Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Side 24
24 www.virk.is
V
IR
K
„Já, ég finn fyrir því að talsverð aukning
hefur orðið hér í beiðnum til VIRK um
þjónustu“ svarar Fanney. „Samkvæmt
könnunum er eftirspurn eftir þjónustu hjá
VIRK að aukast á nánast öllum vígstöðvum.
Ég hef fundið fyrir henni hér fyrir vestan,
einkum frá hausti.“
Hvaða fólk leitar einkum
til þín?
„Manneskjur á öllum aldri, mjög breiður
hópur. Segja má að fólkið komi úr
öllum starfsstéttum. Mitt starf er að
ýmsu leyti frábrugðið starfi ráðgjafa á
höfuðborgarsvæðinu. Þetta er stórt svæði,
hér eru til dæmis miklar vegalengdir og
samgöngur oft slæmar, sérstaklega sam-
göngur við sunnanverða Vestfirði yfir
vetrartímann. Sem dæmi má nefna að jafn
langan tíma getur tekið að aka frá Ísafirði til
Patreksfjarðar og Reykjavíkur að vetri til.“
Á hversu víðfeðmu svæði þjónar
þú sem ráðgjafi?
„Í raun öllu Vestfjarðasvæðinu. Sunnan-
verðir Vestfirðir spanna allt frá Gilsfirði um
Reykhólasveit, Barðaströnd, Patreksfjörð
og nágrenni. Norðanverðir Vestfirðir ná frá
botni Hrútafjarðar að Ströndum, Hólmavík,
Drangsnesi og svæðum þar í kring. Svo er
það Ísafjörður og bæir og sveitir í nágrenni
„Hver og einn
þarf að velja sína leið sjálfur“
Fanney Pálsdóttir ráðgjafi hjá VIRK
Á Ísafirði og víðar á Vestfjörðum starfar Fanney Pálsdóttir
sem ráðgjafi hjá VIRK. Nýlega hefur komið fram í fréttum
að þeim fjölgar ár frá ári sem óska eftir samstarfi við VIRK.
Skyldi Fanney hafa fundið fyrir þessari þróun í starfi sínu?
hans. Sjálf er ég búsett á Ísafirði, á þar
fjölskyldu og heimili. Ég hóf störf hjá VIRK
í maí 2009 og var þá í 25 prósent starfi, en
er nú komin í fullt starf.“
Er fólk óhrætt við að leita sér
aðstoðar í litlum samfélögum?
„Ráðgjafi hjá VIRK er bundinn trúnaði
og það er vel kynnt í fyrsta viðtali. Fólkið í
kring veit því sjaldnast að einhver tiltekinn
einstaklingur sé í ráðgjöf hjá VIRK. Að
sjálfsögðu er það mitt hlutverk að vinna
traust þeirra einstaklinga sem til mín
koma. Hvort það tekst alltaf veit ég ekki,
en ég vona það svo sannarlega. Ég er
ein að störfum hér fyrir VIRK. En smæð
samfélagsins gæti fælt einhverja frá, það
er vel hugsanlegt.“
Þú nefndir að ýmislegt væri öðru-
vísi í þínu starfi sem ráðgjafi á
Vestfjörðum heldur en til dæmis á
höfuðborgarsvæðinu. Á það einnig
við um þau úrræði sem í boði eru?
„Vegna dreifðar byggðar og fámennis
á svæðinu er minna um úrræði en fyrir
sunnan, en á hinn bóginn eru úrræðaaðilar
reiðubúnir að þróa ný úrræði fyrir VIRK til
að koma til móts við þarfir fólksins sem við
þjónum.“
Starfið mjög gefandi
Hvað er jákvætt við þetta starf að
þínu mati?
„Fólkið sem kemur í þjónustu. Ég er svo
heppin að fá að kynnast því mjög náið, fá að
mynda samband við þá einstaklinga sem
koma til VIRK. Annað jákvætt er að starfið
er mjög fjölbreytt og í endalausri þróun.
Það hafa orðið miklar breytingar síðan ég
hóf störf hjá VIRK. VIRK er sífellt að þróa
sína verkferla til að bæta þá þjónustu sem
boðið er upp á. Mikil breyting hefur til
dæmis orðið á starfsumhverfinu síðan ég
hóf störf.“
Hvernig lýsir sú breyting sér?
„Þegar ég byrjaði að vinna hér var ég með
tengilið hjá VIRK. Þá var verið að byrja að
þróa verkferla og við ráðgjafar fengum að
taka þátt í því starfi. Í framhaldi af þessu
hafa orðið miklar breytingar. Fagleg aðstoð
og stuðningur við ráðgjafa hefur aukist. Við
fáum rýnifundi með lækni og sálfræðingi
við uppsetningu fyrstu áætlunar. Einnig
höfum við aðgang að daglegri síma- og
netpóstvakt og það kemur að miklu
gagni þegar verið er að móta stefnu í
starfsendurhæfingarferlinu fyrir hvern og
einn einstakling. Ef ég er til dæmis óörugg
um stefnu í framhaldinu, þá hef ég nú
mjög sterkt bakland. Áður áttum við einn