efa ættu margir meiri verðmæti bundin í stein- steypu eða inni á bankareikningum ef þessar ferðir hefðu ekki komið til en á móti kemur að þetta sama fólk ætti ekki eins fjölskrúðugt safn minninga og fjölskylduljósmynda. Pakka- ferðirnar sem í fyrstu voru taldar sérkennileg nýjung eru nú að verða sjálfsögð mannréttindi sem höfð eru til hliðsjónar í kjarasamningum. Þótt þessum tákngervingum tíðarandans verði sjaldnast skipað á bekk með helstu leiðtogum þjóðarinn- ar búa þeir engu að síður yfir persónutöfrum, kjarki og dug sem tekið er eftir, sumir dást að en aðrir hallmæla vegna þess að það brýtur í bága við hugmyndir þeirra um hvernig hlutirn- ir eiga að vera. Athyglin sem þessir einstaklingar fá vekur allt- af einhverja til umhugsunar, sumir hrífast með og taka jafnvel að líkja eftir þeim. Clausenbræður vöktu til að mynda mikið umtal og jafnvel hneykslan þegar þeir tóku upp á því að mála nýtískuleg hús sín á Arnarnesinu tómatsósurauð. Engu að síð- ur tóku rauð hús að skjóta upp kollinum víðs vegar um bæinn og settu lit á nýbyggð einbýlishúsahverfin. í dag gera nágrann- ar ekki veður út af því þótt einhver í götunni máli hús sitt rautt, hvað þá bleikt, grænt eða blátt, það þykir orðið heyra undir borgaralegt frelsi, að tjá þannig sköpunargleði sína. Með tímanum venjast nýjungarnar og fyrr en varir er það sem áður þótti sérkennilegt og óvenjulegt orðið sjálfsagðir þættir í fjöl- breytileika mannlífsins. í því felst viðurkenning og sigur þegar samtíðarmenn taka að líta til ákveðins einstaklings vegna sér- stöðu hans og hæfileika en reyna ekki að knýja fram breyting- ar á hegðun eða gerðum hans þótt þær kunni að einhverju leyti að stangast á við hefðbundin gildi. Björk Guðmundsdóttir er dæmi um hvernig hæfileikar, útlit og persónuleiki vinna saman því henni hefur tekist að hrífa ótrúlega breiðan hóp fólks. Þótt barnsleg og oft á tíðum hálf ómótuð framkoma stingi í stúf og hárgreiðsla hennar og > klæðaburður virðist ekki lúta neinum lögmálum nema þá helst hennar eigin, hefur Björk eignast rúm í hjarta þjóðarinnar. Hún er vinsæl og það sem hún segir og gerir er jafnan tekið gott og gilt. Björk hefur haft mikil áhrif á klæðaburð og fram- komu fólks sem nú eru um og yfir tvítugt, henni tókst jafnvel að koma óléttu í tísku þegar hún tróð uppi með magann beran komin langt á sjöunda mánuð. Svo rammt kvað að þessari bylgju að sjá mátti gínur í búðargluggum tískuverslana sem farnar voru að þykkna undir belti. Annar en ólíkur tónlistar- maður, Sigrún Edvaldsdóttir, gengur svo sannarlega gegn þeirri ímynd sem flestir gera sér af flytjanda sígildrar tónlistar. í stað þess að vera orðfá, hæg og yfirveguð veður á Sigrúnu 56 HEIMSMYND eftir Laufeyju ELÍSABETU LÖVE

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.