Morgunblaðið - 05.10.2019, Síða 34
34 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
Dásamlegt kaffi
nýmalað,
engin hylki.
–
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur er Svavar Alfreð Jónsson. Klassíski kór
Akureyrarkirkju syngur. Organisti er Sigrún
Magna Þórsteinsdóttir. Tekið verður við sam-
skotum fyrir vinasöfnuð okkar í Kapkoris í Ke-
níu.
Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11. Um-
sjón Sonja Kro og Jón Ágúst Eyjólfsson.
AKURINN kristið samfélag | Samkoma kl.
14. Biblíufræðsla, söngur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Ný-
stofnaður barnakór kirkjunnar syngur undir
stjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Þorgerður Þor-
kelsdóttir leikur á hljóðfæri. Sr. Petrína Mjöll Jó-
hannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór
Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Krisztinu Kalló
Szkláner organista. Sunnudagaskólinn er á
sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Önnu
Sigríðar Helgadóttur og Hrannars Inga Arnars-
sonar.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Séra
Ása Laufey Sæmundsdóttir prédikar og þjónar
fyrir altari. Séra Benjamín Hrafn Böðvarsson, ný-
vígður prestur til Austfjarðaprestakalls, annast
samverustund sunnudagaskólans. Félagar úr
Kór Áskirkju leiða sönginn. Orgelleikari er Bjart-
ur Logi Guðnason. Kaffisopi í Ási eftir messu.
BESSASTAÐASÓKN | Bessastaðasókn tekur
þátt í fjölskylduhátíð í Víðistaðakirkju 6. októ-
ber. Rúta bíður okkar í safnaðarheimilinu
Brekkuskógum 1 en lagt verður af stað kl.
10.50 og komið heim kl. 13.30.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Hallgrímsmessa kl.
11. Sr. Magnús Björn Björnsson þjónar. Kór
Breiðholtskirkju syngur, stjórnandi er Örn Magn-
ússon. Sunnudagaskóli á sama tíma. Ensk
bænastund og barnastarf k. 14. Prestur er Tos-
hiki Toma.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnastarf kl. 11. Daníel
Ágúst, Sóley Adda, Jónas Þórir og Pálmi. Bleik
guðsþjónusta og innsetning kl. 14.
Kristján Jóhannsson og Tónbræður syngja, Jón-
as Þórir við hljóðfærið. Bolvíkingar aðstoða.
Gestur Pálmason les ritningartexta og Berglind
Halla Elísdóttir syngur.
Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prófastur setur
inn í embætti tvo presta í Fossvogsprestakall,
sr. Evu Björk Valdimarsdóttur og sr. Maríu
Ágústsdóttur.
DÓMKIRKJA KRISTS konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á
íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl.
18 er vigilmessa.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskólinn kl.
10.30. Bleik messa kl. 20. Kvöldmessa þar
sem stundin er helguð árvekniátaki gegn
krabbameini. Sóley Guðmundsdóttir segir okkur
reynslusögu sína tengda þeim vágesti. Kór Eg-
ilsstaðakirkju syngur. Organisti er Torvald
Gjerde. Sr. Þorgeir leiðir stundina og flytur hug-
vekju.
Kaffisopi eftir messu og tekið við frjálsum fram-
lögum til Krabbameinsfélags Austurlands. Ekki
spillir að mæta í bleiku!
FELLA- og Hólakirkja | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Jón Ómar þjónar ásamt Mörtu og
Ásgeiri. Meðhjálpari er Jóhanna Freyja. Kaffi og
djús eftir stundina.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli
kl. 11. Fjölskylduhátíð kl. 14. Barna- og kríla-
kórar koma fram og syngja ásamt kirkjukórn-
um. Hljómsveit kirkjunnar spilar. Kaffisala
Kvenfélagsins verður í safnaðarheimilinu að
lokinni fjölskylduhátíð.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl.
14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir
stundina. Hljómsveitin Mantra og Sönghóp-
urinn við Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunn-
ari Gunnarssyni, organista. Fermingarbörn og
fjölskyldur þeirra eru hvött til að mæta.
GARÐAKIRKJA | Klassísk messa kl. 14. Sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Félagar í kór Vídalínskirkju syngja og org-
anisti er Jóhann Baldvinsson.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra
Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar.
Organisti er Hákon Leifsson og Kór Grafarvogs-
kirkju leiðir söng.
Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11.
Umsjón hafa Þóra Björg Sigurðardóttir og
Hólmfríður Frostadóttir. Undirleikari er Stefán
Birkisson.
GRAFARVOGUR – kirkjuselið í Spöng |
Selmessa kl. 13. Séra Grétar Halldór Gunn-
arsson prédikar og þjónar. Organisti er Hilmar
Örn Agnarsson og Vox Populi leiðir söng.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. María
Guðrúnar Ágústsdóttir þjónar ásamt messu-
þjónum og fermingarfjölskyldum. Ásta Haralds-
dóttir annast tónlist ásamt félögum úr Kirkju-
kór Grensáskirkju. Hólmfríður Ólafsdóttir
djákni segir frá málverkasýningu sinni í anddyri
kirkjunnar. Konfekt og kaffi. Við guðsþjónustu í
Bústaðakirkju kl. 14 setur prófastur nýskipaða
presta Fossvogsprestakalls inn í embætti. Á
þriðjudag er kyrrðarstund kl. 12 og opið hús til
kl. 14. Á fimmtudag er núvitundarstund kl.
18.15-18.45.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili |
Messa með altarisgöngu sunnudag kl. 14 í há-
tíðarsal Grundar. Prestur er Auður Inga Ein-
arsdóttir heimilisprestur Grundar. Grundarkór-
inn leiðir söng undir stjórn Kristínar
Jóhannesdóttur organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11.
Prestur er Sighvatur Karlsson og hann og Pétur
Ragnhildarson sjá um messuna. Barnakór
Guðríðarkirkju syngur undir stjórn Sigríðar
Soffíu og Svanfríðar Gunnarsdóttur. Kirkjuvörð-
ur er Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffisopi í boði
eftir messuna.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fjölskylduhátíð
í Víðistaðakirkju kl. 11. Sameiginleg fjöl-
skylduhátíð þjóðkirknanna í Hafnarfirði, Garða-
bæ og Álftanesi. Hoppukastalar, andlitsmálun,
leikir og fjör, Sirkus Íslands, blöðrulistamenn,
hljómsveit, leiklistarhópur, leikþáttur Miskunn-
sami Samverjinn, barnakórar, pylsur og djús.
Hátíðin fer fram í Víðistaðakirkju og í íþrótta-
húsi Víðistaðaskóla.
HALLGRÍMSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl.
11. Umsjón: dr. Sigurður Árni Þórðarson og
Kristný Rós Gústafsdóttir, verkefnastjóri og
djákni. Fermingarbörn og hópur messuþjóna
aðstoðar. Organisti er Douglas A. Brotchie. Fé-
lagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.
Bogi Benediktsson og Rósa Árnadóttir stýra
barnastarfinu. Bænastund mánud. kl. 12.15.
Fyrirbænaguðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30. Ár-
degismessa miðvikud. kl. 8 og hádegisfyr-
irlestur kl. 12. Kyrrðarstund fimmtud. kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Kordía kór
Háteigskirkju leiðir messusöng. Organisti er
Guðný Einarsdóttir. Prestur er Eiríkur Jóhanns-
son.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11.
Séra Karen Lind Ólafsdóttir og Lára Bryndís
organisti sjá um stundina. Sunnudagaskólinn
er á sama tíma í safnaðarheimilinu.
HRAFNISTA Reykjavík | Guðsþjónusta kl.
14 í samkomusalnum Helgafelli, 4. hæð. Fé-
lagar úr kór Áskirkju syngja. Organisti er Bjartur
Logi Guðnason. Ritningarlestra les Kristín Guð-
jónsdóttir. Sr. Svanhildur Blöndal prédikar og
þjónar fyrir altari.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn sam-
koma kl. 13 með lofgjörð og fyrirbænum. Ald-
ursskipt barnastarf. Ólafur H. Knútsson prédik-
ar. Kaffi að samverustund lokinni.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Í fjölskyldumessu kl.
11 syngur Barnakór Keflavíkurkirkju við und-
irspil Arnórs Vilbergssonar organista. Sunnu-
dagaskólaleiðtogarnir Helga, Ingi Þór og Jó-
hanna leiða stundina og sr. Erla
Guðmundsdóttir þjónar. Jóhanna Árnadóttir og
Jóhann Kristbergsson eru messuþjónar. Albert
Hinriksson og fermingarforeldrar reiða fram
súpu og brauð.
KÓPAVOGSKIRKJA | Barna- og fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson
leiðir ásamt sunnudagaskólakennurum. Skóla-
kór Kársnesskóla syngur.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og sunnudaga-
skóli kl. 11. Sr. Eva Björk Valdimarsdóttir þjón-
ar. Kór Langholtskirkju syngur og organisti er
Magnús Ragnarsson. Sunnudagaskólinn er á
sínum stað og tekur Sara Grímsdóttir vel á
móti börnunum. Léttur hádegisverður eftir
messu.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Elín
Sigríður Jónsdóttir syngur einsöng. Sr. Davíð
Þór Jónsson þjónar fyrir altari. Sunnudaga-
skóli í safnaðarheimili á meðan. Kaffi og sam-
vera á eftir.
8.10. Kyrrðarbæn kl. 20. Kristin íhugun. Hús-
ið opnað kl. 19.40.
9.10. Foreldrasamvera kl. 10-12.
Félagsmiðstöðin Dalbraut 18-20. Helgistund
með sr. Davíð Þór og Elísabetu organista.
10.10. Kyrrðarstund í Áskirkju kl. 12. Hádeg-
ismatur og opið hús á eftir.
Hásalurinn, Hátúni 10. Helgistund með sr.
Davíð Þór og sr. Hjalta Jóni.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudaga-
skóli kl. 11. Messa kl. 20. Kór Lindakirkju
syngur undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr.
Guðmundur Karl Brynjarsson prédikar og þjón-
ar til altaris ásamt Kristjáni Björnssyni vígslu-
biskupi, sem vísiterar Lindakirkju um þessar
mundir.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju
leiða safnaðarsöng. Organisti er Steingrímur
Þórhallsson. Prestur er Skúli S. Ólafsson. Um-
sjón með barnastarfinu hafa Margrét H. Atla-
dóttir, Gunnar T. Guðnason og Ari Agnarsson.
Samfélag og kaffiveitingar á Torginu eftir
messu.
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar
samkomur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga
í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60.
Barnastarf. Túlkað á ensku.
SELFOSSKIRKJA | Bleik messa kl. 11 í til-
efni af bleikum október. Guðmunda Egilsdóttir
segir frá reynslu sinni. Félagar úr Krabba-
meinsfélagi Árnessýslu lesa. Kirkjukór og ung-
lingakór Selfosskirkju syngja undir stjórn Edit
Molnár, prestur er Ninna Sif Svavarsdóttir.
Fjölskyldusamvera á sama tíma í safn-
aðarheimilinu í umsjón Jóhönnu Ýrar, og að
messu lokinni er borin fram súpa í safn-
aðarheimilinu. Allur ágóði af súpunni rennur til
Krabbameinsfélags Árnessýslu.
SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11.
Kvöldguðsþjónusta kl. 20, ath. breyttan
messutíma. Sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar
og Kór Seljakirkju flytur tónlist undir stjórn
Tómasar Guðna Eggertssonar.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta
og sunnudagaskóli kl. 11. Sóknarprestur
þjónar. Organisti kirkjunnar leikur á orgelið.
Félagar úr Kammerkór kirkjunnar leiða al-
mennan safnaðarsöng. Sveinn Bjarki og leið-
togar sjá um sunnudagaskólann. Kaffiveit-
ingar og samfélag í safnaðarheimilinu eftir
athöfn.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa sunnu-
dag kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson sókn-
arprestur annast prestsþjónustuna.
VÍDALÍNSKIRKJA | Batamessa kl. 17.
Helga Björk Jónsdóttir djákni og sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir þjóna fyrir altari. Vinur í bata
flytur vitnisburð. Jóhann Baldvinsson leikur á
orgel. Jóhanna Guðrún Jónsdóttir syngur ein-
söng og Davíð Sigurgeirsson leikur undir. Létt
máltíð í safnaðarheimili eftir messu.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Sameig-
inleg fjölskylduhátíð þjóðkirknanna í Hafn-
arfirði, Garðabæ og á Álftanesi – fer fram í
Víðistaðakirkju og íþróttahúsi Víðistaðaskóla
kl. 11. Fjölbreytt dagskrá í kirkjunni og Sirkus
Íslands, hoppukastalar, andlitsmálun, pylsur
og djús, leikir og fjör á eftir í íþróttasalnum.
Orð dagsins:
Sonur ekkjunnar í Nain.
(Lúk. 7)
Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonAkureyri Glerárkirkja.