Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Side 65

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Side 65
Fólkið03/05 „Okkur langar að flytja aftur heim. Við erum íslensk og það er sterkt í okkur. Ég vil að dætur mínar verði Íslendingar í fram- tíðinni og við söknum fjölskyldu okkar og vina,“ segir Edda Marý Óttarsdóttir svæfingahjúkrunarfræðingur, en hún hefur unnið við Ullevålsjúkrahúsið sem er hluti af háskólasjúkrahúsinu í Ósló undan- farin fimm ár. Ástæðan fyrir því að Edda Marý flutti búferlum var að stórum hluta fjárhagsleg. „Ég var einstæð móðir og dæmið gekk einfaldlega ekki upp hérna heima. Ég var komin í fjárhagsleg vandræði og fór því til að bjarga fjármálunum.“ Barnsfaðir hennar flutti á sama tíma til Svíþjóðar og bjó dóttir þeirra hjá honum fyrsta árið eftir að Edda flutti út og ferðast hún reglulega á milli landanna. „Þrátt fyrir að launin séu betri þá er dýrt að búa í Ósló, en fjárhagslegt öryggi er meira og betri líðan almennt,“ að sögn Eddu. Aðspurð um hver væri helsti munurinn á því að vinna í Noregi og Íslandi segir hún að vakta- skipulagið geri gæfumuninn. Hjá hjúkrunarfræðingum, sem vinna 100% vinnu á þrískiptum vöktum, er vinnuvikan 35,5 klukkustundir að meðtöldum matartíma. Að sögn Eddu er vaktaskipulagið meira fljótandi og vel skipulagt með tilliti til hvíldartíma og aðlögunar að sólarhringnum. Þannig vinnur hún fjórðu hverja helgi og aukavaktir eru fátíðar. „Eftir að hafa unnið þrjár næturvaktir á einni helgi tökum við hvíld í viku. Það frí er í raun áunnið með því að vinna fleiri tíma sumar vikurnar. Þetta er mjög gott fyrirkomulag upp á að jafna svefnmynstrið. Mér líkar mátinn sem við svæfingahjúkrunarfræðingar í Noregi vinnum á, við vinnum mjög sjálfstætt og það er talsvert svigrúm fyrir endurmenntun. Til dæmis er það í reglum hér að tveir svæfingahjúkrunarfræðingar mega innleiða svæfingu hjá frískum sjúklingum, en á Íslandi er læknir alltaf til staðar,“ segir Edda. „Lífsgæðin í Noregi gera gæfumuninn. Norðmenn eru viðkunn- anlegir og duglegir líkt og Íslendingar. En þeir eru nægjusamir og Að sögn Eddu er vakta- skipulagið meira fljótandi og vel skipulagt með tilliti til hvíldartíma og aðlögunar að sólarhring- num. Þannig vinnur hún fjórðu hverja helgi og aukavaktir eru fátíðar.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.