Morgunblaðið - 05.10.2019, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
verslunineva
LAUGAVEGUR 26
verslunin.eva
Ý AR AUS VÖ R FRÁ
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Lífið er brattabrekka. Svosungu Stuðmenn ein-hverju sinni og nú geturfólk austur í Taílandi gert
þau orð að sínum. Í höfuðborginni
Bangkok var á dögunum efnt til
keppni í tröppuhlaupi í Bangkok
sem fjömiðlar kynntu sem mikla
áskorun. Sú var líka raunin, því
meira en 150 hlauparar mættu gal-
vaskir á svæðið og kepptu um hver
yrði fyrstur upp hæstu byggingu
borgarinnar sem er 60 hæðir. Þang-
að upp eru 196 metrar og tröpp-
urnar í stigunum 1.096.
Stefnur og straumar mætast
Frá París, þeirri mögnuðu
borg þar sem stefnur og straumar
mætast, berst fréttir um merk
tímamót. Skemmtistaðurinn Moulin
Rouge verður 130 ára á morgun, 6.
október, og er þess minnst með
ýmsu móti. Um þennan stað, Rauðu
mylluna eins og hann heitir upp á
íslensku, hafa spunnist miklar sög-
ur, um hann gerðar kvikmyndir og
fleira skemmtilegt. Allar frásagn-
irnar hafa draumkenndan blæ, eins
og fleira sem franskt er.
Fjölbreytnin er annars ráðandi
í vikuskammti AFP, fréttastof-
unnar frönsku sem segir fréttir úr
víðri veröld. Þaðan barst til dæmis
skemmtileg mynd af handverks-
konu í Víetnam sem óf silkiþræði af
mikilli list. Litadýrðin var ráðandi
rétt eins og á hátíð hinsegin fólks
sem haldin var í höfuðborginni
Hanoi. Frá öðru Asíulandi, Ind-
landi, berast líka áhugaverðar
myndir. Rahul Gandhi, sem lengi
hefur verið áhrifamaður innan Con-
gress- flokksins, var íbygginn á
svip þegar hann gekk að stórri
mynd af sjálfstæðishetjunni, Ma-
hatma Gandhi, en Indverjar minnt-
ust þess sl. miðvikudag, 2. okóber,
að liðin voru 150 ár frá fæðingu
hans.
Föstudagur til framtíðar
Annars eru myndir af fundum
og samkomum þar sem krafist er
aðgerða vegna hlýnunar andrúms-
loftsins mjög áberandi. Þær koma
úr öllum heimshornum og sýna
ungt baráttufólk krefjast aðgerða
af hálfu stjórnvalda. Gleymum því
ekki að umbætur og aðgerðir koma
oft til vegna krafna unga fólksins;
sú hefur verið raunin í mörgum
málaflokkum á öllum tímum. Yfir-
skrift funda vegna loftslagamála að
undanförnu er Föstudagur til fram-
tíðar og hafa mannamót þessi tví-
mælalaust markað skil og aðgerðir
gegn hnattrænni hlýnun eru orðnar
forgangsmál allra þjóða.
Straumur tímans! Álita-
mál til umfjöllunar og
ungt fólk leiðir þróunina.
Litadýrð lífsins í Austur-
löndum fjær. Í París snýst
mylluhjól mannlífsins og
austur í Taílandi er lagt
á brattann.
Víetnam Gulur silkiþráðurinn spunninn af miklu listfengi, en handverkshefðin er afar sterk meðal Víetnama
Fjölbreytni Hinsegin í Hanoi. Indland Rahul Gandhi undir áhrifum annars Gandhi.Tröppugangur Tekið var hressilega á því í Taílandi.
París Rauða myllan er föst stærð.
Heimurinn á haustdögum
AFP
Svíþjóð Ungt fólk þar í landi vill aðgerðir í loftslagsmálum.
Fjölbreytni verður ráðandi á sam-
komu sem efnt verður til í Salnum í
Kópavogi næstkomandi fimmtudag,
10. október, sem er Alþjóðageðheil-
brigðisdagurinn. Efnt var fyrst til
dagskrár á þeim degi árið 1992 og er
markmiðið vekja athygli á geðheil-
brigðismálum, fræða almenning um
geðrækt og geðsjúkdóma og sporna
gegn fordómum í garð geðsjúkra.
Haldið hefur verið upp á daginn hér á
landi frá því 1995.
Alþjóða samtök um geðheilbrigði,
sem upp á ensku heita World Federa-
tion for Mental Health, og starfa á
vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unarinnar (WHO), ákveða árlega mál-
efni dagsins. Í ár er markmið dagsins
um allan heim að vekja athygli á mik-
ilvægi sjálfsvígsforvarna og gildi for-
varnastarfs í að hjálpa og styðja fólk
sem þarf á fjölþættri aðstoð að halda
til að komast í gegnum erfiða tíma á
lífsleiðinni.
Dagskráin í Salnum Kópavogi
stendur frá klukkan 17-19. Þar verður
boðið upp á fræðslu, tónlist og
skemmtun sem Gunnar Hansson leik-
ari og útvarpsmaður kynnir. Meðal
gesta verða Guðni Th. Jóhannesson,
forseti Íslands, og Elisa Reid, kona
hans. Kynnt verður á samkomunni
ýmis sú þjónusta sem fólki með and-
lega sjúkdóma stendur til boða.
Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn er 10. október
Fræðsla og forvarnir kynntar
Morgunblaðið/Eggert
Líkamsrækt Hófleg áreynsla á líkamann er gott meðal fyrir sálina.