Morgunblaðið - 05.10.2019, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Fjallað verður um skráningarvinnu
í tengslum við fornleifar á Þingvöll-
um á málþingi sem verður í dag á
gestastofu þjóðgarðsins á Hakinu.
Þar verður sagt frá notkun nýrrar
tækni við vinnslu á útlínum búða-
tófta. Einnig verður rætt um hvern-
ig notkun landupplýsingakerfa og
vefsjáa nýtist til miðlunar upplýs-
inga. Í lok þingsins fer fram form-
leg afhending örnefnaskráningar
þjóðgarðsins til Landmælinga Ís-
lands og svo opnun nýrrar vefsjár
þjóðgarðsins.
Málþingið hefst klukkan 13 og
eftir opnunarávarp Einars Á.E. Sæ-
mundsen þjóðgarðsvarðar flytja er-
indi Margrét Hrönn Hallmundar-
dóttir, Gunnar Grímsson og Kevin
Martin og Oddgeir Isaksen forn-
leifafræðingar.
Farið hefur verið yfir helstu
mannvistarsvæði á Þingvöllum og
þau skráð. Í þinghelginni hafa t.d.
komið í ljós fleiri minjar en áður
hafa verið skráðar. Meðal annars
hefur fengist staðfest að 30 metra
löng rúst, ásamt fleiri húsum, er á
Miðmundartúni sunnan við Þing-
vallabæinn. Af öðrum minjum sem
skráðar hafa verið eru leifar af
fleiri þingbúðum, fundur fornlegra
minja á Spönginni og búið er að
kortleggja herstöð úr seinni heims-
styrjöldinni á Hakinu. Í skráning-
arvinnu hefur athygli einnig verið
beint að Þingvallavatni og mögu-
legum fornleifum neðanvatns.
Nokkrar minjar hafa verið skráðar
undir vatnsyfirborði og komið hafa
vísbendingar um ýmsar óþekktar
minjar í Öxará. sbs@mbl.is
Málþing um fornleifar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þingvellir Staður stórbrotinnar náttúru og ýmissa nýrra uppgötvana.
Börn Árna Böðvarssonar málfræð-
ings og Bjarna Vilhjálmssonar þjóð-
skjalavarðar hafa fært íslensku
þjóðinni að gjöf höfundarrétt að
menningararfinum í útgáfu þeirra
Árna og Bjarna á Þjóðsögum Jóns
Árnasonar. Frú Vigdís Finnboga-
dóttir, fyrrverandi forseti Íslands,
tók við gjafabréfinu sem fulltrúi
þjóðarinnar við athöfn á heimili Vil-
hjálms Bjarnasonar, sonar Bjarna,
hinn 14. september sl. Þar voru
börn þeirra Árna og Bjarna saman-
komin.
Þjóðsögur Jóns Árnasonar voru
gefnar út í sex bindum á árunum
1954-1961. Árni og Bjarni bjuggu
þjóðsögunum búning og gerðu
nafnaskrá sem fylgir þjóðsagna-
safninu.
Í gjafabréfinu kemur m.a. fram
að þeir Árni Böðvarsson og Bjarni
Vilhjálmsson eigi eftir sem áður
sæmdarrétt að útgáfunni. Þeir unnu
að verkinu á árunum 1951-1961.
Flest þau sem færðu þjóðinni gjöf-
ina áttu nokkurn hlut að máli með
prófarkalestri.
„Útgáfan á Þjóðsögum Jóns
Árnasonar var stolt og heiður Árna
og Bjarna, ásamt öðrum og fjöl-
breyttum verkum þeirra.
Þess er óskað að Landsbókasafn
Íslands – Háskólabókasafn, Stofnun
Árna Magnússonar á Íslandi og aðr-
ar þær stofnanir, sem munu varð-
veita og vinna úr þessum menning-
ararfi, njóti stuðnings til að
menningararfurinn varðveitist í hug
íslensku þjóðarinnar,“ segir enn
fremur í gjafabréfinu. gudni@mbl.is
Gáfu þjóðinni höfundarrétt
200 ár Þess er minnst að Jón Árnason þjóðsagnasafnari fæddist árið 1819.
Sex bindi af
Þjóðsögum Jóns
Árnasonar
Á stjórnarskiptafundi hjá Kiwanisklúbbnum Elliða
mánudagskvöldið 30. september afhenti klúbburinn Alz-
heimersamtökunum og Parkinsonsamtökunum styrki
upp á 500.000 krónur til hvors félags. Framkvæmda-
stjóri Alzheimersamtakanna, Vilborg Gunnarsdóttir, og
varaformaður Parkinsonsamtakanna, Ágústa Andersen,
veittu styrkjunum móttöku. Á myndinni eru frá vinstri
Sveinn Heiðar Gunnarsson fráfarandi forseti Elliða,
Ágústa Andersen, varaformaður Parkinsonsamtakanna,
Vilborg Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Alzheim-
ersamtakanna, og Lúðvík Leósson, kjörforseti Elliða og
fráfarandi formaður styrktarnefndar klúbbsins.
Styrktu Alzheimer- og Parkinsonsamtökin
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Stóll á snúningsfæti
í ítölsku nautsleðri
75 cm á breidd
Verð frá 120.000 kr.
Hafáherslur í formennskum Íslands í Norðurskautsráðinu,
Norrænu ráðherranefndinni og samstarfi utanríkisráðherra
Norðurlanda og Eystrasaltsríkja
Norræna húsinu, mánudaginn 7. október 2019 kl. 10.00 – 12.30
Dagskrá:
Kl. 10:00 – 10:10 Afmælisávarp
Björg Thorarensen, prófessor, stjórnarformaður Hafréttarstofnunar
Kl. 10:10 – 10:30 Formennskuáætlun Norðurskautsráðsins og
málefni hafsins
Einar Gunnarsson, sendiherra, formaður embættismannanefndar
Norðurskautsráðsins
Kl. 10:30 – 10:45 Hafið í formennsku Íslands í Norrænu ráðherra-
nefndinni og samstarfi utanríkisráðherra Norðurlanda og
Eystrasaltsríkja
Geir Oddsson, sérfræðingur á Norðurlandadeild utanríkisráðuneytisins
Kl. 10:45 – 11:00 Bláa hagkerfið
Berta Daníelsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans
Kl. 11:00 – 11:15 Aðgerðir gegn plastmengun í norðurhöfum
Magnús Jóhannesson, sérlegur ráðgjafi í norðurskautsmálum í
utanríkisráðuneytinu
Kl. 11:15 – 11:30 Sóknarfæri til orkuskipta í höfnum
Sigríður Ragna Sverrisdóttir, verkefnastjóri, Klappir Grænar Lausnir
Kl. 11:30 – 11:45 Pólkóðinn og öryggi í siglingum á norðurslóðum
Sverrir Konráðsson, fagstjóri í siglingamálum á Samgöngustofu
Að loknum umræðum og fyrirspurnum verður boðið upp á léttar veitingar.
Málstofustjóri: Tómas H. Heiðar, forstöðumaður Hafréttarstofnunar
Hafið bláa hafið
Málstofa í tilefni af 20 ára afmæli
Hafréttarstofnunar Íslands
Allt um sjávarútveg