Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Blaðsíða 6
6 www.virk.is
S
TA
R
FS
E
N
D
U
R
H
Æ
FI
N
G
A
R
S
JÓ
Ð
U
R
námskeiðum sem eru í boði og tengjast
þeirra fagsviði. Fræðslan á vegum VIRK
hefur þann tilgang að samræma tiltekna
fagþekkingu ráðgjafa og tryggja að þeir
bæði þekki og geti nýtt sér þá vinnuferla
og þau verkfæri sem hafa verið þróuð hjá
VIRK. Markmiðið er einnig að ráðgjafarnir
séu upplýstir um nýjustu þekkingu,
stefnur og strauma í starfsendurhæfingu
bæði hérlendis og erlendis. Víða erlendis
er starfsendurhæfing sérstakt fagsvið
og háskólar víða erlendis bjóða upp
á framhaldsnám á þessu sviði – oft á
meistarastigi.
Samstarf við NIDMAR
VIRK hefur gert samning við NIDMAR
(National Institute of Disability
Management and Research) um notkun
á 25 námskeiðum sem hafa verið þróuð
hjá þeim þar sem sérstök áhersla er lögð
á starfsendurhæfingu á vinnumarkaði
og stuðning við endurkomu til vinnu
eftir veikindi og slys. Þessi 25 námskeið
eru afrakstur áratuga þróunarvinnu hjá
NIDMAR og eru þau nýtt um allan heim af
fyrirtækjum og stofnunum til að undirbúa
ráðgjafa undir vandasamt starf á sviði
starfsendurhæfingar. NIDMAR er þekkt
stofnun á alþjóðavettvangi sem vinnur að
því að minnka mannlegan, félagslegan
og efnahagslegan kostnað vegna skertrar
starfsgetu. Þetta gerir NIDMAR með því
að sérhæfa sig í menntun, rannsóknum,
stefnumótun og framkvæmd áætlana
vegna endurkomu fólks á vinnumarkað.
Nánari umfjöllun um NIDMAR er að
finna hér aftar í þessu ársriti. Í vetur
hefur ráðgjöfum VIRK verið boðið upp
á 5 NIDMAR-námskeið og ætlunin
er að ljúka öllum 25 námskeiðunum
á næstu 2-3 árum. Hálfum mánuði
áður en námskeiðin hefjast fá ráðgjafar
sent lesefni ásamt leiðbeiningum og
verkefnavinnu og eftir hvert námskeið
eru verkefnaskil með námsmati.
Þjónustuþættir og
samstarfsaðilar
Mikilvægasti þjónustuþátturinn hjá VIRK
er þjónusta ráðgjafanna. Þeir halda utan
um mál einstaklinga, sjá um virkni- og
endurhæfingaráætlanir og leggja sig
fram um að auka virkni og getu þeirra
í samstarfi við einstaklinginn sjálfan og
fjölmarga aðila. Þeir eru yfirleitt í samstarfi
við heimilislækni eða meðhöndlandi
lækni, vinnustað viðkomandi einstaklings
og ýmsa aðra sérfræðinga eftir þörfum og
aðstæðum hverju sinni.
Ef einstaklingur þarf meiri aðstoð en
ráðgjafi getur veitt við að komast aftur í
vinnu, þá getur hann vísað einstaklingi
í ýmiss konar úrræði sem geta verið
fjármögnuð af VIRK. Dæmi um slík
úrræði eru sálfræðiþjónusta, sérstök
aðstoð við vinnuaðlögun, ýmis þjónusta
á sviði heilsueflingar, námskeið og lengri
starfsendurhæfingarúrræði. VIRK hefur
gert samninga við fjölda sérfræðinga á
mismunandi sviðum um þessa þjónustu
og fer samningum fjölgandi. Þannig er
VIRK með samninga við 56 sálfræðinga
um allt land auk samninga við fjölda
aðila sem starfa á sviði heilsueflingar
og fræðslu. Einnig eru til samningar við
tilteknar starfsendurhæfingarstöðvar og
unnið er að gerð fleiri slíkra samninga.
Áður en ákvörðun er tekin um kaup
á úrræðum er metin staða og þörf
einstaklings fyrir þjónustu. Þetta mat er
unnið í samvinnu ráðgjafa og viðkomandi
einstaklings. Með aðstoð ráðgjafa setur
viðkomandi einstaklingur sér markmið,
með þátttöku í þessum úrræðum, sem
tengjast endurkomu til vinnu. Þegar
úrræðinu er lokið er árangur þess metinn
af ráðgjafa og einstaklingi með hliðsjón
af settu markmiði og niðurstaða þess
mats er skráð í upplýsingakerfi VIRK.
Á þann hátt er hægt að greina árangur
hvers og eins úrræðis og hvers og eins
úrræðaaðila. Almennt séð hafa ráðgjafar
VIRK og einstaklingar sem leita til VIRK
verið mjög sáttir við þau úrræði sem þeir
hafa fengið og talið þau skila tilætluðum
árangri. Þannig mátu ráðgjafar og
einstaklingar árangur úrræða vera mikinn
eða talsverðan í um 74% úrræðakaupa –
sjá nánari upplýsingar í mynd 1.
Hvaðan koma
einstaklingarnir?
Í lok febrúar 2011 hafði 1761 ein-
staklingur leitað til VIRK eftir að byrjað
var að veita markvissa þjónustu hjá
ráðgjöfum haustið 2009. 63% af
þessum hópi eru konur og 37% karlar.
Aldursskiptinguna má sjá á mynd 2.
Í töflu 1 hér til hægri má finna nánari
upplýsingar um fjölda einstaklinga sem
leitað hafa til ráðgjafa VIRK frá upphafi.
Þeir einstaklingar sem hætt hafa þjónustu
hjá ráðgjöfum VIRK hafa annað hvort ekki
átt erindi í þjónustuna t.d. vegna þess
að vinnugeta þeirra er ekki skert vegna
heilsubrests, þeir hafa látist, eru of veikir
eða þeir hafa ekki verið tilbúnir til að taka
þátt með það að markmiði að stefna aftur
45%
40%
35%
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
Mikill
Mynd 1
Árangur úrræða að mati ráðgjafa og eintaklinga
Talsverður Nokkur Lítill Enginn