Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Side 10

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Side 10
10 www.virk.is V IR K skýra með mörgum og oft samverkandi þáttum: Lög um atvinnutengda starfsendur-• hæfingu og starfsemi starfsendur- hæfingarsjóða tóku gildi í lok árs 2012. Samkvæmt lögunum eiga nú fleiri einstaklingar en fyrr rétt á þjónustu VIRK, þar með talið allir þeir sem ekki hafa verið lengi á vinnumarkaði. Lífeyrissjóðir um allt land sendu mun • fleiri einstaklinga til VIRK á árinu 2013 en áður og er það í framhaldi af lögbundinni þátttöku þeirra í fjármögnun VIRK. Trúnaðarlæknar lífeyrissjóða vísuðu um 230 einstaklingum til VIRK á síðasta ári. Aukin samvinna VIRK við heilbrigðis-• stofnanir og ýmsar aðrar opinberar stofnanir veldur því að fagaðilar innan þessara stofnana beina nú mun fleiri einstaklingum til VIRK en áður. Sérstaklega hefur tilvísunum frá heilsugæslulæknum til VIRK fjölgað á árinu 2013. Mikil fjölgun hefur orðið meðal • einstaklinga sem hafa verið lengi frá vinnumarkaði og glíma við mjög fjölþættan vanda. Gera má ráð fyrir að hér séum við m.a. að takast á við afleiðingar kreppunnar, þar sem mun stærri hópar en áður hafa nú verið án atvinnu í nokkur ár. Mun fleiri þekkja til starfsemi VIRK í • dag en áður og sú vitneskja skilar sér í aukinni aðsókn í þjónustu. Hverjir leita til VIRK Til að eiga rétt á þjónustu VIRK þurfa ein- staklingar að uppfylla eftirfarandi skilyrði: Að geta ekki sinnt starfi sínu eða • tekið þátt á vinnumarkaði vegna hindrana af völdum heilsubrests sem rekja má til veikinda eða slysa. Að markmiðið sé að verða aftur • virkur þátttakandi á vinnumarkaði eða auka þátttöku á vinnumarkaði, svo fljótt sem verða má. Geta og vilji til að taka markvissan • þátt í starfsendurhæfingunni sé til staðar og þjónustan þyki líkleg til árangurs á þeim tíma sem hún er veitt. Miðað er við að einstaklingur sé kominn með formlega tilvísun frá lækni áður en pantaður er tími hjá ráðgjafa VIRK. Þetta á þó ekki við um þá einstaklinga sem fá greidda dagpeninga frá sjúkrasjóðum stéttarfélaga eða fá örorkulífeyri frá lífeyrissjóðum þar sem þá liggur þegar fyrir vottorð um heilsubrest hjá þessum framfærsluaðilum. VIRK starfar í nánu samstarfi við sjúkrasjóði stéttarfélaga um allt land þar sem ráðgjafar VIRK eru staðsettir. Einstaklingar sem sækja um sjúkradagpeninga til sjúkrasjóða stéttarfélaga fá því alla jafna góða kynningu á þjónustu VIRK og möguleikum hennar. Aukið samstarf við trúnaðarlækna lífeyrissjóða hefur einnig orðið til þess að „Mikil fjölgun hefur orðið meðal einstaklinga sem hafa verið lengi frá vinnu- markaði og glíma við fjölþættan vanda. Gera má ráð fyrir að hér séum við meðal annars að takast á við afleiðingar kreppunnar, þar sem mun stærri hópar en áður hafa nú verið án atvinnu í nokkur ár.“ 1800 1600 1400 1200 1000 800 600 400 200 0 1155 1304 1236 1640 Mynd 5 Fjöldi nýrra einstaklinga 2010-2013 Árið 2010 Árið 2011 Árið 2012 Árið 2013 Aldur og kyn einstaklinga sem komu í þjónustu á árinu 2013 350 300 250 200 150 100 50 0 <30 30-39 40-49 50-59 60+ Karl KonaMynd 6 Fjöldi 120 161 119 118 45 207 288 263 255 64

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.