Morgunblaðið - 05.10.2019, Qupperneq 56
Höfum opnað
nýja verslun
á Hafnartorgi
Tónverkið „Jú víst“
eftir hina 11 ára
Láru Rún Eggerts-
dóttur verður flutt
í útsetningu tón-
skáldsins Tryggva
M. Baldvinssonar á
tónleikunum Tíma-
flakk í tónheimum
í Eldborg í dag kl.
14. Tónleikarnir eru hluti af tónleika-
röð Sinfóníuhljómsveitar Íslands,
Litla tónsprotanum, og verða einnig
flutt verk eftir tónskáld á borð við
Monteverdi, Bach, Jón Leifs, Mozart,
Sveinbjörn Sveinbjörnsson og John
Williams. „Jú víst“ er eitt þeirra
verka sem hlotið hafa Upptaktinn,
tónsköpunarverðlaun barna og ung-
menna, og völdu fulltrúar Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands verk Láru til
frekari vinnslu.
SÍ flytur „Jú víst“
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 278. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.150 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Erik Hamrén, þjálfari karlalandsliðs
Íslands í knattspyrnu, segir að Birk-
ir Bjarnason og Emil Hallfreðsson
búi yfir reynslu og gæðum sem
réttlæti val á þeim í 25 manna
landsliðshóp Íslands, þrátt fyrir að
þeir leiki ekki með neinu félagsliði
um þessar mundir. Hamrén kynnti í
gær hópinn fyrir leikina gegn Frakk-
landi og Andorra. »48
Birkir og Emil með
gæði og reynslu
Hugleikur Dagsson og Þrándur Þór-
arinsson opna í dag samsýninguna
Andspænis í Gallerí Porti, Lauga-
vegi 23b. Þrándur og Hugleikur eru
náfrændur og uppeldisbræður og
hafa myndgert hrylling og hasar frá
blautu barnsbeini og sækja gjarnan
innblástur hvor til annars, eins og
þeir lýsa því. Á Andspænis sækja
þeir sína uppáhaldsskúrka og
-skrímsli úr íslenskum þjóðsagna-
arfi og etja í
hverju verki
fyrir sig
saman
goðsögn-
um; Þrándur í
málverki og
Hugleikur í
myndasögu.
Hugleikur og Þrándur
opna samsýningu
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sumir virðast aldrei eldast og eru
stöðugt að. Björgvin Magnússon,
fyrrverandi skólastjóri, virðist jafn-
vel hafa meira að gera eftir því sem
árunum fjölgar. „Sem betur fer hef
ég alltaf nóg fyrir stafni enda heils-
an góð og vinnan heldur í mér líf-
inu,“ segir hann. „Ég er líka senni-
lega elsti starfandi skáti í heim-
inum,“ bætir hann við, en Björgvin
hélt upp á 96 ára afmælið með
Eddu, dóttur sinni, um liðna helgi.
„Ég þakka fyrir hvern dag,“
heldur Björgvin áfram, en hann fer
allra sinna ferða á lítilli Hondu. Síð-
an er hann með forláta Dodge Ar-
ies-skutbíl, árgerð 1985, í bíl-
skúrnum. „Það er sparibíllinn, sem
ég hreyfi bara endrum og sinnum,
eini bíllinn af þessari gerð á Íslandi
í ökufæru standi, að ég held.“
Björgvin vinnur tvo tíma á dag
hjá Náttúruhamfaratryggingu Ís-
lands, er mættur fyrir klukkan átta
á morgnana. „Þetta er gamla við-
lagatryggingarfélagið, en nafninu
var breytt svo fólk skildi það bet-
ur.“ Hann segist gera mest lítið, en
sé með eigið skrifborð, færi fólki
kaffi og sjái um að allt sé í lagi í
eldhúsinu. „Þetta er bara dútl, en
ekki fá allir karlar svona tækifæri,
því þegar menn eru orðnir sjötugir
verða þeir almennt að hætta. Mér
var hins vegar boðið að halda áfram
og þáði það með þökkum.“ Til nán-
ari skýringar segir hann að eftir að
hann hætti sem skólastjóri hafi
hann verið fjármálastjóri og um-
sjónarmaður Þjóðskjalasafnsins.
Það hafi verið í sama húsi og við-
lagatryggingin og hann verið lán-
aður þangað. „Ég hef verið hérna
síðan.“
Í skátunum í yfir 80 ár
Skátarnir hafa notið krafta
Björgvins í yfir 80 ár, en hann var
einn af stofnendum skátafélags
undir stjórn Jónasar B. Jónassonar,
síðar fræðslustjóra Reykjavíkur og
skátahöfðingja, í Laugarnesskóla
1938. Hann hefur alla tíð síðan ver-
ið virkur í skátastarfinu, í yfir 80
ár, og fer með félögum sínum til að
vinna í Gilwell-skála á Úlfljótsvatni
á hverjum laugardegi. „Við erum
nokkrir karlar yfir sjötugt, gamlir
skátar, sem höfum unnið í tíu ár við
að taka skálann í gegn,“ segir hann,
en skálinn var tekinn í notkun 1943
og til stóð að rífa hann. „Þá
ákváðum við að laga hann og við
höfum dútlað við það í tíu ár,“
áréttar Björgvin. Bætir við að eldri
skátar hittist auk þess einu sinni í
mánuði og fái sér súpu og brauð.
„Svo förum við í ferðalög saman og
ef eitthvað er um að vera á Úlfljóts-
vatni mætum við þangað.“
Björgvin hefur lengi verið með
bíladellu. „Þegar ég var skólastjóri
á Jaðri var ég með flottasta jeppa
landsins, grænan rússajeppa, sem
er enn til og var meðal annars not-
aður í heimildarmynd um Guðrúnu
Helgadóttur. Ég var bílagæi og hef
ekki alltaf verið gamall karl, en það
þýðir ekkert fyrir mig að keyra
austur, því ég dóla bara á 60. Það
gengur ekki en það kemur ekki að
sök því einn í klíkunni á jeppa og
keyrir okkur. Þetta er eins og að
vera á rúntinum í gamla daga.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í stíl Björgvin Magnússon klappar þarfasta þjóninum, Dodge Aries-skutbíl, árgerð 1985. Aldurinn er afstæður.
Eitt sinn bílagæi, ávallt
bílagæi á rúntinum
Björgvin Magnússon elsti starfandi skáti í heimi