Morgunblaðið - 05.10.2019, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
F
latey á Breiðafirði er
besta eyja heimsins, að
því er fram kemur á
lista ferðavefsins Big 7
Travel. Í nýjum pistli á
vef þessum er birtur listi yfir eyjar
sem eru áhugaverðir viðkomustaðir
ferðamanna, en þar er byggt á mati
lesenda vefsins, ferðareynslu blaða-
manna og fyrri umfjöllun um stað-
ina.
Eins og kvikmyndatökuver
„Á töfrandi hátt er Flatey eins
og kvikmyndatökuver. Og er það.
Margar kvikmyndir gerast á eyj-
unni, þar ber hæst Ungfrúna góðu
og húsið sem byggð er á smásögu
nóbelsskáldsins Halldórs Laxness.
Friður eyjarinnar er einstakur, tím-
inn stendur í stað,“ segir í umfjöll-
uninni. – Raunar sér Flateyjar stað
mun víðar. Þar gerist til dæmis
sakamálasagan Flateyjargátan eftir
Viktor Arnar Ingólfsson og í barna-
bókinni Flateyjarbréfiunumeftir
Kristjönu Friðbjörnsdóttur er
eyjan sögusviðið. Víðfræg bók, Síð-
asta skip suður, eftir Jökul Jak-
obsson og Baltasar listmálara sem
út kom árið 1964, fjallar um Flatey
og Breiðafjarðareyjar. Sömu staðir
eru til umfjöllunar í Árbók Ferða-
félags Íslands 1989. Þá var kvik-
myndin Brúðguminn sem Baltasar
Kormákur leikstýrði og frumsýnd
var árið 2008 tekin upp í Flatey. Sú
mynd byggðist aftur á leikriti Ant-
ons Tsjekovs, Ívanov.
Sommarøy í þriðja sæti
Næst á eftir Flatey á listanum
var Palawan sem er ein Filippseyja
og í þriðja sæti Sommarøy í Norður-
Noregi. Einnig eru á topp 20-
listanum Bali í Indónesíu, spænska
sólareyjan Ibiza, hin franska Kor-
síka í Miðjarðarhafi, Caprí við Ítalíu
og neðar á listanum eru svo Galapa-
gos-eyjar sem tilheyra Ekvador. All-
ir þessir staðir hafa oft verið til frá-
sagnar í fjölmiðlum, ferðabókum og
kvikmyndum, enda eru eyjar í eðli
sínu áhugaverðar.
Flóð og fjara í Frakklandi
Síðast en ekki síst má nefna
Mont Saint Michel er lítil klettótt ör-
firiseyja í Normandí í Frakklandi. Í
kastala miklum á eynni eru þorp og
fræg klausturkirkja, en leifar mann-
virkja fyrri tíðar ná djúpt niður á
þessum stað sem hefur sl. 40 ár verið
á heimsminjaskrá UNESCO. Gengt
er út í eyjuna af fastalandinu á brú,
en afar mikill munur flóðs og fjöru
er á þessum stað við Ermarsundið.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flatey Í raun heill heimur út af fyrir sig og sviðsmynd úr veröld sem var.
Flatey öðlast frægð
Flatey er best í heimi, segir ferðavefur. Sögusvið bók-
mennta og kvikmynda. Bali, Ibiza, Korsíka, Caprí og
Galapagos eru á sama lista. Mont Saint Michel í
Frakklandi kemur einnig við sögu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Frakkland Mont Saint Michel heitir þessi mikla virkisborg sem er í strand-
héraðinu Normandí. Þekktur viðkomustaður ferðafólks og á lista UNESCO.
AFP
Bali Sinn er siður í landi hverju. Konur ganga á ströndinni til bænastundar
þar sem óhreinindin eru þrifin úr sálinni, að sögn Indónesíufólks.
Á leiðinni!
Golf GTE
5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að finna á www.hekla.is/abyrgd
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
www.hekla.is/volkswagensalur
Jafnvígur á rafmagni & bensíni
Hinn sívinsæli Golf GTE er loks á leið aftur til landsins eftir nokkra bið. Hann nýtir
rafmagn og bensín sem orkugjafa og veitir farþegum sem og ökumanni sportlega
upplifun á einstakan hátt. Þessi rafmagnaði gleðigjafi er á tilboði og við eigum nokkra
til afhendingar fljótlega.
Verð frá
4.390.000,-