Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Side 18
18 www.virk.is
V
IR
K
Hér verða teknir saman nokkrir áhuga-
verðir þættir úr þessari heimildaöflun og
þeir settir í samhengi við uppbyggingu
faglegs starfs í starfsendurhæfingu hjá
VIRK.
Hvenær er starfsendurhæfing
tímabær og hvað þarf til?
Flestir sem veikjast eða slasast snúa
farsællega aftur til vinnu eftir að hafa
notið hefðbundinnar meðferðar innan
heilbrigðiskerfisins og nauðsynlegs
sveigjanleika á vinnustað. Samkvæmt
breskum rannsóknaniðurstöðum skila
95% sér aftur til vinnu innan 4–6
vikna án sértækrar íhlutunar eins og
starfsendurhæfingar (National Institute
for Health and Care Excellence 2009).
Óvíst er að það borgi sig að reyna
starfsendurhæfingu fyrr en rannsóknir
benda til þess að einstaklingar sem fara of
snemma í starfsendurhæfingu eigi á hættu
að vera lengur frá vinnu en ella (Waddell,
Burton og Kendall 2013).
Samstarf vinnustaðar og
heilbrigðiskerfis
Gott samstarf við vinnustaðinn og við-
eigandi aðstoð frá heilbrigðiskerfinu skipta
miklu máli, einkum fyrstu vikurnar sem
einstaklingur er frá vinnu. Þróunin síðustu
ár hefur verið í þá veru að aukin áhersla er
lögð á að fá atvinnurekendur til samstarfs
og ábyrgðar í þessu ferli. Meðal annars
hefur verið bent á mikilvægi sérstakra
ráðstafana á vinnustað sem hvetji til þess
að einstaklingur komist fyrr til vinnu eftir
veikindi (OECD 2010, Everhardt og de
Jong 2011). Samþætting og samvinna
ólíkra aðila er mikilvæg og í því samhengi
hefur verið bent sérstaklega á mikilvægi
samvinnu heilbrigðiskerfis og vinnustaðar
(OECD 2010, Waddel og Burton 2006).
Ákveðnar reglugerðarbreytingar vegna
útgáfu á læknisvottorðum hafa gefið góða
raun í nágrannalöndum okkar. Í Svíþjóð
fækkaði veikindafjarvistum um 33% með
lagabreytingum um veikindaskrif, sem
meðal annars fólu í sér að mun ítarlegri
leiðbeiningar eru nú gefnar út fyrir lækna
vegna vottorðaskrifa (Westregård 2013). Í
Noregi var farin sú leið að tengja útgáfu
læknisvottorða við vinnustaðinn, meðal
annars með lagabreytingum þar sem
kveðið er á um ákveðið ferli sem þurfi að
eiga sér stað innan vinnustaðarins þegar
um lengri veikindi er að ræða. Aðlögun á
vinnuskyldum og fundur atvinnurekanda,
einstaklings og læknis viðkomandi eru
atriði sem Norðmenn hafa lagt áherslu
á (Norwegian Labor and Welfare Service
2014).
Faglegar
áherslur
hjá VIRK
Ása Dóra Konráðsdóttir sviðsstjóri starfsendurhæfingasviðs VIRK
Mikil vinna átti sér stað við stefnumótun VIRK seinni hluta árs
2012 og fyrri hluta árs 2013. Afraksturinn var gefinn út á árs-
fundi VIRK árið 2013 þar sem sett var fram framtíðarsýn VIRK
til ársins 2020. Í þessari vinnu voru skoðaðar árangursríkar
leiðir í starfsendurhæfingu hérlendis og erlendis.