Fréttablaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * — F I M M T U D A G U R 2 3 . J A N Ú A R 2 0 2 0
USSSSSSS ÞURFUM
VIÐ AÐ RÆÐA ÞETTA
EITTHVAÐ?
HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · Mitsubishi.is
Frá aðeins
5.490.000
Grjótharður nýr Mitsubishi L200
kr.
44 síðna sérblað fylgir blaðinu í dagKonur í atvinnulífinu
1 9 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R
VIÐSKIPTI Félagið Hrjáf ehf. sem er
í eigu Róberts Wessmann í Alvo-
gen hefur á undanförnum vikum
keypt á fjórða tug nýbyggðra íbúða
í Reykjavík fyrir ríflega 1.800 millj-
ónir króna.
Flestar íbúðirnar eru í nýja
hverfinu við Ríkisútvarpið í Efsta-
leiti. Hluti af kaupverðinu þar,
1.511 milljónir króna, var greiddur
með einni dýrustu íbúð landsins,
317 fermetra þakíbúð Róberts við
Vatnsstíg 20-22. Íbúðin var í við-
skiptunum metin á 460 milljónir
króna og er hún þar með líklega
ein aldýrasta íbúð landsins. Lung-
ann úr afganginum, 1.050 millj-
ónir króna, fjármagnar Hrjáf með
lánsfé.
Í lok nóvember var gengið frá
kaupsamningi Hrjáfs um sex íbúðir
við Frakkastíg og Hverfisgötu fyrir
308 milljónir króna. Fyrir átti Hrjáf
f immtán íbúðir við Frakkastíg.
Í byrjun desember keypti Hrjáf
síðan 31 íbúð í nýbyggingum á
svokölluðum A-reit á lóð Ríkisút-
varpsins í Efstaleiti. Íbúðirnar eru
við Lágaleiti, Efstaleiti og Jaðarleiti
og eru af öllum stærðum.
Kaupverð íbúðanna sem Hrjáf
ehf. keypti er 1.510 milljónir króna.
Var það greitt með þeim hætti að
1.050 milljónir króna voru fengnar
að láni frá lánastofnun og upp-
hæðinni síðan skipt þannig að einu
skuldabréfi var þinglýst á hverja
íbúð.
– gar, bþ / sjá síðu 4
Blokkaríbúð á 460 milljónir
Róbert Wessmann, eigandi Alvogen, fær 460 milljónir króna fyrir þakíbúð við Vatnsstíg í maka skiptum
vegna kaupa á 31 íbúð á RÚV-reitnum við Efstaleiti. Heildarkaupverðið er 1.511 milljónir króna.
VIÐSKIPTI Uppgreiðslur á lánum
bankanna til fyrirtækja reyndust
hærri en nýjar lántökur í síðasta
mánuði í fyrsta sinn frá því í mars
2014. Ný útlán til fyrirtækja drógust
saman um 56 prósent á síðasta ári.
Ingólfur Bender, aðalhagfræðing-
ur SI, segir að samdráttur í útlánum
birtist í minni fjárfestingu og fækk-
un starfa. Vöxtur í atvinnuvegafjár-
festingu hafi snúist í samdrátt.
Jón Guðni Ómarsson, fram-
k væmd a st jór i f já r má la s v ið s
Íslandsbanka, segir skýringuna
meðal annars minni eftirspurn og
varkárni í lánveitingum. Bankarnir
velji verkefni sín vel. – kij / sjá síðu 8
Útlán minnkuðu
um 56 prósent
52
íbúðir eru nú í eigu
Hrjáfs, félags Róberts
Wessmann.
Japanski túnfiskskurðarmeistarinn Nobuyuki Tajiri og CrossFit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir skera tveggja metra langan bláuggatúnfisk á túnfiskhátíð sem stendur nú yfir. Gestir
fylgjast spenntir með skurðinum á ferlíkinu sem er einn dýrasti fiskur heims. Tegundin hefur gengið inn á Íslandsmið á undanförnum árum vegna hækkandi sjávarhita. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR