Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Side 33
33www.virk.is
VIÐTAL
Selfossi og Akranesi. Flestir eru í hundrað
prósent vinnu,“ segir Ingibjörg Steinunn.
„Það er tiltölulega stutt síðan ég kynntist
starfsemi VIRK að ráði og mér finnst hún
afskaplega jákvæð. Það er mjög gott
að hægt sé að virkja fólk sem ella kynni
að detta út af vinnumarkaði. Raunar er
frábært að slík starfsemi skuli vera til.
Þetta er gott fyrir alla.
Þeir eiginleikar starfsmanna sem ég legg
mikið upp úr eru að fólk sé áhugasamt,
jákvætt og hafi mikinn vilja til að
leggja sig fram. Við höfum verið með
starfsmenn með skerta starfsorku og líka
fullfrískt fólk í vinnu. Þeir hafa komið frá
Starfsorku, Vinnumálastofnun og VIRK.
Einstaklingarnir hafa reynst jafn misjafnir
og þeir eru margir og verið misjafnlega
hæfir í þau störf sem við höfum haft upp
á að bjóða.“
Hvernig er undirbúningi háttað fyrir
komu þessara einstaklinga?
„Við fáum góðar upplýsingar um þann
einstakling sem er að koma til okkar á
vinnusamning. Fyrirtækið Sinnum ehf.
hefur verið milligönguaðili fyrir fólk með
skerta starfsorku sem kemur í gegnum
vinnusamninga hjá VIRK en með styrk frá
Tryggingastofnun. Sinnum hefur upplýst
okkur vel um aðstæður, svo og nánustu
aðstandendur sem hafa í sumum tilfellum
verið mjög hjálplegir.“
Er nauðsynlegt að undirbúa allt
samstarfsfólkið?
„Þetta er viðkvæmt mál. Ég er ekki viss um
að alltaf þurfi mikinn undirbúning. Í raun
er bara um að ræða nýtt fólk sem kemur
til starfa. Í umræddum tilvikum veltum
við þessu dálítið fyrir okkur. Niðurstaðan
varð að aðeins deildarstjórar og nánustu
samstarfsmenn voru upplýstir um
samninginn. Þetta hefur gefist vel.
Mikilvægt er að vitneskja sé fyrir hendi
hjá þessum aðilum þegar um er að ræða
fötlun eða veikindi, sem og hvernig þeir eigi
að bera sig að og bregðast við ef eitthvað
kemur upp á. Deildarstjórar og nánasta
samstarfsfólk þarf að vera meðvitað um
veikleika og styrkleika þessara einstak-
linga. Einnig er mikilvægt að nánasti
yfirmaður sé í góðu sambandi við náinn
aðstandanda. Góð samskipti geta skipt öllu
máli. Virðing og traust þurfa að ríkja á milli
allra aðila svo viðkomandi einstaklingur,
sem er til dæmis að koma frá VIRK, upplifi
sig eins og aðrir, sem eru að hefja störf við
eðlilegar kringumstæður.“
Fer meiri tími í að undirbúa komu svona
einstaklings til vinnu en heilbrigðs
einstaklings sem er nýráðinn til starfa?
„Ég myndi ekki segja það. Aðalmunurinn
er að maður þarf að útskýra fyrir nánustu
yfirmönnum og starfsmönnum í hverju til
dæmis fötlunin eða veikindin felast, ef um
er að ræða skerta starfsgetu.“
Olweusaráætlunin leiðarljós
Er eitthvað í stefnu fyrirtækisins
sem hvetur það til að taka á móti
einstaklingum með skerta starfsgetu
í vinnuprófun, á vinnusamning eða í
vinnu?
„Starfsmannastefnan okkar á líka við fólk
með skerta starfsgetu. Hún er mótuð
þannig að hún stuðli að öryggi, virðingu,
hjálpsemi og trausti meðal starfsmanna,
svo og góðri samvinnu starfsfólks og
góðum vinnuanda. Lögð er áhersla á að
starfsfólk vinni sem ein góð liðsheild. Að það
vinni vel og því líði vel og hafi góða vinnuað-
stöðu. Við leggjum áherslu á að jafnréttis sé
gætt. Einnig erum við með eineltisáætlun,
erum raunar fyrsta íslenska fyrirtækið
sem hefur haft Olweusaráætlunina gegn
einelti að leiðarljósi. Það er eindregin
stefna Prentmets að starfsmenn sýni
samstarfsfólki sínu alltaf kurteisi og