Morgunblaðið - 05.10.2019, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
SKECHERS DYNAMIGHT 2.0 DÖMUSKÓR MEÐ MEMORY FOAM INNLEGGI.
STÆRÐIR 36-41.
DÖMUSKÓR
13.995
Carrie Lam, héraðsstjóri Hong
Kong, bannaði í gær mótmælendum
að nota grímur en bannið varð til
þess að þúsundir lýðræðissinna
streymdu út á göturnar til að mót-
mæla því. Þeir sögðust ætla að virða
bannið að vettugi.
Lam kvaðst hafa sett bannið í
samræmi við lög frá nýlendutíman-
um sem heimila héraðsstjóranum að
setja lög án samþykkis þingsins þeg-
ar hættu- eða neyðarástand ríkir í
Hong Kong. Bannað verður að nota
grímur á hvers konar mótmælasam-
komum og þeir sem brjóta bannið
eiga yfir höfði sér allt að árs fang-
elsisdóm. Lam kvaðst telja að bannið
myndi hjálpa lögreglunni að halda
uppi lögum og reglu og fæla mót-
mælendur frá því að beita ofbeldi.
Þúsundir manna reistu götuvígi í
viðskiptahverfi í miðborg Hong
Kong til að mótmæla banninu og
sögðust ætla að halda mótmælunum
áfram um helgina. Lýðræðissinnar
sögðu að með þeirri ákvörðun að
beita neyðarlögunum frá nýlendu-
tímanum hefði Lam tekið stórt skref
í átt að alræðisskipulaginu á megin-
landi Kína. „Þetta markar þátta-
skil,“ sagði lýðræðissinnaða þing-
konan Claudia Mo. Hún bætti við að
hún teldi að héraðsstjórinn væri að
brenna allar brýr að baki sér. „Og ég
óttast að þetta sé aðeins byrjunin.
Fleiri harðneskjuleg bönn í nafni
laga gætu vofað yfir okkur.“
Valdinu til að setja neyðarlög var
síðast beitt vegna óeirða í Hong
Kong árið 1967 þegar rúmlega 50
manns biðu bana í sprengju- og
morðtilræðum vinstrimanna sem
studdu kínverska kommúnista, áður
en breska nýlendan fyrrverandi varð
hluti af Kína. bogi@mbl.is
Carrie Lam setti bannið á grundvelli laga frá nýlendutímanum sem heimila héraðsstjóranum að setja
lög án samþykkis þingsins þegar neyðar- eða hættuástand skapast.
Lýðræðissinnar í Hong Kong hafa notað margskonar grímur frá því að mótmæli þeirra hófust.
Héraðsstjóri Hong Kong bannar grímur á götumótmælum
Ljósmyndir: AFP
Lýðræðissinnar mótmæla
grímubanni í Hong Kong
Ósló. AFP. | Fyrir áttatíu árum,
þegar heimurinn var á barmi blóð-
ugustu styrjaldar sögunnar, var
Adolf Hitler tilnefndur til friðar-
verðlauna Nóbels. Þetta er eitt af
ófáum dæmum sem sýna að hægt er
tilnefna bókstaflega hvern sem er
til þessara eftirsóttu verðlauna.
Á meðal annarra sem hafa verið
tilnefndir til friðarverðlauna Nóbels
frá því að þau voru fyrst veitt fyrir
118 árum eru einræðisherrarnir
Benito Mussolini og Jósef Stalín.
Erik Brandt, þingmaður Jafn-
aðarmannaflokksins í Svíþjóð, til-
nefndi Hitler til friðarverðlaunanna
í janúar 1939, um átta mánuðum
fyrir innrás þýska hersins í Pólland.
Hann dásamaði „glóðheita friðar-
ást“ Hitlers og lýsti honum sem
„prins friðar á jörðinni“. Seinna
kvaðst Brandt hafa tilnefnt Hitler í
háðungarskyni til að mótmæla því
að Neville Chamberlain var til-
nefndur til verðlaunanna árið áður
fyrir Münchenarsamninginn við
Hitler árið 1938 til að reyna að
koma í veg fyrir styrjöld í Evrópu.
Háðsádeila þingmannsins fór fyrir
ofan garð og neðan hjá mörgum.
Þýskir og franskir háskólamenn
tilefndu Mussolini til verðlaunanna
árið 1935, skömmu áður en her hans
réðst inn í Eþíópíu. Stalín var til-
nefndur tvisvar, árin 1945 og 1948.
Enginn einræðisherranna þriggja
var á meðal þeirra sem verðlauna-
nefndin taldi koma til greina, að
sögn norska sagnfræðingsins Geirs
Lundestads, fyrrverandi ritara
nefndarinnar.
Verðlaunanefndin tekur við öllum
tillögum, svo fremi sem þær berast
fyrir 31. janúar. Þeir sem geta lagt
fram tilnefningar eru þingmenn og
ráðherrar ríkja heims, allir sem
hafa fengið friðarverðlaunin, sumir
háskólaprófessorar og þeir sem eiga
eða hafa átt sæti í verðlaunanefnd-
inni. Alls eru þúsundir manna í
þessum hópi og þeir geta tilnefnt
hvern sem er.
Michael Jackson ekki í
náðinni hjá nefndinni
Tilnefningunum hefur fjölgað
mjög á síðustu tveimur áratugum
og þær eru yfirleitt rúmlega 300 á
ári, þannig að ekki er að undra að
sumar þeirra komi spánskt fyrir
sjónir.
Á meðal þeirra sem hafa verið til-
nefndir er bandaríska poppgoðið
Michael Jackson. Þingmenn í Rúm-
eníu tilnefndu hann til verðlaunanna
árið 1998 fyrir friðarboðskap í lag-
inu „Heal the World“. Lundestad
segir að Jackson hafi ekki átt upp á
pallborðið hjá verðlaunanefndinni.
Sænskur þingmaður lagði til árið
2001 að Alþjóðaknattspyrnusam-
bandið, FIFA, fengi verðlaunin fyr-
ir hönd fótboltans vegna þess að
íþróttin stuðlaði að friði í heiminum.
Jules Rimet, þriðji forseti FIFA,
var tilnefndur til verðlaunanna árið
1956 fyrir að beita sér fyrir heims-
meistaramótunum í fótbolta sem
hafa verið haldin frá 1930.
Tilkynnt verður á föstudaginn
kemur hver hlýtur friðarverðlaunin
í ár. Á meðal þeirra sem voru til-
nefnd eru Donald Trump Banda-
ríkjaforseti og sænska stúlkan
Greta Thunberg sem hefur barist
fyrir aðgerðum til að stemma stigu
við loftslagsbreytingum af manna-
völdum.
Geta tilnefnt
hvern sem er
Hitler á meðal þeirra sem voru
tilnefndir til friðarverðlauna Nóbels
Benito
Mussolini
Adolf
Hitler
Repúblikaninn og öldungadeildarþingmaðurinn Mitt
Romney sagði í gær að „ósvífin og fordæmislaus“ beiðni
Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að stjórnvöld í
Úkraínu og Kína hæfu rannsókn á Joe Biden væri „sið-
ferðislega röng og skelfileg“. Hann sagði að í ljósi þess
að beiðnin beindist eingöngu að pólitískum andstæðingi
forsetans hlytu menn að komast að þeirri niðurstöðu að
hún væri af pólitískum rótum runnin. Biden var varafor-
seti Bandaríkjanna í forsetatíð Baracks Obama og sæk-
ist nú eftir því að verða forsetaefni demókrata.
Trump óskaði eftir rannsókninni í símasamtali við for-
seta Úkraínu 25. júlí og sagði í fyrradag að hann vildi einnig að stjórnvöld í
Kína hæfu rannsókn á Joe Biden.
Nefndir fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, sem rannsaka meint embættis-
brot Trumps, birtu í gær textaskilaboð bandarískra stjórnarerindreka og
demókratar sögðu þau staðfesta að forsetinn hefði misnotað embættið til
að reyna að knýja fram rannsókn á pólitískum andstæðingi sínum. Einn
stjórnarerindrekanna virtist telja að Trump hefði frestað því að veita
Úkraínu aðstoð í öryggismálum til að knýja á um rannsókn á Biden. „Ég tel
að það sé brjálæði að halda eftir aðstoð í öryggismálum fyrir hjálp í póli-
tískri baráttu,“ sagði hann í einum skilaboðanna.
MITT ROMNEY GAGNRÝNIR DONALD TRUMP
Beiðnin „siðferðislega röng og skelfileg“
Mitt Romney
Saksóknarar, sem rannsaka hryðju-
verkamál í Frakkland, tóku í gær
við rannsókn á árás starfsmanns
lögreglunnar í París á lögreglu-
menn í fyrradag. Maðurinn varð
þremur lögregluþjónum og einum
skrifstofumanni lögreglunnar að
bana með hnífi í höfuðstöðvum
hennar í París. Lögreglumaður
skaut hann til bana.
Árásarmaðurinn var 45 ára sér-
fræðingur í upplýsingatækni og
snerist til íslamstrúar fyrir einu og
hálfu ári. Fréttaveitan AFP hafði
eftir heimildarmanni sínum að
maðurinn hefði starfað í deild sem
safnar upplýsingum um róttæka ísl-
amista og kynni að hafa snúist á
sveif með þeim.
Í fyrstu var talið að maðurinn
hefði gert árásina vegna deilu á
vinnustaðnum en rannsóknarmenn
sögðu í gær að fram hefðu komið
nýjar upplýsingar sem gæfu tilefni
til að rannsaka árásina sem mögu-
legt hryðjuverk.
FJÓRIR LÉTU LÍFIÐ Í ÁRÁS Í LÖGREGLUSTÖÐ Í PARÍS
Rannsakað sem mögulegt hryðjuverk