Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Blaðsíða 11

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Blaðsíða 11
11www.virk.is STARFSENDURHÆFINGARSJÓÐUR Ráðgjafarnir vinna náið með sér- fræðingum VIRK og hefur hver ráðgjafi tengilið hjá sjóðnum og funda þeir reglulega. VIRK er einnig faglegt bakland fyrir ráðgjafana og eru haldnir einn til tveir fræðsludagar í hverjum mánuði þar sem allir ráðgjafarnir koma saman ásamt sérfræðingum VIRK. Auk fræðslu um starfsendurhæfingu og endurkomu til vinnu er farið yfir verkferla og vinnureglur ráðgjafanna. Eins og fram hefur komið er starf ráðgjafa fjölbreytt og auk þess sem að framan er talið má nefna að ráðgjafar halda kynningar um VIRK og starf ráðgjafanna í fyrirtækjum, stofnunum og á trúnaðarmannanámskeiðum stéttar- félaganna. Með aukinni reynslu og þróun starfsins hafa ráðgjafar tekið þátt í breytingum og endurskoðun á þeim vinnugögnum sem Starfsendur- hæfingarsjóður leggur til. Mikilvægt er að ráðgjafi í starfsendur- hæfingu búi yfir góðri samskiptahæfni og hafi áhuga á að vinna með fólki. Hann þarf að mæta einstaklingnum þar sem hann er staddur, án fordóma og sýna honum virðingu. Oftar en ekki finnst fólki erfitt að taka fyrstu skrefin til að leita aðstoðar og er því mikilvægt að vel sé tekið á móti því. Einstaklingar koma eftir ýmsum leiðum til ráðgjafa. Hjá flestum stéttarfélögum fá þeir bréf og bækling frá VIRK þegar þeir sækja um hjá sjúkrasjóðum félaganna með upplýsingum um þjónustuna. Í fyrstu kom fólk aðallega frá stéttarfélögunum en undanfarið ár hefur það breyst mikið. Með aukinni þekkingu á tilvist VIRK og þjónustu ráðgjafa stéttarfélaganna hafa einstaklingar oftar samband að eigin frumkvæði, auk þess sem vinnuveitend- ur, læknar, sálfræðingar og aðrir fagaðilar benda fólki á þjónustuna. Mikilvægt er að einstaklingar komi sem fyrst í ráðgjöf ef fyrirséð er að um langvinnan heilsuvanda er að stríða því rannsóknir sýna að því lengur sem einstaklingur er frá vinnu því minni líkur eru á að hann snúi aftur til vinnu. Fólk kemur í ráðgjöf af ólíkum ástæðum en á það sameiginlegt að vera að glíma við einhvers konar heilsubrest, líkamlegan eða andlegan, í kjölfar veikinda eða slysa. Algengast er að þeir sem leita til ráðgjafa í starfsendurhæfingu glími við stoðkerfisvandamál og andlega vanlíðan. Algengt er að andleg vanlíðan fylgi í kjölfar slysa og alvarlegra sjúkdóma. Það er erfitt fyrir fólk að veikjast og geta ekki lengur stundað starf sitt. Því er mikilvægt að einstaklingar haldi þeirri virkni sem þeir geta og séu þeir í vinnusambandi að fara í heimsókn á vinnustaðinn og halda þannig tengslum þangað til þeir geta mætt aftur til vinnu. Einnig er mikilvægt að fólk fái upplýsingar og aðstoð um hvaða leiðir eru færar varðandi framfærslu og úrræði, því mörgum finnst kerfið flókið. Flestir sem leita til ráðgjafa eru ánægðir með að hægt sé að fá þessa þjónustu og hafa margir þeirra getað snúið fyrr aftur til vinnu með aðstoð ráðgjafa. Starf ráðgjafa í starfsendurhæfingu er í senn fjölbreytt, krefjandi og gefandi. Hlutverk þeirra er að aðstoða einstaklinga við að endurheimta og/eða viðhalda og efla starfsgetu og starfshæfni. Áherslan er alltaf lögð á að viðhalda vinnusambandi einstaklingsins og að huga að hvaða leiðir eru færar til þess. Ef ráðningarsamband er ekki til staðar miðar starf ráðgjafa að því að hjálpa einstaklingnum við að fjarlægja hindranir gegn atvinnuþátttöku og auðvelda honum að komast aftur í vinnu í kjölfar veikinda eða slysa. Stærstu og mikilvægustu þættirnir í starfi ráðgjafa eru hvatning og viðtöl við ein- staklinga þar sem farið er yfir möguleika á vinnumarkaði, umsjón með málefnum þeirra og samskipti við vinnustaðinn. Aðrir veigamiklir þættir í starfi ráðgjafa eru samskipti við fagaðila svo sem lækna, sjúkraþjálfara og sálfræðinga vegna beiðna og úrræða fyrir einstaklinga og skráning. Ráðgjafarnir þurfa að huga vel að skráningu grunnupplýsinga og skimunar, úrræðakaupa og árangurs. Öll skráning fer fram í skráningarkerfi VIRK. Farið er að lögum um persónuvernd varðandi málefni einstaklinga og skrifa þeir sem leita til ráðgjafa undir upplýst samþykki í upphafi þjónustu. Skráning er nauðsynlegur þáttur í faglegu ferli VIRK, meðal annars til að hægt sé að hafa yfirsýn yfir þjónustu við einstaklinga og til að meta árangur í starfsendurhæfingu. Starf ráðgjafa í starfsendurhæfingu Karen Björnsdóttir ráðgjafi hjá BSRB Ráðgjafar í starfsendurhæfingu hjá stéttarfélögum víðs vegar um landið eru orðnir tuttugu og sjö. Þeir starfa á grundvelli samninga sem VIRK, Starfsendurhæfingarsjóður hefur gert við stéttarfélögin. Aðsókn í þjónustu ráðgjafanna hefur aukist jafnt og þétt undanfarna mánuði og bætast nýir ráðgjafar stöðugt í hópinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.