Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Blaðsíða 76
76 www.virk.is
A
TV
IN
N
U
LÍ
F
ATVINNULÍF
upphafi verkefnisins. Hvert sé
hlutfall þátttakenda sem fá vinnu.
Hver sé fjöldi þátttakenda sem
nýta sér úrræði vinnumiðlanna og
fjöldi atvinnuviðtala. Einnig er litið
til fjölda þátttakenda sem hefja
aðgerðir til þess að auka hæfni sína
á vinnumarkaði, þ.e. sækja sér
aukin réttindi eða fara í nám.
Í öðru lagi að þátttakendur njóti •
góðs af tengslum sínum við
félagsvininn og samstarfsaðila
verkefnisins. Þar er kannað hvort
tengslin séu virk, þ.e. fjöldi funda
félagsvina og fjöldi þátttakenda sem
þekkja og nýta sér þau úrræði sem
eru í boði fyrir atvinnuleitendur.
Í þriðja lagi er lögð áhersla á bætta •
andlega líðan atvinnuleitenda.
Þar er skoðað í lok verkefnisins
hvort atvinnuleitendum líði betur,
þ.e. hlutfall þátttakenda sem telja
sig félagslega virkari, hafa aukið
sjálfstraust sitt og hvort viðkomandi
haldi rútínu.
Að lokum
Þessir þrír hópar félagsvinapara saman-
standa af sjötíu einstaklingum. Á bak við
þennan fjölda eru fjölskyldur þeirra sem
þátttakendur sjálfir telja að hafi beinan
ávinning af veru þeirra í verkefninu.
Félagsvinapörin hafa myndað náin og
skemmtileg vináttubönd og þar með
hafa atvinnuleitendur fengið góðan
félagastuðning yfir erfitt tímabil.
Félagsvinafundirnir eru stundum brotnir
upp og hafa félagsvinapör meðal annars
farið á skauta, kaffihús, tónleika og í
fjallgöngu. Hóparnir hafa verið virkir
utan verkefnisins, má þar nefna að
Borgarleikhúsið og Leikfélag Akureyrar
hafa í þrígang boðið öllum hópunum
í leikhús og hluti félagsvinanna hafa
tekið að sér aukaleikarahlutverk í hinum
ýmsu myndum og þáttum, þar með talið
Áramótaskaupinu.
Verkefnið er krefjandi að því leyti að
mikil áhersla er lögð á að fólk uppskeri
persónulegan árangur en einnig er lögð
áhersla á að fólk upplifi og njóti þess sem
tilveran hefur upp á að bjóða hverju sinni.
Félagsvinur sem hafði verið atvinnulaus í
tæpa 20 mánuði sagði seinasta dag sinn
sem atvinnuleitandi að nú liti hann á
þetta tímabil sem lærdómsríkt og gleðilegt
– þrátt fyrir bága efnahagslega stöðu og
marga erfiða daga.