Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Page 43
43www.virk.is
GREIN
meðaltalstölur og sýnir taflan tölur fyrir öll
þátttökufyrirtækin saman og einnig tölur
fyrir opinbera og einkarekna vinnustaði.
Mikilvægt er að hafa í huga, þegar skoð-
aðar eru niðurstöður frá söfnun lykiltalna
hjá þátttökufyrirtækjum, að fjöldi og
gerð fyrirtækja og stofnanna sem tóku
þátt í verkefninu Virkur vinnustaður var
takmarkaður og því er ekki hægt að
yfirfæra tölurnar almennt yfir á opinberan
og almennan vinnumarkað. Samkvæmt
þeim tölum sem safnað var í verkefninu
þá var hlutfall fjarveru hærra á opinberum
vinnustöðum í samanburði við einkarekna
vinnustaði öll árin sem verkefnið stóð
yfir (tafla 4). Starfsmenn á opinberum
vinnustöðum eru einnig fleiri daga frá að
meðaltali vegna veikinda barna en þeir
sem vinna á einkareknum vinnustöðum.
Þetta á einnig við um tíðni veikinda en árið
2014 þá voru starfsmenn á opinberum
vinnustöðum rúmlega 5 sinnum veikir yfir
árið í samanburði við rúmlega 3 sinnum
á einkareknu vinnustöðunum. Hafa ber
í huga að hlutfall kvenna var mun hærra
á þeim opinberu vinnustöðum sem tóku
þátt í verkefninu í samanburði við þá
einkareknu. Mikilvægt er að safna tíðni
fjarveru því há tíðni bendir til þess að um
vandamál vegna skammtímafjarveru sé
„Fjarverustefnan leiddi til
þess að unnið var kerfis-
bundið með þá einstak-
linga sem voru í langtíma-
fjarveru. Ýmsar leiðir voru
notaðar til að hjálpa starfs-
mönnum og styðja þá til
endurkomu til vinnu.“
Tafla 4
Hlutfall fjarveru 7,6% 3,6% 6,2% 7,3% 3,8% 6,0% 7,6% 3,8% 6,3%
Fjöldi daga 19,8 9,4 16,2 19,0 9,9 15,7 19,7 9,9 16,3
Meðaltíðni fjarveru á starfsmann 5,2 2,9 4,3 5,4 3,2 4,5 5,3 3,4 4,6
Skammtímafjarvera (<5 dagar) 2,9% 1,8% 2,5% 3,3% 1,7% 2,7% 3,0% 2,1% 2,7%
Fjöldi daga 7,5 4,7 6,5 8,6 4,4 7,0 7,8 5,5 7,0
Miðlungsfjarvera (6-20 dagar) 0,8% 0,5% 0,7% 0,9% 0,6% 0,8% 0,8% 0,4% 0,7%
Fjöldi daga 2,1 1,3 1,8 2,3 1,6 2,1 2,1 1,0 1,8
Langtímafjarvera (>20 dagar) 2,8% 0,9% 2,1% 2,1% 1,1% 1,8% 3,0% 0,9% 2,3%
Fjöldi daga 7,3 2,3 5,5 5,5 2,9 4,7 7,8 2,3 6,0
Fjarvera vegna veikra barna 0,8% 0,4% 0,6% 0,9% 0,4% 0,7% 0,8% 0,4% 0,7%
Fjöldi daga 2,1 1,0 1,6 2,3 1,0 1,8 2,1 1,0 1,8
Opinberir
vinnu-
staðir
Opinberir
vinnu-
staðir
Opinberir
vinnu-
staðir
Einkareknir
vinnu-
staðir
Einkareknir
vinnu-
staðir
Einkareknir
vinnu-
staðir
Meðaltal
allra
Meðaltal
allra
Meðaltal
allra
2012 2013 2014
Stýrihópur: Talið frá vinstri, Hafdís Guðmundsdóttir, Vigdís Jónsdóttir, Sara Lind Guðbergsdóttir, Jónína Waagförð, Halldór Grönvold og Álfheiður Sívertsen.