Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Page 69
69www.virk.is
UPPLÝSINGAR
mænuskaða, heilaáföll, geðræn vanda-
mál og alvarlega geðsjúkdóma. Fjallað
er m.a. um árangur starfsendurhæfingar
fyrir þessa hópa, mismunandi úrræði og
áherslur í starfsendurhæfingu og ólíka þörf
fyrir stuðning þegar inn á vinnumarkað er
komið. Einnig eru dregnir fram mismun-
andi áhrifaþættir er varða endurkomu
til vinnu eins og persónulegir þættir,
umhverfisþættir, viðhorf vinnuveitenda
og samfélags og innbyggðar kerfislegar
hindranir t.d. hvað varðar framfærslu.
Sérstaklega vakti áhuga minn sá hluti
sem fjallar um hvernig ICF kerfið er notað
í starfsendurhæfingu og við starfsgetumat
á Íslandi en Ása Dóra Konráðsdóttir
sviðsstjóri starfsendurhæfingar hjá VIRK
er meðhöfundur að þeim kafla.
Í þriðja hluta (ICF-Based Functioning
Measurement) er sjónum beint að því
hvernig brúa má bilið frá ICF kerfinu yfir
í klíníska notkun. ICF kjarnasett geta
sagt okkur ,,hvað'' þarf að mæla en
ekki ,,hvernig''. Skoðaðir eru staðlaðir
spurningalistar og þau starfrænu próf
sem þegar eru í notkun og hvernig þau
geta tengst við og mælt mismunandi
ICF þætti. WHODAS 2 er t.d. mælitæki
sem hannað var af WHO til að safna
stöðluðum upplýsingum um starfshæfni
(disabiliy levels) óháð menningarumhverfi.
Mælitækið er hægt að nota bæði í
klínísku umhverfi og til að mæla heilsu
almennings þvert á sjúkdóma. Sagt er
frá þróun WORQ spurningalistans (Work
Rehabilitation Questionnaire). Hann er
frá upphafi hannaður sem matstæki til
nota í starfsendurhæfingu og vísar beint til
allra viðeigandi ICF þátta í kjarnasafni fyrir
starfsendurhæfingu. Hann hentar því vel
til að kortleggja vanda og mæla árangur
endurhæfingarinnar. Mjög áhugavert er
einnig að lesa um svokallaðan Rehab-
Cycle. Það er vinnu- og skráningaraðferð
sem heldur utan um upplýsingar, sam-
ræmir vinnu mismunandi fagstétta sem
vinna saman að starfsendurhæfingu
einstaklings og virkjar einstaklinginn í eigin
markmiðssetningu.
Í fjórða og síðasta hluta (The Way Forward)
er fjallað um þær áskoranir og þau tæki-
færi sem eru framundan en þar bíða mörg
krefjandi verkefni.
Bókin er umfangsmikið upplýsingarit
um málefni starfsendurhæfingar. Hún
er fremur auðlesin fyrir þá sem hafa ein-
hvern grunn í fræðunum eða innsýn í
starfsendurhæfingu en þó vel læsileg fyrir
aðra. Hún ætti að vekja áhuga alls fagfólks
sem vinnur að því að auka lífsgæði þeirra
sem búa við skerta starfsgetu og hafa
áhuga að gera betur. Það gæti sérstaklega
átt við ráðgjafa í starfsendurhæfingu og
fagfólk á endurhæfingarstofnunum og
starfsendurhæfingarstöðvum.
Efni hennar á þó ekki síður við þá sem vinna
að rannsóknum, þróun, stefnumótun og
ákvarðanatöku í þessum málaflokki.
Eftir lestur bókarinnar er það sem stendur
upp úr fyrir mig sem sjúkraþjálfara á
endurhæfingarstofnun og matsstjóra
í matsteymi á vegum VIRK er hvernig
bókin gefur hugmyndir hvernig gera
mætti betur í samvinnu á milli fagaðila.
Það getur hvort sem er átt við innan
sjúkra/endurhæfingarstofnana eða utan.
Ef vandinn er kortlagður í samvinnu við
skjólstæðing og niðurstöður settar fram á
gagnsæjan hátt með markmiðssetningum
og verkaskiptingum fagaðila mætti eflaust
ná betri árangri á styttri tíma þar sem allir
eru að ganga í takt og stefna að sama marki.
Þetta væri eflaust einnig hægt að útfæra til
að bæta samvinnu þar sem einstaklingar
sækja stök úrræði til ótengdra fagaðila en
það er því miður sá raunveruleiki sem
blasir við þeim sem ekki hafa aðgang að
þjónustu starfsendurhæfingarstöðva eða
fjölbreyttum starfsendurhæfingarúrræðum
vegna búsetu. Starfsgetumat Virk
fellur vel að þessari hugmyndafræði
og verður spennandi að sjá hvernig
hægt verður að nýta það til að vinna að
betri samvinnu fagaðila og þannig betri
starfsendurhæfingu.
„Bókin er umfangsmikið
upplýsingarit um málefni
starfsendurhæfingar. Hún er
fremur auðlesin fyrir þá sem
hafa einhvern grunn í fræð-
unum eða innsýn í starfs-
endurhæfingu en þó vel læsi-
leg fyrir aðra. Hún ætti að
vekja áhuga alls fagfólks sem
vinnur að því að auka lífsgæði
þeirra sem búa við skerta
starfsgetu og hafa áhuga að
gera betur.“