Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Side 7
7www.virk.is
VIRK
Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK
Starfsmenn og ráðgjafar VIRK
Starfsmenn á skrifstofu VIRK eru 24 í 22
stöðugildum. Um er að ræða fjölbreyttan
hóp sérfræðinga og skrifstofufólks með
margvíslega þekkingu og reynslu.
Í febrúar 2014 störfuðu 45 ráðgjafar á
vegum VIRK hjá stéttarfélögum um allt
land. Ráðgjafar starfa reglubundið í öllum
stærri þéttbýliskjörnum landsins og þannig
er tryggt að þjónustan sé aðgengileg
bæði á höfuðborgarsvæðinu og á
landsbyggðinni. Á mynd 2 má sjá dreifingu
stöðugilda ráðgjafa um landið. Eins og
sjá má er áhersla lögð á að þjónustan sé
aðgengileg og að einstaklingar geti fengið
starfsendurhæfingu í sinni heimabyggð.
Ráðgjafar VIRK hafa undantekningalítið
háskólamenntun á sviði heilbrigðis-,
félags- eða menntavísinda og mjög margir
hafa meistaragráðu í sínu fagi. Mikil
fræðsla og símenntun á sér reglubundið
stað hjá VIRK.
Hlutverk ráðgjafa VIRK er að halda
utan um mál einstaklings í starfsendur-
hæfingarferlinu. Fjöldi annarra sérfræð-
inga kemur einnig að málum og í öllu
starfsendurhæfingarferlinu er tryggð þver-
fagleg aðkoma að málum í samræmi við
viðurkenndar aðferðir. Á bls. 22 í þessu
ársriti er umfjöllun um starf ráðgjafa VIRK,
viðtöl við ráðgjafa, ásamt mynd af ráðgjöfum
VIRK.
Í heild starfa um 70 manns hjá VIRK eða
samkvæmt samningi VIRK og stéttar-
félaga. Þetta er öflugur og fjölbreyttur
hópur sem leggur sig fram um að tryggja
einstaklingum faglega, góða og árangurs-
ríka atvinnutengda starfsendurhæfingu
um allt land.
Þverfagleg matsteymi
VIRK hefur stuðlað að uppbyggingu þver-
faglegra matsteyma í starfsendurhæfingu
víða um land. Fagaðilar í þessum teymum,
sem í dag starfa á höfuðborgarsvæðinu,
Akureyri og Austurlandi, eru læknar,
sálfræðingar, sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfar og
félagsráðgjafar. Einnig er verið að byggja
upp þverfaglegt teymi á Reykjanesi. Um
35 sérfræðingar eru í þverfaglegum mats-
teymum og eru þeir sjálfstæðir fagaðilar
sem starfa samkvæmt verktakasamningi
við VIRK. Hlutverk þessara teyma er bæði
að aðstoða ráðgjafa við uppbyggingu á
árangursríkri starfsendurhæfingaráætlun
og eins að meta vinnugetu einstaklinga.
Teymin starfa samkvæmt skilgreindu
verklagi sem mótað hefur verið hjá VIRK.
Hugmyndafræðilegur rammi þessa mats
byggir á ICF (International Classification of
Function), sem er alþjóðlegt flokkunarkerfi
um færni, fötlun og heilsu sem var
gefið út af Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni
(WHO) árið 2001. ICF gefur möguleika á
stöðluðu, samræmdu tungutaki yfir heilsu
og heilsutengt ástand þar sem horft er á
ástand einstaklingsins út frá heilsu og
færni.
„Starfsemi VIRK hefur
auðveldað þúsundum
einstaklinga sem ekki
höfðu vinnugetu vegna
heilsubrests að sjá sér
farborða með virkri þátt-
töku á vinnumarkaði.“
Mynd 1
Hlutverk VIRK
VIRK mótar, samþættir og hefur
eftirlit með þjónustu á sviði
starfsendurhæfingar sem miðar
markvisst að atvinnuþátttöku
einstaklinga í kjölfar veikinda
eða slysa.
Framtíðarsýn
til 2020
• VIRK hefur í samstarfi við
fagaðila, fyrirtæki og stofnanir
skilað samfélagslegum ávinningi
þar sem dregið hefur verulega
úr nýgengi á örorku.
• VIRK byggir á gagnreyndri
þekkingu, rannsóknum og
reynslu sem tryggir samþætta,
árangursríka og örugga þjónustu
á sviði starfsendurhæfingar.
• VIRK hefur í samvinnu
við fagaðila, fyrirtæki og
stofnanir unnið að því að ryðja
úr vegi hindrunum gegn aukinni
atvinnuþátttöku einstaklinga
með skerta starfsgetu.
• VIRK er virt þekkingarsetur og
leiðandi í rannsóknum og þróun
á sviði starfsendurhæfingar.
Gildi
• Fagmennska
• Virðing
• Metnaður