Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Qupperneq 61

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Qupperneq 61
61www.virk.is AÐSEND GREIN Hospital Anxiety and Depression Scale (HADS)“, „The Depression, Anxiety and Distress Scale (DASS)“, „The Four- Dimension Symptom Questionnaire (4DSQ)“ og „The Symptom Checklist-90“. Í öðrum rannsóknum hafa algengar geðraskanir verið greindar af þjálfuðum heilbrigðisstarfsmönnum. Hingað til hafa rannsóknir sjaldan stuðst við sérstök greiningarviðtöl við þátttakendur (t.d. „The Composite International Diagnostic Interview“), þó svo það sé góð aðferð til að ná fram nákvæmri sjúkdómsgreiningu og til að ná yfir allt svið geðraskana innan ICD-10 og DSM-IV (Aalto, Elovainio, Kivimäki, Uutela og Pirkola 2012). Þessi fjölbreytni í skilgreiningum og vali á aðferðum til að staðfesta greiningu á algengum geðröskunum er vandamál, því hún torveldar beinan samanburð rannsókna. Framtíðarrannsóknir nytu góðs af því að áhrif íhlutunar væru greind fyrir hverja tegund algengra geðraskana. Slíkar greiningar krefjast stærri úrtaka til að hægt sé að greina undirflokka algengra geðraskana. Engu að síður er nauðsynlegt að hafa sameiginlegan skilning á því hvaða aðferðir á að nota til greiningar á algengum geðröskunum og hvaða greiningar- eða mælitæki eru réttmæt og áreiðanleg. Samanburður á rannsóknum á ETV og innleiðing ETV íhlutana í ólíkum löndum Rannsókn Anema og félaga (2009) sýndi að félagspólitískt umhverfi er ólíkt milli landa meðal annars þegar kemur að fjarvistarstefnum vegna veikinda. Þetta hefur mjög mikil áhrif á möguleika á að bera rannsóknir á ETV saman milli landa (Anema, Schellart, Cassidy, Loisel, Veerman og van der Beek 2009). Í Hollandi greiðir vinnuveitandinn veikindalaun í tvö ár án tillits til orsaka veikinda og honum er skylt að hafa samráð við sérfræðing í atvinnusjúkdómum í öllu ferli veikindafjarverunnar. Ábyrgð vinnuveitenda í ETV-ferlinu og mikilvægt hlutverk sérfræðinga í atvinnusjúkdómum í þessu ferli skapaði aðstæður þar sem hagsmunaaðilar voru tilbúnir til að fjárfesta í íhlutunum á borð við SHARP-í vinnunni. Í löndum þar sem (a) veikinda- fjarvera er einungis bætt þegar hún er af völdum vinnuslyss, (b) bætur eru greiddar af ríkinu (c) sérfræðingar í atvinnusjúkdómum hafa ekki það hlutverk að leiðbeina starfsmönnum í ETV- ferlinu, er íhlutunin SHARP-í vinnunni í núverandi útfærslu ekki möguleg. Þetta þýðir að skilvirkni íhlutunarinnar SHARP-í vinnunni í hollensku samhengi tryggir ekki skilvirkni sömu íhlutunar í öðru samhengi. Hugsanlega er hægt að auðvelda yfirfærslu íhlutana í annað samhengi með notkun fræðilegra líkana innan vísinda (e. implementation science). Eitt slíkt líkan er „The Consolidated Framework for Implementation Research (CIFR)“, sem býður upp á alhliða fræðilegan ramma til að greina hvort hægt er að innleiða tiltekna íhlutun í öðru samhengi og hvaða aðgerðir/ aðlaganir eru nauðsynlegar til að tryggja árangursríka innleiðingu (Damschroder, Aron, Keith, Kirsh, Alexander og Lowery 2009). Áherslur á viðeigandi útkomumælingar (outcome measures) fyrir alla hagsmunaaðila Í mörgum íhlutunarrannsóknum tengdum ETV, þar á meðal okkar rannsókn, verður sjónarhornið kostnaðartengt (e. cost driven) þegar megináherslan er lögð á að fækka veikindadögum. Með þessu virðast rannsakendur gera ráð fyrir að lækkun kostnaðar vegna fjarveru sé helsti hvati þess að talað sé um farsæla ETV og þar með um árangursríka íhlutun. Hins vegar sýndu Hees og félagar (2012) fram á að ólíkir hagsmunaaðilar telja mismunandi útkomur mikilvægar fyrir farsæla ETV (Hees, Nieuwenhuijsen, Koeter, Bultmann og Schene 2012). Hees og félagar gerðu Delphi-rannsókn á því hvað mismunandi hagsmunaaðilar í Hollandi skilgreindu sem farsæla ETV; sérfræðingar í atvinnusjúkdómum (sem leiðbeina starfsmönnum með algengrar geðraskanir í veikindafjarveru), yfirmenn (sem eru fulltrúar vinnuveitenda sem greiða veikindalaunin) og starfsmenn með algengar geðraskanir. Sérfræðingar í atvinnusjúkdómum og yfirmenn töldu viðvarandi bata (þ.e. engin afturför með endurteknum veikindafjarvistum) og virkni í vinnunni, vera mikilvægustu útkomurnar fyrir farsæla ETV, meðan starfsmenn töldu það vera starfsánægju og andlegt ástand (þ.e. getu til að bera kennsl á streitueinkenni og hafa innsýn og hæfni til að takast á við sálræna berskjöldun). Í framtíðarrannsóknum þarf að taka til greina ólíkar skoðanir hagsmunaaðila á því hvað telst vera farsæl ETV, til að fá heildar- sýn yfir mikilvægar niðurstöður íhlutana. Til dæmis hefur vinnuvirkni starfsmanna með algengar geðraskanir sjaldan verið rannsökuð og réttmæt mælitæki til að mæla vinnuvirkni þessara einstaklinga skortir (Abma, van der Klink, Terwee, Amick og Bultmann 2012). Í rannsókninni SHARP-í vinnunni var vinnuvirkni metin með „The Work-Role Functioning Questionnaire (WRFQ)“ (Abma, van der Klink og Bultmann 2013; Abma, Amick, Brouwer, van der Klink og Bultmann 2012) eða spurningalista um vinnuvirkni sem var auka útkomumæling. Þrátt fyrir að enginn munur hafi mælst á WRFQ-niðurstöðum milli rannsóknarhópanna tveggja, þá sýndu niðurstöður að vinnuvirkni starfsmanna eftir ETV batnaði meðan á 12 mánaða eftirfylgni stóð. Sumir þættir tengdir vinnuvirkni sem hagsmunaaðilar í rannsókn Hees og félaga (2012) töldu mikilvæga eru ekki metnir í mælitækjum fyrir vinnuvirkni sem til eru í dag, til dæmis hvort starfsmaðurinn uppfyllir þær vinnukröfur sem samið var um við vinnuveitandann (Hees, Nieuwenhuijsen o.fl. 2012). Rannsóknir í framtíðinni ættu að bæta við upplýsingum um vinnuvirkni sem hagsmunaaðilar telja mikilvægar og staðfesta þarf réttmæti þessara mælitækja fyrir starfsmenn með algengar geðraskanir. Niðurstöður rannsókna Hees og félaga og okkar eigin rannsókn styðja ekki við notkun á „einkennum geðrænna sjúkdóma“ sem útkomumælingu í fram- tíðarrannsóknum á áhrifum íhlutuna til að draga úr endurteknum fjarvistum vegna veikinda hjá starfsmönnum með algengar geðraskanir. Í rannsókninni SHARP-í vinnunni voru einkenni geð- rænna vandamála mæld sem auka- útkomumæling. Rannsóknin sýndi engan mun á íhlutunar- og samanburðarhópum þegar kom að bættri geðheilsu. Þessi niðurstaða hefur ítrekað komið fram í íhlutunarrannsóknum sem miða að því að auðvelda ETV fyrir starfsmenn með
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.