Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Side 27
27www.virk.is
VIÐTAL
erfiðleika. Hver svo sem á í hlut. Þetta
var mér mikilvægt að skilja og í raun mikil
lexía. Fram að því hafði ég talið óhugsandi
að svona lagað gæti komið fyrir mig og
ég upplifði gríðarlega skömm yfir að hafa
veikst. Mér fannst ég hafa brugðist sjálfri
mér, fjölskyldu minni og samfélaginu. Mín
endurhæfing fólst ekki síst í að sigrast á
eigin fordómum og að hluta til í því að
átta mig á að við erum öll mannleg og að
veikindi geta sótt okkur heim hvenær sem
er og hvar sem er.“
Var leitað lausna á fjárhagsvanda
sem hafði valdið þér svo miklum
áhyggjum?
„Nei, það var ekki til nein einföld lausn á
fjárhagsmálunum, þar var ég í sama ferli
og fjöldi fólks sem tók erlend lán og lenti í
vandræðum eftir bankahrunið.
Á þessum tíma var ég aftur á móti í
sambandi við mann sem ekki gerði mér
gott. Í þeim málum fékk ég mikinn stuðning
sem leiddi til þess að ég hef komið mér á
betri stað. Sálfræðiaðstoðin fólst í hugrænni
atferlismeðferð, kortlagningu ýmiskonar
og úrvinnslu og sjálfsuppbyggingu, ásamt
kvíðameðferð.
Viðtölin við ráðgjafa hjá VIRK miðuðu
fremur að því að halda utan um praktísk
mál. Styðja mig í umsóknum t.d. um
endurhæfingarlífeyri og fleira af því tagi,
sem og skipulagningu á félagslegum
þáttum. Það starf ráðgjafans að halda utan
um og fylgja eftir tengslum og samskiptum
við vinnustaðinn var mikilvægt. Einnig sá
ráðgjafinn um að standa vörð um réttindi
mín sem starfsmanns, einkum hvað
varðaði endurkomu mína til vinnu, sem
reyndist mun þyngra í vöfum en gert var
ráð fyrir.“
Fékk aftur fyrra starf
„Tengsl mín við vinnustaðinn fólust í
fyrstu í því að koma reglulega í heimsókn,
fylgjast með því sem var að gerast og hafa
samskipti við fólkið sem ég hafði unnið
með. Þetta gekk ágætlega. Einnig gekk
ágætlega að fá að koma inn sem launalaus
starfsmaður. Þyngra var að fá samstarf
vinnuveitanda vegna endurkomu minnar
í vinnu í skertu starfshlutfalli, en við
ráðgjafinn óskuðum eftir því og að hlutfallið
myndi aukast í þrepum eftir því sem geta
mín ykist. Þetta reyndist gríðarlega þungt
mál að sækja. Ég hefði aldrei getað sótt
minn rétt ein, né hefði ég haldið vinnunni
án aðkomu ráðgjafa VIRK. Áður en yfir
lauk var Kennarasambandið komið í málið
líka fyrir tilstilli VIRK. Þegar allt var komið
í hnút leituðum við eftir stuðningi KÍ, sem
var auðsótt og mjög áhrifaríkt.
Þrennt var einkum mikilvægt sem
VIRK gerði fyrir mig. Í fyrsta lagi fékk ég
ráðgjafa sem hélt utan um mín mál, leitaði
lausna og stóð á rétti mínum. Í öðru lagi
var þýðingarmikið að hafa svona stóran
aðila eins og VIRK, sem er viðurkenndur
í starfsendurhæfingu, til að keyra í gegn
endurkomu mína í mitt gamla starf. Í
þriðja lagi var mikilvægt að mynda tengsl
og traust við einn og sama aðilann,
ráðgjafann. Hann kynntist mér vel og ég
fann hve mikinn metnað og áhuga hann
hafði á því að ég næði settum markmiðum.
Þessi afstaða ráðgjafans vakti mér aukinn
baráttuhug.“
Hvernig er staðan hjá þér núna?
„Liðin eru þrjú og hálft ár síðan ég veiktist.
Fyrir ári síðan var ég loks komin í fulla vinnu.
Ég er líka búin að koma persónulegum
málum mínum í góðan farveg. Nú er ég
„Tengsl mín við
vinnustaðinn fólust í
fyrstu í því að koma
reglulega í heimsókn,
fylgjast með því sem
var að gerast og hafa
samskipti við fólkið
sem ég hafði unnið
með. Þetta gekk
ágætlega. “
aftur komin í deildarstjórastarfið. Fyrir
sjálfri mér er ég nú fyrst búin að ljúka
endurhæfingunni. Ég er orðin örugg um
að fullum bata sé náð, búin að vinna á
veikindunum og er í rauninni mörgum
sinnum sterkari og betur sett en ég var
nokkurn tíma áður. Framtíðin fyrir mig og
dætur mínar, sem eru á unglingsaldri, er
björt.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir