Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Síða 7

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Síða 7
7www.virk.is VIRK Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK Starfsmenn og ráðgjafar VIRK Starfsmenn á skrifstofu VIRK eru 24 í 22 stöðugildum. Um er að ræða fjölbreyttan hóp sérfræðinga og skrifstofufólks með margvíslega þekkingu og reynslu. Í febrúar 2014 störfuðu 45 ráðgjafar á vegum VIRK hjá stéttarfélögum um allt land. Ráðgjafar starfa reglubundið í öllum stærri þéttbýliskjörnum landsins og þannig er tryggt að þjónustan sé aðgengileg bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Á mynd 2 má sjá dreifingu stöðugilda ráðgjafa um landið. Eins og sjá má er áhersla lögð á að þjónustan sé aðgengileg og að einstaklingar geti fengið starfsendurhæfingu í sinni heimabyggð. Ráðgjafar VIRK hafa undantekningalítið háskólamenntun á sviði heilbrigðis-, félags- eða menntavísinda og mjög margir hafa meistaragráðu í sínu fagi. Mikil fræðsla og símenntun á sér reglubundið stað hjá VIRK. Hlutverk ráðgjafa VIRK er að halda utan um mál einstaklings í starfsendur- hæfingarferlinu. Fjöldi annarra sérfræð- inga kemur einnig að málum og í öllu starfsendurhæfingarferlinu er tryggð þver- fagleg aðkoma að málum í samræmi við viðurkenndar aðferðir. Á bls. 22 í þessu ársriti er umfjöllun um starf ráðgjafa VIRK, viðtöl við ráðgjafa, ásamt mynd af ráðgjöfum VIRK. Í heild starfa um 70 manns hjá VIRK eða samkvæmt samningi VIRK og stéttar- félaga. Þetta er öflugur og fjölbreyttur hópur sem leggur sig fram um að tryggja einstaklingum faglega, góða og árangurs- ríka atvinnutengda starfsendurhæfingu um allt land. Þverfagleg matsteymi VIRK hefur stuðlað að uppbyggingu þver- faglegra matsteyma í starfsendurhæfingu víða um land. Fagaðilar í þessum teymum, sem í dag starfa á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og Austurlandi, eru læknar, sálfræðingar, sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfar og félagsráðgjafar. Einnig er verið að byggja upp þverfaglegt teymi á Reykjanesi. Um 35 sérfræðingar eru í þverfaglegum mats- teymum og eru þeir sjálfstæðir fagaðilar sem starfa samkvæmt verktakasamningi við VIRK. Hlutverk þessara teyma er bæði að aðstoða ráðgjafa við uppbyggingu á árangursríkri starfsendurhæfingaráætlun og eins að meta vinnugetu einstaklinga. Teymin starfa samkvæmt skilgreindu verklagi sem mótað hefur verið hjá VIRK. Hugmyndafræðilegur rammi þessa mats byggir á ICF (International Classification of Function), sem er alþjóðlegt flokkunarkerfi um færni, fötlun og heilsu sem var gefið út af Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) árið 2001. ICF gefur möguleika á stöðluðu, samræmdu tungutaki yfir heilsu og heilsutengt ástand þar sem horft er á ástand einstaklingsins út frá heilsu og færni. „Starfsemi VIRK hefur auðveldað þúsundum einstaklinga sem ekki höfðu vinnugetu vegna heilsubrests að sjá sér farborða með virkri þátt- töku á vinnumarkaði.“ Mynd 1 Hlutverk VIRK VIRK mótar, samþættir og hefur eftirlit með þjónustu á sviði starfsendurhæfingar sem miðar markvisst að atvinnuþátttöku einstaklinga í kjölfar veikinda eða slysa. Framtíðarsýn til 2020 • VIRK hefur í samstarfi við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir skilað samfélagslegum ávinningi þar sem dregið hefur verulega úr nýgengi á örorku. • VIRK byggir á gagnreyndri þekkingu, rannsóknum og reynslu sem tryggir samþætta, árangursríka og örugga þjónustu á sviði starfsendurhæfingar. • VIRK hefur í samvinnu við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir unnið að því að ryðja úr vegi hindrunum gegn aukinni atvinnuþátttöku einstaklinga með skerta starfsgetu. • VIRK er virt þekkingarsetur og leiðandi í rannsóknum og þróun á sviði starfsendurhæfingar. Gildi • Fagmennska • Virðing • Metnaður

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.