Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Blaðsíða 61
Félagið17/18
Það Er skortur hjúkrunarfræðingum um allan heim. Hjúkrunar-
fræðingar hér á landi hafa ekki farið varhluta af skortinum og geta
hæglega sótt sér vinnu erlendis, þá einkum á Norðurlöndunum.
Undanfarin ár hefur töluverður fjöldi íslenskra hjúkrunarfræðinga
farið í afleysingastörf í skemmri tíma og þá aðallega til Noregs.
Ástæðan er fyrst og fremst fjárhagslegur ávinningur en einnig er
tilbreyting að vinna í nýju starfsumhverfi.
Frá árinu 2011 hafa yfir hundrað hjúkrunarfræðingar farið til
Noregs á vegum Sólstaðna sem sérhæfa sig í að útvega heilbrigðis-
starfsfólki afleysingastörf til lengri eða skemmri tíma. Að sögn Rósu
Þorsteinsdóttur, gjörgæsluhjúkrunarfræðings og framkvæmdastjóra
Sólstaða, komast færri að en vilja en eftirspurnin er mest eftir
sérhæfðum hjúkrunarfræðingum. Aðsóknin hefur aukist frá ári
til árs en alls fóru 56 hjúkrunarfræðingar í 78 ferðir árið 2015.
Þeim sem á þurfa að halda er boðið upp á undirbúningsnámskeið í
norsku með áherslu á talmál. „Það útskrifast ekki nægilega margir
hjúkrunarfræðingar til að uppfylla þá þörf sem til staðar er. Það hefur
legið lengi fyrir. Það er einnig mikil eftirspurn í Svíþjóð en við erum
ekki með samning þar,“ segir Rósa. Hún segir afleysingastörfin enn
borga sig fjárhagslega, en ávinningurinn er einnig sá að hjúkrunar-
fræðingarnir læra mikið af því að fara út en drifkrafturinn eru launin.
Ótvíræður fjárhagslegur ávinningur
Hrönn Hreiðarsdóttir svæfingahjúkrunarfræðingur fór í fyrsta skipti
sem afleysingahjúkrunarfræðingur til Noregs árið 2012 og síðan hefur
hún farið tvisvar til þrisvar á hverju ári til Noregs, í eina til tvær vikur
í senn. „Ég byrjaði á þessu út af laununum og fyrst um sinn fékk ég
ríflega ein mánaðarlaun fyrir tíu daga vinnu. Fólk veltir fyrir sér af
hverju við erum enn að þessu vegna stöðu norsku krónunnar, en þetta
er skemmtileg tilbreyting. Ég væri ekki að þessu ef það væri ekki
fjárhagslegur ávinningur. Svo finnst mér gott að komast aðeins í burtu
og vinna í öðru umhverfi,“ segir Hrönn, en hún er nýbúin að skrifa
undir árssamning við afleysingar á svæfingadeild í Akershus í Noregi.
Hrönn segir svo mikla eftirspurn vera eftir hjúkrunarfræðingum,
þá sér í lagi á gjörgæslu og í svæfingu, að hún fær tölvupóst nánast
daglega um starfstilboð, en auk þess að vera á skrá hjá Sólstöðum er
hún er einnig á skrá hjá dönsku starfsmannaleigunni UniCare.