Fréttablaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 22
bestar því það er ekki verið að
búa til kemískar blöndur. En aftur
á móti þurfum við oft kemískar
blöndur svo hárið á okkur lokist, en
það lokast ekki nema með silíkoni,
en þá komum við aftur að því að
silíkon er til frá stigi 1 og upp í 10 og
best er að velja þær vörur sem inni-
halda sem minnst silíkon,“ segir
Hermann.
Mikið áreiti á húðina
Hann segir mikilvægt fyrir Íslend-
inga að hugsa vel um hárið á sér og
hársvörðinn. „Við búum á eyju þar
sem er mikið áreiti á húðina eins
og vindur, salt og miklar hitabreyt-
ingar jafnvel sama daginn. Þess
vegna er mikilvægt að passa hvað
við notum á húðina, við þurfum
að passa okkur á þessum efnum
sem ég nefndi áðan en við þurfum
líka að passa okkur á ilmefnum
sem geta valdið kláða og ertingu í
hársverðinum. Þá er betra að nota
náttúruleg ilmefni úr olíum.“
Eitt ráð sem flestir kannast
eflaust við er að setja aldrei hárnær-
ingu í hársvörðinn. Hermann segir
það gamalt og úrelt húsráð sem er
líklega stór ástæða ýmissa vanda-
mála í hársverði hjá Íslendingum.
„Þetta ráð er svona 80% rangt og
20% rétt. Öll sjampó, sama af hvaða
tegund þau eru, eru með miklu
hærra pH-gildi en húðin og hárið
okkar þurfa. Ástæðan er að til að
sjampóið nái að leysa öll óhreinindi
og olíur úr hársverðinum verður
pH-gildið að vera hátt. Hárnæring
er aftur á móti með rétta pH-gildið
fyrir húðina og hárið og með því
að setja hana í hársvörðinn jöfnum
við sýrustig hans eftir hárþvott,“
útskýrir Hermann.
„Þetta þýðir samt ekki að við
eigum að nudda hárnæringu í hár-
svörðinn. Við eigum að byrja að
setja hana í endana og dreifa henni
um hárið svo hún smiti sér út í
hársvörðinn. Ef við setjum of mikla
hárnæringu í hársvörðinn þá fitnar
hárið svo þetta er alltaf spurning
um að finna ballans.“
Auk þess að reka hárgreiðslu-
stofurnar og vefverslunina og fræða
fylgjendur á samfélagsmiðlum um
ýmislegt sem varðar hárið hefur
Hermann líka séð um hárgreiðslur
fyrir Miss Universe Iceland keppn-
ina og greitt hár fyrir auglýsingar,
tímarit og sjónvarpsþætti. „Ég er
alltaf í einhverjum verkefnum. En
mér finnst skemmtilegast að pæla
í vöruinnihaldi og miðla þekkingu
til viðskiptavina.“
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS
ÚTSALAN Í FULLUM GANGI
30-50% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM ÚTSÖLUVÖRUM
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga
Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Hermann segir að uppruna-lega hafi hann fengið áhuga á hárgreiðslu þegar hann
fylgdist með ömmu sinni setja
rúllur í hárið þegar hann var lítill
strákur.
„Ég átti yndislega ömmu sem
rúllaði upp á sér hárið og ég fylgdist
oft með sem krakki og mér fannst
þetta mjög heillandi og fallegt. Svo
deyr amma mín mjög ung og það
sat svo í mér að hafa misst þessa
stund með henni að horfa á hana
laga á sér hárið og hjálpa henni með
rúllurnar. Það var það sem kveikti
fyrst áhuga minn á hárgreiðslu,“
segir Hermann.
„Ástæðan fyrir að ég fór svo að
læra hárgreiðslu var dömublástur.
Þegar ég var að læra greindist ég
með ólæknandi sjúkdóm og þurfti
alltaf að fara í lyfjagjöf á St. Jósefs-
spítala. Ég æfði mig alltaf í blæstri
á aðfangadag, þá komust margar
konur af spítalanum ekki heim til
sín svo ég æfði mig á að blása hárið
á þeim. Ég hélt svo í hefðina til að
muna af hverju ég fór að læra þetta
og fór á St. Jósefsspítala og fékk
eldri dömurnar til að kenna mér
þetta almennilega því þær voru
bestu kennararnir.“
Hermann segir að dömublástur
sé enn í miklu uppáhaldi. „Mér
finnst alltaf gaman þegar ég fæ
til mín fallegar eldri konur og ég
get blásið hárið á þeim og spjallað
við þær á sama tíma. Ég fæ alltaf
einhverja svona unaðstilfinningu
og hugsa: Æi, hvað ætli amma sé að
gera? dramadrottningin ég,“ segir
Hermann og hlær.
Óholl efni skemma
fyrir hollu efnunum
Eftir að Hermann fór að læra
hárgreiðslu kviknaði líka áhugi á
klippingu og litun en sérstaklega
á innihaldslýsingu í hárvörum.
„Maður þarf að vera með mjög
meðvitaður um hvað maður er að
nota í vörum. Þess vegna fór ég að
reyna að læra hvaða efni eru slæm,
hver góð og af hverju og hvernig við
getum stuðlað að betri heilsu innan
á hárinu og utan á hárinu,“ segir
hann.
„Þá komum við alltaf að silí-
koni, súlfati og parabenum. Þessi
efni eru til í stigum frá einum upp
í tíu eftir hversu slæm þau eru. Og
staðreyndin er bara sú að það er allt
of mikið af professional hárvöru-
merkjum í heiminum sem spara í
innihaldinu hjá sér og nota ódýrar
blöndur. Ef ég skoða innihaldið er
kannski helmingurinn af efnunum
slæmur efni og hinn helmingurinn
góður. Þessi óhollu skemma alltaf
meira fyrir þessum hollu.“
Hermann rekur Modus hár og
snyrtistofu í Smáralind og Modus
hárgreiðslustofu á Glerártorgi
á Akureyri auk þess sem hann
rekur vefverslunina Hárvörur.is
og heldur úti Snapchat- og Insta-
gramreikningi undir merkjum
vefverslunarinnar.
„Við erum með umhverfisstefnu
í fyrirtækinu. Ef merkin falla ekki
undir ákveðnar umhverfiskröfur
sem við setjum okkur, þá getum
við ekki selt vörurnar eða merkin.
Við teljum okkur bera samfélags-
lega ábyrgð gagnvart kúnnanum og
gagnvart umhverfinu.“
Á Snapchat-reikningnum sem
Hermann segir að hafi allt að
80.000 áhorf á viku gefur hann
reglulega góð ráð um hárumhirðu
og fræðir fólk um hvaða vörur er
best að nota fyrir hárið.
„Náttúrulegar vörur eru yfirleitt
Áhuginn á hár-
greiðlsu kvikn-
aði hjá Hemma
þegar hann var
lítill strákur og
fylgdist með
ömmu sinni
setja í sig rúllur.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
Hermann
hefur tekið að sér
að gera alls konar
hárgreiðslur, hér
er brúðargreiðsla
eftir hann.
Við búum á eyju
þar sem er mikið
áreiti á húðina eins og
vindur, salt og miklar
hitabreytingar jafnvel
sama daginn.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R