Morgunblaðið - 05.10.2019, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Framkvæmdir á vegum íbúðaleigu-
félagsins Bjargs hafa gengið vel á
árinu, að því er Björn Traustason,
framkvæmdastjóri félagsins, tjáði
Morgunblaðinu.
Bjarg íbúðafélag er sjálfseignar-
stofnun rekin án hagnaðarmark-
miða. Félaginu er ætlað að tryggja
tekjulágum einstaklingum og fjöl-
skyldum á vinnumarkaði, sem eru
fullgildir félagsmenn aðildarfélaga
ASÍ eða BSRB, aðgengi að öruggu
íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um
er að ræða svokölluð leiguheimili að
norænni fyrirmynd. Miðað er við að
greiðslubyrði leigu fari ekki yfir
25% af heildartekjum leigjenda, að
teknu tilliti til húsnæðisbóta.
Mikil tímamót urðu hjá félaginu í
júní síðastliðnum, þegar fyrstu
íbúðirnar voru afhentar leigutök-
um. Fyrsti leigjandi félagsins fékk
þá afhenta lyklana að íbúð við Móa-
veg í Grafarvogi. Það var Katrín
Einarsdóttir, einstæð tveggja barna
móðir.
Síðan hafa bæst við 99 fjöl-
skyldur sem hafa fengið afhentar
íbúðir í Reykjavík og á Akranesi.
Bjarg mun afhenda um 150 íbúðir á
árinu og verða þá íbúar í íbúðum
Bjargs orðnir á fjórða hundrað, að
sögn Björns.
Bjarg er með í undirbúningi
framkvæmdir vegna 463 íbúða
Bjarg er með um 400 íbúðir í
byggingu og eru þær við Móaveg í
Grafarvogi, Urðarbrunn og Silfra-
tjörn í Úlfarsárdal, Hallgerðargötu
við Kirkjusand og Hraunbæ ásamt
því að 32 íbúða fjölbýlishús er í
byggingu við Guðmannshaga á
Akureyri.
Þá er Bjarg með í undirbúningi
framkvæmdir vegna 463 íbúða. Þær
íbúðir verða í Bryggjuhverfi í Graf-
arvogi, Gelgjutanga í Vogabyggð, í
Skerjafirði, Hamranesi í Hafnar-
firði, Þorlákshöfn, Sandgerði og
nýju Björkuhverfi á Selfossi.
Björn segir að Bjarg eigi í við-
ræðum við önnur sveitarfélög um
byggingu leiguíbúða en félagið
leggur áherslu á að eiga í góðu
samstarfi við aðila alls staðar á
landinu.
Frekari uppbygging er háð veit-
ingu stofnframlaga sem ríki og
sveitarfélög leggja til verkefna fé-
lagsins. Fjármagn til stofnframlaga
hefur verið af skornum skammti og
umsóknir eru langt umfram fé til
úthlutunar, segir Björn
Í kjarasamningum 2015 var lofað
að 2⁄3 stofnframlaga myndi renna til
íbúða fyrir tekjulægri einstaklinga
og fjölskyldna á vinnumarkaði.
„Það hefur ekki gengið eftir en von-
ir standa til að á haustþingi verði
sú ráðstöfun staðfest,“ segir Björn
Traustason.
Opið fyrir umsóknir
Opið er fyrir umsóknir um íbúð
hjá Bjargi og eru nánari upplýs-
ingar á vef félagsins bjargibuda-
felag.is. Þegar fólk sækir um aðild
fær það númer sem það nýtir þegar
sótt er um ákveðnar íbúðir. Nú
þegar eru á annað þúsund manns á
lista.
Bjarg afhendir 150 íbúðir í ár
Góður gangur í framkvæmdum félagsins Bjarg er með um 400 íbúðir í byggingu á sex stöðum
Morgunblaðið/Hallur Már
Afhending Katrín Einarsdóttir var
fyrsti leigjandi Bjargs. Hún tók við
lyklum að íbúð við Móaveg.
Reykjavíkurborg hefur á undanförnum árum staðið að
þéttingu byggðar á ýmsum reitum í borgarlandinu.
Einn þessara reita liggur við Hraunbæ og Bæjarháls
í Árbæjarhverfi. Borgarráð samþykkti í október í fyrra
að úthluta Íbúðafélaginu Bjargi hses. lóð og byggingar-
rétti á reit C. Byggingarrétturinn heimilar byggingu
fjögurra fjölbýlishúsa á samtals 8.479 fermetrum ofan-
jarðar. Framkvæmdir eru vel á veg komnar eins og efri
myndin sýnir. Neðri myndin sýnir hvernig reiturinn
mun líta út fullbyggður. Í húsunum verða sex stiga-
gangar. Íbúðirnar verða 79 talsins, 2-5 herbergja og
45-100 fermetrar að stærð.
Fasteignaþróunarfélagið Spilda ehf. fékk úthlutaðar
tvær lóðir. Framkvæmdar eru ekki hafnar.
Tölvumynd/Arkþing
Þétting byggðar í Árbæjarhverfi
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
AÐEIN
S
8 SÆT
I
LAUS
Grunur er um salmonellusmit í
ferskum kjúklingi frá Matfugli ehf.
Um er að ræða kjúkling með rekj-
anleikanúmerinu 215-19-35-1-04
sem seldur er undir vörumerkjum
Ali, Bónuss og FK. Neytendur sem
keypt hafa kjúkling með þessu rekj-
anleikanúmeri eru beðnir að skila
honum í viðkomandi verslun eða
beint til Matfugls ehf., Völuteigi 2,
Mosfellsbæ.
Dreifing á afurðum hefur verið
stöðvuð og í samræmi við innra eft-
irlit fyrirtækisins er unnið að inn-
köllun vörunar. Frekari rannsókna
er þörf til þess að staðfesta gruninn
en þangað til þykir fyrirtækinu rétt
að innkalla vöruna.
„Til að varast óróleika hjá neyt-
endum skal það tekið fram að þessi
kjúklingur er hættulaus fari neyt-
endur eftir áprentuðum leiðbein-
ingum,“ segir í tilkynningu.
Morgunblaðið/Eggert
Hænsn Grunur er um salmonellusmit og
var því gripið til innköllunar á vörunni.
Grunur um smit í
ferskum kjúklingi