Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Side 48

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Side 48
48 www.virk.is A TV IN N U LÍ F ATVINNULÍF Algengustu orsakir líkamlegra álagseinkenna tengjast: Aðstæðum við vinnu • Óhentugum vinnustellingum eða • hreyfingum Líkamlegu erfiði• Einhæfum, síendurteknum • hreyfingum Skipulagi vinnunnar• Andlegum og félagslegum þáttum • í vinnu Fjarvistastjórnun Veikindafjarvistir tengjast oft heilsu og líðan einstaklinga, aðstæðum á vinnustað og þeim starfskröfum sem gerðar eru á vinnustaðnum. Því má segja að gott vinnuumhverfi og heilsuefling starfsmanna sé mikilvægur þáttur í að fækka veikindafjarvistum og auka velferð starfsmanna. Reynslan sýnir að unnt er að draga úr fjarvistum með því að skrá fjarvistir og hafa góðar upplýsingar um tíðni og helstu ástæður þeirra auk þess að hafa ferli um viðbrögð við þeim. Fram kemur í skýrslu frá sænsku tryggingarstofnuninni að mikilvægt er að fylgja veikindafjarvistum starfsmanna eftir í samráði við þá, hafa reglubundið samband við starfsmenn, ræða líðan þeirra, starfsgetu og leiðir til að minnka veikindafjarvistir á formlegan hátt, til dæmis á fundum (Socialförsäkringsrapport 2008:1). Í Noregi hefur ábyrgð atvinnurekenda varðandi veikindafjarvistir og eftirfylgd þeirra aukist verulega á síðustu árum. Atvinnurekendur bera nú mikla ábyrgð á að gera viðeigandi ráðstafanir á vinnustað vegna veikindafjarvista og fylgja þeim eftir. Það er stjórnvaldsákvörðun sem hefur átt ríkan þátt í því að heildartíðni fjarvista í Noregi hefur lækkað talsvert á undaförnum árum. Samkvæmt dönskum rannsóknum er talið að ástæður fyrir veikindafjarvistum tengist vinnustaðnum að einum þriðja hluta og er því mikilvægt að minnka hafi verið andlega erfitt þegar þeir voru spurðir um hvort þeim fannst starfið sem þeir voru í andlega erfitt og 57% fannst starfið sem þeir voru í líkamlega erfitt. Á myndum 1 og 2 má sjá hvað þessi einstaklingar töldu andlega og líkamlega erfitt við störf sín ( VIRK 2010). Samspil milli vinnuumhverfis, heilbrigðis og fjarvista er flókið. Vinnuumhverfið getur valdið einkennum eða sjúkdómum sem leiða til fjarvista. En samkvæmt ofangreindum niðurstöðum ætti að vera hægt að taka á mörgum þáttum á vinnustað og minnka þannig líkur á veikindafjarvistum með því að meta áhættuþætti í vinnuumhverfinu reglulega og fyrirbyggja vandamál. Á heimasíðu Vinnueftirlitsins, www.vinnueftirlit.is, eru góðar leiðbeiningar um áhættumat starfa og forvarnir. 30% 25% 20% 15% 10% 5% 0% Of m iki ð á lag Of m ör g v er ke fni Þa ð a ð t ak as t á vi ð t ilf inn ing ar Þa ð a ð h ald a a thy gli og ei nb eit ing u Þa ð a ð þ ur fa að le gg ja hlu ti á m inn ið Að ei ga sa mv inn u v ið vin nu fél ag a u m ve rk efn i Að þu rfa að ha fa ge tu til að h ug sa í ný jum br au tum An na ð Að þu rfa að ve ra í be inu sa mb an di við sk jól stæ ðin ga Mynd 1 Hvað var/er andlega erfitt við starf þitt? 26% 14% 14% 12% 11% 10% 6% 6% 1%

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.