Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Page 8
8 www.virk.is
V
IR
K
Í dag eru mál allra einstaklinga sem
koma til VIRK rýnd af þverfaglegum
hópi sérfræðinga á fyrsta mánuði í
þjónustu. Auk þess eiga sér stað um 120
þverfagleg möt í hverjum mánuði þar sem
sérfræðingar í þverfaglegum matsteymum
hitta einstaklinga og leggja upp ítarlega
starfsendurhæfingaráætlun í samstarfi
við einstakling og ráðgjafa. Þessi teymi
sjá auk þess um að meta starfsgetu í lok
þjónustuferlis hjá VIRK, í þeim tilfellum
sem viðkomandi einstaklingur útskrifast
ekki til fullrar þátttöku á vinnumarkaði.
Úrræðaaðilar í starfsendur-
hæfingu um allt land
VIRK er með samninga við mikinn
fjölda úrræðaaðila í starfsendurhæfingu
um allt land. Um er að ræða
starfsendurhæfingarstöðvar, sálfræðinga,
sjúkraþjálfara, símenntunaraðila og
marga fleiri sem bjóða fjölbreytta og
faglega þjónustu fyrir einstaklinga sem
takast á við fjölþættan vanda í kjölfar
heilsubrests af ýmsum toga. Þessir aðilar
gegna allir mjög mikilvægu hlutverki
í starfsendurhæfingarþjónustu hér á
landi. Fjöldi þessara aðila og fjölbreytni
í framboði á þjónustu hefur aukist mikið
á undanförnum árum. Fyrir tilstuðlan
VIRK hafa þannig orðið til mun fleiri
úrræði á þessu sviði, sem hefur leitt til
aukinnar þekkingar, reynslu og árangurs
í atvinnutengdri starfsendurhæfingu á
Íslandi. Þetta er mjög jákvæð þróun og
VIRK leggur áherslu á gott og uppbyggilegt
samstarf við þessa aðila. Jafnframt leggur
VIRK áherslu á að þeir aðilar sem bjóða upp
á heildstæð starfsendurhæfingarúrræði
tryggi einstaklingum góða og þverfaglega
þjónustu og uppfylli ákveðin fagleg viðmið
í starfsendurhæfingu. Þetta er gert meðal
annars með samningum, úttektum og
reglubundnu samstarfi.
Kaup VIRK á þjónustu fagaðila um allt
land hafa aukist mikið á undanförnum
árum. Útgjöld VIRK vegna þessarar
þjónustu námu ríflega 500 milljónum
króna á árinu 2013 og var það um tvöfalt
hærri fjárhæð en árið þar á undan. Mynd
3 sýnir hlutfallslega skiptingu útgjalda
vegna aðkeyptrar þjónustu frá ýmsum
Stöðugildi ráðgjafa VIRK um allt land
Mynd 2
Höfuðborgarsvæðið
Borgarfjörður og
Snæfellsnes
Akranes
Vestfirðir
Norðurland
vestra
Akureyri og
Eyjafjörður
Austurland
Reykjanes
Vestmannaeyjar
42
1
1
1
26
Suðurland3
2
1
3
1
Þingeyjarsýslur
Mynd 3
Skipting útgjalda vegna aðkeyptrar þjónustu frá úrræðaaðilum
Sálfræðiþjónusta
Sjúkraþjálfun
Sérhæfð starfsendur-
hæfingarúrræði
Líkamsrækt
Nám og námskeið
Annað
56%
19%
7%
7%
6%
5%