Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Side 38
38 www.virk.is
UPPLÝSINGAR
G
R
E
IN
Virkur
vinnustaður
Þróunarverkefni VIRK
Jónína Waagfjörð deildarstjóri forvarna og rannsókna hjá VIRK
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður fór af stað
með þróunarverkefnið Virkur vinnustaður í
samvinnu við atvinnurekendur árið 2011 en
verkefnið snérist um forvarnir á vinnustað og
endurkomu starfsfólks til vinnu eftir veikindi
eða slys. Markmið verkefnisins, sem stóð yfir
frá hausti 2011-2014, var að veita stjórn-
endum og starfsmönnum fræðslu og aðstoð við
að móta og innleiða stefnu um velferð og eftir-
lit með fjarveru. Vinnustaðir, bæði á almenn-
um og opinberum vinnumarkaði, tóku þátt í
verkefninu og var heildarfjöldi starfsmanna á
þátttökuvinnustöðum um 1400. Í eftirfarandi
grein verður fjallað um helstu niðurstöður þessa
verkefnis. Mikilvægt er að hafa í huga að fjöldi
og gerð fyrirtækja og stofnanna sem tók þátt í
verkefninu var takmarkaður og því er ekki hægt
að yfirfæra niðurstöður almennt yfir á opinberan
og almennan vinnumarkað. Frekari kynning á
niðurstöðum verður síðan á sérstöku málþingi
um velferð, fjarvistir og endurkomu til vinnu
sem haldið verður 5. maí á Grand Hótel.
Áhrifarík fjarverustjórnun er eitt af þeim tækjum sem hægt
er að nýta til að hafa áhrif á hvernig tekið er á skammtíma-
og langtímaveikindum á vinnustaðnum. Finna þarf jafnvægi
milli þess að veita starfsmönnum sem glíma við heilsubrest
stuðning til að auðvelda þeim veruna í vinnunni, styðja við
endurkomu til vinnu og leysa þann vanda sem skapast
getur á vinnustaðnum vegna fjarveru þeirra (s.s. varðandi
breytingar á verkefnum, álag á annað starfsfólk, afleysingar
o.s.frv.). Ýmsir þættir geta haft afgerandi áhrif á það hvort
einstaklingar snúa aftur til vinnu eftir veikindi eða slys. Þessir
þættir eru til dæmis persónueinkenni starfsmannsins (þ.e.
lýðfræðileg og sálfélagsleg einkenni), hvernig læknisfræðilegri
meðferð er háttað sem og þeirri starfsendurhæfingu sem
einstaklingurinn tekur þátt í. Einnig hafa andlegar og
líkamlegar kröfur starfsins áhrif, aðstæður á vinnustaðnum,
launagreiðslur og bótaréttur og síðan aðrir víðtækari þættir
eins og aðstæður á vinnumarkaði og þau lög og reglur sem
þar ríkja (Foreman, P., Murphy, G. & Swerissen, H. 2006,
Ingibjörg Þórhallsdóttir 2012).
Haustið 2011 fór VIRK Starfsendurhæfingarsjóður af stað með
mjög metnaðarfullt þriggja ára þróunarverkefni um forvarnir
á vinnustað og endurkomu einstaklinga til vinnu eftir veikindi
eða slys (Svava Jónsdóttir 2012). VIRK var umsjónar- og
ábyrgðaraðili verkefnisins en fulltrúar aðila vinnumarkaðarins
sátu í stýrihóp þess. Kannaðar voru og prófaðar leiðir sem
aukið gætu vellíðan starfsmanna á vinnustaðnum, minnkað
fjarveru og samhliða því stuðningur og sveigjanleiki gagnvart
einstaklingum við endurkomu til vinnu eftir langtíma veikindi
aukinn. Verkefninu lauk í desember 2014.