Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Blaðsíða 28
28 www.virk.is
VE
LF
E
R
Ð
A
R
K
E
R
FI
Ð
Flóknar sögur
„Fólk sem kemur í gegnum VIRK á sér oft flókna
sögu. Það hefur oft átt við langvarandi veikindi eða
heilsuvandamál að stríða. Vandamálin geta bæði
verið líkamleg og andleg. Við leggjum áherslu
á að halda vel utan um þetta fólk og styðja
það. Markmið okkar er að gera einstaklinginn
sjálfbjarga í sinni líkamsrækt og að honum líði
vel innan um annað fólk. Umhverfi okkar er ekki
sjúkrastofnanalegt eða sjúklingamiðað, heldur er
þetta líkamsræktarstöð. Við beinum athyglinni
að heilbrigði en ekki heilsuleysi og viljum að
einstaklingurinn fái uppbyggingu á jákvæðan
hátt,“ segir Sólveig ennfremur. „Við einblínum
á að einstaklingurinn fái fljótt bót meina
sinna þannig að hann komist aftur til starfa á
vinnumarkaðnum. Að hann styrkist á allan máta
til að verða fær um að takast á við vinnuna sína
og umhverfið á nýjan leik. Þetta gengur vissulega
misvel, enda eru veikindi fólks mismunandi, en
„Við erum búin að vera í góðu samstarfi við VIRK
í á annað ár og fer fjöldi einstaklinga á þeirra
vegum sífellt vaxandi,“ segir Sólveig Þráinsdóttir
sjúkraþjálfari, einn eigenda Sjúkraþjálfunarinnar
í Sporthúsinu, þar sem einnig starfa þrír aðrir
sjúkraþjálfarar. Með þeim starfa tveir íþrótta-
fræðingar ef á þarf að halda.
„Vandamál þeirra sem koma til okkar eru
margskonar þó að ýmis stoðkerfisvandamál séu
algengust. Þegar einstaklingar hefja meðferðina
útskýri ég hana gjarnan á þann hátt að hver
og einn hafi sitt eigið heilsuhjól sem hann þarf
að knýja áfram. Til þess notar hann þrjú minni
tannhjól sem eru andlegt, líkamlegt og félagslegt
hjól. Svo þetta gangi sem best fyrir sig þurfa þessi
hjól að vera jafnstór en oft er raunin önnur. Í
sameiningu reynum við þá að finna út hvaða hjól
er sterkast hjá viðkomandi og vinnum út frá því til
að reyna að stækka hin hjólin. Oftast er auðveldast
að vinna með líkamlega hjólið og það nýtum við
okkur hér,“ útskýrir Sólveig.
Heilsan byggð upp
Sólveig Þráinsdóttir sjúkraþjálfari
Sólveig Þráinsdóttir hefur starfað sem sjúkraþjálfari í þrjátíu ár.
Hún hefur alltaf haft áhuga á því að byggð væri upp starfsendurhæfing
fyrir þá sem eiga við langvarandi stoðkerfisvanda að stríða.
Nú hefur hún séð draum sinn rætast með VIRK.