Heimsmynd - 01.04.1992, Síða 59
Ragnheiður
Runólfsdóttir,
íþróttamaður
ársins árið 1991.
Hún er önnur
konan sem hlýtur
þennan eftirsótta
titil og árangur
hennar á án efa
eftir að verða
kynsystrum hennar
til hvatningar.
Björk Guðmundsdóttir söngkona. Björk hefur farið sínar eigin leiðir
hvað varðar
klæðaburð,
framkomu og
listsköpun. Hún
, hefur liaft
■Íí > gríðarleg áhrif
meðal margra
Cjfe. þeirra sem nú
\ eru um og
■ W' I * undir tuttugu
*' og fimm ára
Linda Pétursdóttir
fyrirsæta og
fyrrverandi Ungfrú
heimur. Linda,
sveitastúlkan frá
Vopnafirði, heillaði
þjóðina upp úr skónum
þegar hún sigraði
keppnina um fegurstu
konu heims.
FYRIRMYNDIR
Hver kynslóð á sér átrúnaðargoð en þau
eru bæði mörg og ólík. Söngvarinn Jimmy Hendr-
ix ku hafa öðlast mikla hylli á ný meðal fólks
\
um og undir tvítugu eftir áratuga hvíld í gröf
sinni. Þá hafa stjörn-
ur á borð við Whitney
Houston og Michael Jack-
son notið gífurlegra
vinsælda síðustu ár
og lög þeirra vermt topp vinsældalista hvert á
fætur öðru. írska hljómsveitin U2, með söngv-
arann Bono í broddi fylkingar, hefur notið mikill-
ar virðingar fyrir sérstæða en grípandi tónlist
og skelegga texta. Þá hefur söngvarinn Prince
hrist verulega upp í tónlistarheiminum og áhrif
hans á því sviði verða seint dregin í efa. Breski
söngvarinn Sting hef-
ur fyrir löngu sungið
sig inn í hjörtu Vest-
urlandabúa og nýtur
ekki síöur virðingar í
augum ungs fólks
sem talsmaður
mannréttinda- og
umhverfisverndar-
sjónarmiða.
Stjörnur hvíta
tjaldsins eru orðnar
svo margar frá upphafi að varla verður lengur
tölu á komið og alltaf bætast nýjar í hópinn.
Einhver skærustu nöfn síðustu ára eru þau
flrnold Schwartzenegger, sem sagöur er hæstlaun-
aði kvikmyndaleikarinn í Hollywood, Julia
Roberts, Jodie Foster
sem hefur meðal
annars unnið til
Óskarsverðlauna og
er nú að hasla sér
völl sem kvik-
myndaleikstjóri, og
Tom Cruise.
HEIMSMYND 59