Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Blaðsíða 29
Fagið07/08
Vörn gegn dropasmiti er að beita hóstavarúð og handhreinsun,
þ.e. hósta eða hnerra í bréf, henda því og hreinsa hendur að því
loknu. Á sjúkrahúsum eru sjúklingar einangraðir ef þeir greinast
með eða líkur eru á að þeir séu með ákveðnar örverur (ónæmar
bakteríur eða ákveðnar veirur)
sem smitast með dropasmiti
eða dropa- og snertismiti.
Hér má nefna bakteríur eins
og S. pyogenes og veirur eins
og inflúensuveiru, þá getur
nóróveira einnig smitast með
dropasmiti ef sjúklingur er
með mikil uppköst, RS-veira
(Respiratory Syncytial Virus)
getur smitast með dropa- og
snertismiti og fleiri örverur.
Úðasmit er smitleið sem
er erfitt að verjast. Þegar fólk
hóstar, hnerrar, kallar eða
hrópar myndast ekki bara
dropar heldur líka fínn úði frá
öndunarvegi. Þessi úði getur
svifið í loftinu en að lokum
fellur hluti hans niður fjarri einstaklingnum en hluti getur borist
milli herbergja. Smit verður þegar aðrir anda að sér úðanum eða fá
agnirnar, sem féllu loks niður, á hendur og bera þær í vit sér (Siegel
o.fl., 2007). Örverur sem smitast með úðasmiti eru berkla bakterían,
mislinga- og hlaupabóluveiran. Mislingar og hlaupabóla geta haft
samsettar smitleiðir úða- og snertismits þar sem þessar örverur geta
borist með höndum í vit fólks. Auk þess er talið að SARS og MERS-Co
smitist með úða- og snertismiti.
Á Landspítala (LSH) eru sjúklingar einangraðir ef þeir greinast
með eða líkur benda til að þeir séu með smitandi berkla. Hægt er að
verjast mislingum og hlaupabólu með bólusetningum og á Íslandi
er bólusett gegn mislingum í ungbarnabólusetningum en ekki gegn
hlaupabólu (Embætti landlæknis, 2015). Þar sem mislingabólusetning
fer ekki fram fyrr en við 18 mánaða aldur eru öll börn yngri en 18
Þegar fólk hóstar, hnerrar,
kallar eða hrópar myndast
ekki bara dropar heldur líka
fínn úði frá öndunarvegi.
Þessi úði getur svifið í loftinu
en að lokum fellur hluti hans
niður fjarri einstaklingnum
en hluti getur borist milli
herbergja. Smit verður þegar
aðrir anda að sér úðanum
eða fá agnirnar, sem féllu
loks niður, á hendur og bera
þær í vit sér.