Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Qupperneq 31
31www.virk.is
VIRK
kvarða (e. fidelity scale), sem er mikilvægt
verkfæri til að meta hversu nákvæmlega er
unnið eftir verklagi IPS. Þarna kom einnig
í ljós mikilvægi þess að hafa ákveðinn
atvinnuráðgjafa sem hefur það hlutverk
að vera í tengslum við atvinnurekendur og
fylgja einstaklingum eftir á vinnumarkaði.
Atvinnuráðgjafinn er einnig í góðu samstarfi
við heilbrigðisstarfsmenn viðkomandi
einstaklings. Í kjölfar ferðarinnar var
verklag sem vinnuhópurinn hafði sett upp
skoðað með hliðsjón af tryggðarskalanum.
Ljóst var að samstarfsverkefni VIRK og LSH
fékk ekki háa einkunn þegar það var metið
út frá tryggðarskalanum en samkvæmt
upplýsingum frá Danmörku eru slíkar
niðurstöður ekki óalgengar við fyrstu
innleiðingu. Vinnuhópnum fannst mest
aðkallandi að sérstakur atvinnuráðgjafi
fengist til liðs við verkefnið til að það gæti
komist á flug.
Haustið 2013 var atvinnuráðgjafi ráðinn í
hlutastarf til reynslu í tiltekinn tíma. Um
áramótin hafði atvinnuráðgjafinn fundað
með stjórnendum yfir 50 fyrirtækja þar
sem hann kynnti verkefnið og kannaði
áhuga þeirra á þátttöku almennt. Einnig
kannaði hann hvort möguleikar væru á
störfum fyrir ákveðna einstaklinga út frá
þeirra áhugasviðum. Tekið skal fram að
atvinnuráðgjafinn þjónustar ekki eingöngu
einstaklinga í IPS-verkefninu heldur einnig
aðra einstaklinga með skerta starfsgetu.
Það kom aðstandendum verkefnisins
skemmtilega á óvart hve vel flest
fyrirtækin tóku atvinnuráðgjafanum. Fimm
einstaklingar í IPS-verkefninu hafa fengið
tilboð um starf síðan atvinnuráðgjafinn
hóf störf en nú eru um 10 einstaklingar
þátttakendur í verkefninu.
Lærdómur fram að þessu
Sá tími sem verkefnið hefur staðið yfir
hefur verið mjög lærdómsríkur fyrir þá
sem að verkefninu standa og tel ég best að
nefna nokkur dæmi því til staðfestingar:
Atvinnuráðgjafi fékk vitneskju um 1.
spennandi starf hjá stóru fyrirtæki.
Starfsfólk á Laugarásvegi mundi
eftir einstaklingi sem hafði áhuga á
svipuðu starfsumhverfi og var hann
strax tengdur fyrirtækinu. Þessi
einstaklingur hafði ekki verið hluti af
IPS-verkefninu og var því ekki búið
að vinna með honum það grunnmat
sem almennt er gert. Fljótt kom í
ljós að einstaklingurinn fann sig
ekki í starfinu og hætti. Þetta kom
yfirmönnum hjá fyrirtækinu á óvart,
en þeir sýndu því skilning að þetta
væri niðurstaðan. Af þessu dæmi
sáum við mikilvægi þess að fyrirtækin
væru vel upplýst og meðvituð um
alvarleika þeirra veikinda sem þessir
einstaklingar glíma við. Einnig sýndi
þessi reynsla að gerð grunnmats
með einstaklingi er nauðsynleg áður
en farið er af stað í ráðningarferli.
Einstaklingur fékk vinnu sem hann 2.
var mjög ánægður með og var
fyrirtækið einnig mjög ánægt með
störf hans. Hluti starfsins átti sér
stað utandyra. Eftir nokkrar vikur
í starfi nefndi einstaklingurinn við
starfsmenn á Laugarásvegi að sér
væri oft kalt þegar hann þyrfti að
vinna úti. Þessum upplýsingum var
strax komið til atvinnuráðgjafans
sem hélt fund með einstaklingi og
yfirmanni. Yfirmaður brást vel við og
útvegaði einstaklingi hlífðarfatnað
til útivinnunnar. Þótti þetta sjálfsagt
en hafði ekki verið gert þar sem
einstaklingur hafði ekki nefnt það
við yfirmenn. Þarna sýndi sig
mikilvægi stuðnings og eftirfylgdar
atvinnuráðgjafans, sem mikil áhersla
er lögð á í IPS-aðferðinni.
Einstaklingur sem hafði glímt við 3.
erfiðan geðsjúkdóm átti sér draum
um að komast í vinnu hjá tilteknu
tölvufyrirtæki, sem mörgum þótti
fjarlægur draumur. Viðkomandi
hafði ágæta tölvukunnáttu en enga
menntun á því sviði. Ákveðið var
að styðja viðkomandi einstakling
til styttra náms í forritun. Námið
gekk mjög vel og í framhaldi af því
fékk einstaklingurinn vinnu hjá því
fyrirtæki sem hann hafði dreymt um.
Í þessu dæmi var vilja einstaklings
á leið til atvinnu fylgt í hvívetna, líkt
og IPS-aðferðin leggur áherslu á og
skilaði það góðum árangri.
Einstaklingur sem hafði verið í 4.
tengslum við ráðgjafa VIRK þar
sem unnið var grunnmat fór sjálfur
til atvinnurekanda og var ráðinn í
hálfa stöðu. Ráðgjafi VIRK heldur
sínum stuðningi áfram ásamt IPS-
teyminu. Ef upp koma vandamál,
þá grípa atvinnuráðgjafinn eða aðrir
úr teyminu inn í og aðstoða við að
finna lausnir þannig að vinnan geti
gengið snurðulaust fyrir sig.
Einstaklingur sem hefur glímt við 5.
þunga, geðræna erfiðleika sagði
frá því í grunnmatsviðtali að hann
langaði að vinna við tölvur en hann
hafði ágæta kunnáttu á því sviði.
Eftir að atvinnuráðgjafi hafði haft
samband við nokkur tölvufyrirtæki
á höfuðborgarsvæðinu var við-
komandi ráðinn í hálfa stöðu hjá
einu þessara fyrirtækja. Viðkomandi
hefur þurft að taka sér leyfi frá
vinnu vegna veikinda í nokkur
skipti en þá í góðri samvinnu
við vinnuveitanda. Með góðum
stuðningi, aðhaldsviðtölum og
hvatningu hefur gengið vel.
Þessi dæmi sýna tilfelli þar sem hlutirnir
hafa gengið vel, svo og önnur þar sem
ekki hefur gengið eins vel. Af þeim höfum
við lært að styðja þarf við mikilvægi þess
að fylgja því verklagi sem lagt er upp
með samkvæmt IPS-aðferðinni. Það
hefur tekið langan tíma að byggja upp
grunninn að verkefninu og enn er langt
í land til að hægt sé að segja að unnið
sé 100% eftir IPS-aðferðinni, þó hún sé
höfð að leiðarljósi. Mikilvægt er að þróa
þessa aðferð áfram í íslensku samfélagi
svo hægt sé að bjóða einstaklingum með
þungar geðraskanir upp á bestu mögu-
legu þjónustu í starfsendurhæfingu.
Heimildir:
Sveina B. Jónsdóttir, IPS er árangursrík
aðferð í starfsendurhæfingu.
Ársrit um starfsendurhæfingu.
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður 2013.
Centre for Mental Health. 2012. Imple-
menting what works, briefing 44. UK.
Sveina Berglind Jónsdóttir deildarstjóri matsdeildar VIRK