Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Blaðsíða 12
12 www.virk.is
V
IR
K
og finna þarf leiðir í starfsendurhæfingu
sem henta þörfum hvers og eins.
Mynd 10 inniheldur upplýsingar um
mat einstaklinga sem hafa leitað til
VIRK vegna þess að þeir geta ekki tekið
virkan þátt á vinnumarkaði. Sjá má að
stór hópur glímir við geðræn vandamál
eða stoðkerfisvandamál, eða um 76% af
heildarfjöldanum. Þess má geta að geð-
raskanir og stoðkerfissjúkdómar voru
fyrsta orsök örorku hjá um 66% þeirra sem
voru með örorkumat hjá Tryggingastofnun
ríkisins á árinu 2012.
Aðstæður og líðan einstaklinga sem leita
til VIRK eru að vonum mismunandi.
Mynd 11 inniheldur upplýsingar sem
skráðar hafa verið við komu til ráðgjafa
og gefur því hugmynd um aðstæður og
líðan einstaklinga sem leituðu til VIRK á
árunum 2012 og 2013. Þarna er sett fram
hlutfall þeirra sem hafa svarað þessum
spurningum játandi. Eins og sjá má
fjölgar þeim aðeins á milli ára sem telja að
andleg streita, depurð og kvíði hafi áhrif á
starfsgetu þeirra.
Farsæl endurkoma til vinnu
Það er mikilvægt að einstaklingar eigi
greiða leið til baka í vinnu í kjölfar fjarvista
vegna veikinda eða slysa. Hér spilar
vinnustaðurinn stórt hlutverk, þar sem
sveigjanleiki og skilningur skipta miklu
máli til að endurkoman verði árangursrík.
Þróunarverkefnið „Virkur vinnustaður“
hefur verið í gangi hjá VIRK frá árinu
2011 með þátttöku um 30 vinnustaða
um allt land. Markmið verkefnisins eru að
stuðla að því að brugðist sé við veikindum
á vinnustöðum með fyrirsjáanlegum
hætti og að á vinnustöðum sé til yfirlýst
stefna og markvissar leiðir sem stuðla
að forvörnum og skapa aðstæður til
árangursríkrar endurkomu til vinnu eftir
veikindi eða slys. Verkefnið hefur einnig
það markmið að auka þekkingu bæði
starfsmanna og stjórnenda um ýmsa þætti
í vinnuumhverfinu sem hafa áhrif á heilsu
og geta dregið úr fjarvistum. Áætlað er að
verkefninu ljúki í árslok 2014. Í tengslum
við þetta verkefni hafa verið mótaðir ýmsir
vinnuferlar, leiðbeiningar og verkfæri
sem eru aðgengileg öðrum fyrirtækjum á
heimasíðu VIRK.
Við komu til VIRK eru einstaklingar spurðir
ýmissa spurninga er varða endurkomu
til vinnu, hvort hún hafi verið reynd
og hvort eitthvað hafi verið gert til að
auðvelda þeim endurkomu til vinnu í
kjölfar veikinda eða slysa. Af þeim sem
„Það er mikilvægt að
einstaklingar eigi greiða
leið til baka í vinnu í kjölfar
fjarvista vegna veikinda
eða slysa. Hér spilar
vinnustaðurinn stórt
hlutverk, þar sem
sveigjanleiki og skilningur
skipta miklu máli til að
endurkoman verði
árangursrík.“
Mynd 9
Menntun
Einstaklingar sem hafa leitað til VIRK – hlutfallsleg skipting eftir menntunarstigi
Skyldunám eða minna
Framhaldsskóli / stúdentspróf
Annað
Iðnskóli eða annar skóli
til réttindanáms
Háskóli
Réttindanámskeið
(t.d. meirapróf)
33%
19%
16%
14%
10%
8%
Mynd 10
Mat einstaklinga á ástæðum fjarvista frá vinnumarkaði
Stoðkerfisvandamál
Hjarta/ æðasjúkdómar
Taugasjúkdómar
Annað
Geðræn vandamál
Óflokkað
Æxli
39%
8%
5%
3%
4%
4%
37%