Morgunblaðið - 05.10.2019, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Toyota Yaris
1,0 Bensín - Beinskiptur
Framhjóladrifinn
6/2016 - Ekinn. 105.000
Útsöluverð 860.000,-
Kia Picanto LX
1,0 Bensin - Beinskiptur
Framhjóladrifinn
5/2016 - Ekinn. 143.000
Útsöluverð 550.000,-
Hyundai I-20 Classic
1,2 Bensín - Beinskiptur
Framhjóladrifinn
5/2018 - Ekinn. 72.000
Útsöluverð 1.390.000,-
Toyota Land Cruiser 150 GX
2,8 Dísel - Sjálfskiptur
Fjórhjóladrifinn
1/2018 - Ekinn. 83.000
Útsöluverð 6.690.000,-
Peugeot 3008 Allure
1,6 Bensín - Sjálfskiptur
Framhjóladrifinn
5/2018 - Ekinn. 67.000
Útsöluverð 3.090.000,-
Mazda CX 5 Vision AWD
2,0 Bensín -Sjálfskiptur
Fjórhjóladrifinn
5/2018 - Ekinn. 92.000
Útsöluverð 3.690.000,-
Kia Niro Hybrid
1,6 Bensín/rafmagn - Sjálfskiptur
Framhjóladrifinn
5/2018 - Ekinn. 74.000
Útsöluverð 2.590.000,-
Mazda CX 3 Optimum AWD
2,0 Bensín - Sjálfskiptur
Fjórhjóladrifinn
1/2018 - Ekinn. 89.000
Útsöluverð 2.950.000,-
Dacia Duster Lux
1,5 Diesel - Beinskiptur
Fjórhjóladrifinn
2/2017 - Ekinn. 144.000
Verð 1.090.000,-
BÍLAÚTSALA
Allir okkar útsölubílar eru bílaleigubílar frá Procar bílaleigu.
Léttskoðun ásamt útleiguvottorði fylgir öllum bílum.
Þetta er aðeins brot af þeim útsölubílum sem eru í boði.
Kíktu í kaffi.
AKRALIND 3
S: 4162120
Opið virka daga
kl. 10:00 – 19:00
Opið laugadaga
og sunnudaga
kl. 12:00 – 16:00
Kia Rio
1,4 Dísel - Beinskiptur
Framhjóladrifinn
5/2018 - Ekinn. 79.000
Útsöluverð 1.550.000,-
ÚR BÆJARLÍFINU
Ómar Garðarsson
Vestmannaeyjum
Á þessu ári hafa Vestmanna-
eyingar fagnað 100 ára kaupstað-
arafmæli og hefur dagskrá verið í
gangi allt árið. Hápunkti náði hátíðin
fyrstu helgina í júlí þegar Eyjafólk
fagnaði lokum Heimaeyjargossins
sem var blásið af þann 3. júlí 1973.
Veðrið lék við bæjarbúa og gesti
þessa helgi, sólskin, logn og hiti.
Og úr miklu var að velja því
samtals voru í boði 42 viðburðir,
myndlistarsýningar, tónleikar og
skemmtanir fyrir börn og fullorðna.
Allt var vel sótt og var listafólk mjög
ánægt með viðtökur.
Aðalhátíðisdagurinn, fimmti
júlí, rann upp bjartur og fagur og af-
mælishátíðin á Skansinum dró að
sér fjölda manns. Heiðursgestir
voru Eliza Reed forsetafrú, Bjarni
Benediktsson fjármálaráðherra og
Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
gönguráðherra. Fluttu þau öll ávarp
ásamt Írisi Róbertsdóttur bæjar-
stjóra og Arnari Sigurmundssyni,
fulltrúa afmælisnefndar.
Erfitt er að gera sér grein fyrir
hvað margir heimsóttu Vest-
mannaeyjar þessa helgi en þeir
skiptu þúsundum. Mikið brottfluttir
Eyjamenn en líka var áberandi hvað
margir mættu sem engin tengsl hafa
við Vestmannaeyjar. Allt fór þetta
fólk héðan með góðar endurminn-
ingar og jákvæða mynd af Vest-
mannaeyjum.
Afmælishátíðin heldur svo
áfram og nú eru vikulegar sýningar
ljósmyndara í Einarsstofu sem vakið
hafa mikla athygli. Í dag sýna Sif
Sigtryggsdóttir og Addi í London
myndir sínar. Halda sýningarnar
áfram til áramóta. Næsti hápunktur
er svo safnahelgin, aðra helgi í nóv-
ember þar sem í boði verða margir
menningarviðburðir.
Loðnubresturinn síðasta vetur
var mikið áfall fyrir Vestmannaeyjar
og verður, þó makrílveiðar hafi
gengið vel og vel líti út með síldina.
Vestmannaeyjar eru sterkar í upp-
sjávarfiski og stærsta verstöðin í
botnfiski. Sennilega er loðnan mikil-
vægust fyrir Vestmannaeyjar og
finnur allt samfélagið fyrir því þegar
hún bregst.
Nýr Herjólfur er stærsta afmæl-
isgjöf Vestmannaeyinga en lang-
þráður draumur þeirra um nýja
ferju varð að veruleika þegar nýr
Herjólfur, sá fjórði í röðinni, lagðist
að bryggju í Friðarhöfn laugar-
daginn 15. júní.
Það mun reyna á hann þegar
fer að hausta og veður verða stríð.
Hann hentar betur í Landeyjahöfn
en sá gamli en næstu skref eru end-
urbætur á höfninni sjálfri. Fyrr
verður ekki hægt að tala um Land-
eyjahöfn sem heilsárshöfn. Er það
krafa bæjarstjórnar Vestmanna-
eyja.
Nýtt skip útgerðarfélagsins
Bergs-Hugins, dótturfélags Síldar-
vinnslunnar í Neskaupstað, Vest-
mannaey VE, kom til heimahafnar í
Vestmannaeyjum þann 17. júlí og
var vel tekið á móti skipinu sem má
segja að sé ein af afmælisgjöfunum.
Það sama má segja um nýja Bergey
VE sem var afhent í Noregi á þriðju-
daginn og er nú á leið til landsins.
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri
og Hallgrímur Steinsson, f.h. Fisk-
eldis Vestmannaeyja, undirrituðu
nýlega viljayfirlýsingu um fiskeld-
isstöð á landi í Vestmannaeyjum.
Hlutur bæjarins er ráðgjöf og breyt-
ingar á deiliskipulagi.
Ekkert er betra en hreyfing
til að halda heilsu. Það veit dr. Janus
Guðlaugsson öðrum betur. Hann
hefur í samvinnu við Vestmanna-
eyjabæ hrundið af stað verkefninu,
Fjölþætt heilsuefling 65+. Mark-
miðið er að gera fólk hæfara til að
takast á við breytingar sem fylgja
hækkandi aldri. Bæði með hreyfingu
og hollu mataræði. Áhuginn fór fram
úr björtustu vonum og taka um 90
Eyjamenn og -konur þátt í verkefn-
inu og er fólkið mjög ánægt.
Morgunblaðið/Ómar Garðarsson
Sýning Börn og unglingar hafa fengið sinn sess í afmælisdagskrá Vestmannaeyjakaupstaðar á árinu og hér er verið
að opna sýningu á verkum grunnskólanema. Afmælishátíðin heldur áfram og næsti hápunktur er safnahelgin.
Margt jákvætt á 100 ára afmæli Vestmannaeyja