Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Page 59

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Page 59
59www.virk.is AÐSEND GREIN Algengar geðraskanir og endurkoma til vinnu Slæm geðheilsa er ein stærsta áskorun vinnumarkaðarins í mörgum vestrænum löndum (OECD 2012). Tuttugu prósent fólks á vinnualdri þjást af algengum geðröskunum (OECD 2012; Eaton, Martins, Nestadt, Bienvenu, Clarke og Alexandre 2008) sem eru vægt eða miðlungsvægt þunglyndi, kvíði og aðlögunarraskanir (s.s. andleg vanlíðan). Afleiðingar algengra geðraskana eru ekki eingöngu skert lífsgæði (Eriksson, Starrin og Janson 2008), heldur líka fjarvera vegna veikinda og skert starfsgeta (Harvey, Henderson, Lelliott og Hotopf 2009; Sanderson og Andrews 2006; Wang, Adair og Patten 2006). Auk þessa hafa algengar geðraskanir alvarleg áhrif á vinnugetu og framleiðni (Lerner og Henke 2008) sem kostar atvinnulífið í Stóra Bretlandi allt að 23,5 milljarða punda á ári (The Sainsbury Centre for Mental Health 2007) og 20 milljarða evra á ári í Hollandi (Hartman, Kartopawiro og Jansen 2009). Fram að þessu hafa inngrip fyrir starfsfólk með algengar geðraskanir aðallega beinst að því að auðvelda þeim sem eru fjarverandi vegna algengra geðraskana að snúa aftur til vinnu. Í flestum íhlutunum hafa líf–sál–félagsleg sjónarmið verið höfð að leiðarljósi en með því er viðurkennt mikilvægi þess að taka tillit til annarra þátta en líffræðilegra svo sem ýmissa einkenna algengra geðraskana (van der Klink, Blonk, Schene og van Dijk 2003; Blonk, Brenninkmeijer, Lagerveld og Houtman 2006; van Oostrom, van Mechelen, Terluin, de Vet, Knol og Anema 2010; Hees, de Vries, Koeter og Schene 2012; Lagerveld, Blonk, Brenninkmeijer, Wijngaards-de Meij og Schaufeli 2012). Rannsóknir hafa sýnt að endurkoma til vinnu kemur ekki að sjálfu sér í kjölfarið á minnkun einkenna (Buist-Bouwman, Ormel, de Graaf og Vollebergh 2004; Pachoud, Plagnol og Leplege 2010). Af þessum sökum virðist bið eftir að einkenni hverfi alveg, þegar reynd er endurkoma til vinnu (ETV), ekki líkleg leið til árangurs. Því hafa íhlutanir til að auðvelda starfsmönnum ETV, eftir fjarveru vegna algengra geðraskana, smám saman þróast í stigvaxandi ETV, þrátt fyrir að bata sé ekki að fullu náð. Í þessum íhlutunum er lögð áhersla á sálræna þætti (s.s. tilfinningar og hugarstarf) og félagslega þætti (s.s. fjölskyldutengsl, vini og ekki síst yfirmenn og samstarfsfólk) sem gegna mikilvægu hlutverki í að auðvelda fólki ETV. Nokkrar slembnar samanburðarrannsóknir hafa verið gerðar sem meta íhlutanir sem eiga að auðvelda starfsfólki ETV eftir fjarveru vegna algengra geðraskana. Margar þessara rannsókna voru gerðar í Hollandi og almennt virðist sem árangursríkar íhlutanir hafi verið þær sem áttu sér stað í nánu samstarfi við vinnustaðinn. Sem dæmi má nefna virkniaukandi íhlutun sem þróuð var af van der Klink og félögum (2003) til að auðvelda einstaklingum með aðlögunarraskanir ETV (van der Klink o.fl. 2003). Íhlutuninni var stjórnað af sérfræðingum í atvinnusjúkdómum (e. occupational physicians) og var áhersla lögð á að virkja þátttakendur til að endurheimta stjórn á eigin lífi, bæði heima og í vinnu og til að fylgja áætlun um stigvaxandi ETV. Íhlutunin reyndist árangursrík við að minnka þann tíma sem tók að snúa aftur til vinnu. Þessi íhlutun hefur nú verið samþætt leiðbeiningum um „Umsjón sérfræðinga í atvinnusjúkdómum með starfsmönnum með geðræn vandamál“ frá félagi sérfræðinga í atvinnusjúkdómum í Hollandi (van der Klink 2007). Blonk og félagar (2006) komust að þeirri niðurstöðu að stutt vinnutengd íhlutun frá þjálfuðum atvinnuráðgjöfum, sem fólst í streitustjórnun og ráðgjöf um stigvaxandi ETV, væri árangursríkari við að stytta tímann til ETV en hugræn atferlismeðferð hjá vönum sálfræðingum eða engin meðferð hjá samanburðarhópnum (Blonk o.fl. 2006). Niðurstöður íhlutunar sem veitt var af heilbrigðisstarfsfólki með minni tengingu við vinnustaðinn sýndu ekki sama árangur. Til dæmis notuðu Brouwers og félagar (2006) sömu aðferðarfræði við íhlutun, sem þróuð var af van der Klink, hjá sambærilegu þýði (þ.e. starfsmönnum með minniháttar geðraskanir), en létu félagsráðgjafa sjá um íhlutunina (Brouwers, Tiemens, Terluin og Verhaak 2007). Niðurstöður sýndu ekki betri árangur við ETV hjá íhlutunarhópi en hjá samanburðarhópi. Niðurstöður Bakker og félaga (2007) sýndu ekki að árangur við ETV væri meiri í samanborið við hefðbundna meðferð, þó að heim- ilislæknir fylgdist með lausnarmiðuðu ferli sjúkraskrifaðra starfsmanna með streitutengdar geðraskanir (Bakker, van Marwijk, Terluin, Anema, van Mechelen og Stalman 2010). Endurtekin veikindafjarvera og horfur eftir endurkomu til vinnu Óháð íhlutun koma um 70% starfs- manna í veikindafjarveru vegna algengra geðraskana aftur til starfa innan árs, en 20% til 30% þeirra upplifa endurtekna veikindafjarveru eftir ETV (Koopmans, Bultmann, Roelen, Hoedeman, van der Klink og Groothoff 2011; Koopmans, Roelen og Groothoff 2008). Endurtekning algengra geðraskana er ekki það sama og endurtekin veikindafjarvera vegna þeirra, vegna þess að algengar geðraskanir leiða ekki alltaf til veikindafjarveru. Delphi- rannsókn Norder og félaga (2012) sýndi að af þeim 69 forspárgildum fyrir endurtekið þunglyndi sem er að finna í fræðigreinum, töldu sérfræðingar í atvinnusjúkdómum og vísindamenn með sérþekkingu á ETV og geðheilsu, einungis 21 þeirra hafa líklegt forspárgildi fyrir endurtekna veikindafjarveru vegna þunglyndis (Norder, Roelen, van Rhenen, Buitenhuis, Bultmann og Anema 2012). Því er þörf fyrir fleiri rannsóknir sem fjalla um hvernig megi fyrirbyggja endurtekna veikindafjarveru og ná viðvarandi ETV hjá starfsfólki með algengar geðraskanir. Starfsmenn lögðu einnig áherslu á mikilvægi góðrar ráðgjafar eftir ETV. Í viðtalsrannsókn Noordik og félaga (2011) kom í ljós að starfsmenn sem komu aftur í hlutavinnu eftir veikindafjarveru vegna algengra geðraskana áttu á brattann að sækja vegna lítils samskiptastuðnings á vinnustað og við innleiðingu lausna vegna vinnutengdra hindrana (Noordik, Nieuwenhuijsen, Varekamp, van der Klink og van Dijk 2011). „Almennt virðist sem árangursríkar íhlutanir hafi verið þær sem áttu sér stað í nánu samstarfi við vinnustaðinn.“

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.