Fréttablaðið - 23.01.2020, Qupperneq 34
Og hér erum við,
tvær konur sem
horfa björtum augum á
næstu ár og komandi
verkefni enda ekki
annað hægt.
KVARTZ er markaðsstofa sem aðstoðar fyrirtæki við að ná betri árangri m.a. þegar
kemur að stafrænni nálgun, hönn-
un, umsjón með samfélagsmiðlum
og framleiðslu. „Í raun má segja
að við séum flæðandi markaðs-
deild sem aðstoðar fyrirtæki við
markaðs- og kynningarmál. Við
viljum miðla af reynslu, leiðbeina
og þjálfa og aðstoða fyrirtæki við
að koma hugmyndum og verk-
efnum í framkvæmd,“ segir Lovísa
og Unnur bætir við: „Við fundum
strax fyrir mikilli eftirspurn fyrir-
tækja sem voru að leita að persónu-
legri þjónustu frá minni einingum
sem hafa kost á því að veita ráðgjöf
sniðna að þörfum hvers fyrirtækis
fyrir sig. En KVARTZ er einmitt þar
og eru verkefnin því mjög fjöl-
breytt og skemmtileg. Frá upphafi
var hugmyndin með KVARTZ sú
að vinna náið með hönnuðum,
ljósmyndurum og upptökuteymi
og hafa þar af leiðandi kost á því að
velja rétta fólkið í verkefnin hverju
sinni. Með þessu náum við að
halda yfirbyggingunni í lágmarki
sem að sjálfsögðu skilar sér í lægra
verði.“
Unnur og Lovísa hafa starfað við
auglýsingar, markaðs- og kynn-
ingarmál í gegnum þau störf sem
þær hafa gegnt undanfarin ár.
„Við kynntumst einmitt á þeim
vettvangi, ég var þá markaðsstjóri
BESTSELLER og Unnur markaðs-
fulltrúi hjá 365 miðlum. Við
unnum saman að fjölda verkefna
sem þróaðist svo mjög fljótt í gott
vinasamband enda áhugamálin
mjög svipuð,“ segir Lovísa.
Grunnurinn að fyrirtækinu
var lagður þegar þær hittust af
tilviljun á göngu á Helgafelli. „Við
fórum í kjölfarið að ræða nokkrar
hugmyndir sem við höfðum báðar
gengið með í maganum í þó nokk-
urn tíma og vorum sammála um
að það þyrfti að efla hlut kvenna á
þessu sviði,“ segir Unnur. Þær hitt-
ust því aftur stuttu síðar til þess að
taka upp þráðinn og þá varð ekki
aftur snúið. „Og hér erum við, tvær
konur sem horfa björtum augum
á næstu ár og komandi verkefni
enda ekki annað hægt,“ segir
Lovísa brosandi.
Þarf kjark og þor
til að taka skrefið
Unnur og Lovísa vonast til að
konur líti til fyrirtækja eins og
KVARTZ eftir innblæstri til þess
að láta drauma rætast og nýta
þann mikla kraft sem býr í konum.
„Það er staðreynd að það hallar
verulega á okkur þegar við lítum
til hlutfalls kvenna í stjórnenda-
stöðum meðal annars í auglýsinga-
og markaðsgeiranum. Það er alveg
nóg pláss fyrir okkur og jafnara
hlutfall er bara hollt fyrir okkur
öll – það er engin spurning,“ segir
Unnur og bætir við: „Eftir því
sem við komumst næst erum við
eina stofan þar sem eignarhald
er eingöngu í höndum kvenna og
við erum mjög stoltar af því, enda
er staða kvenna á vinnumarkaði
okkur hugleikin.“
Reynsla og áhugi
á sölu og þjónustu
Unnur og Lovísa hafa tekið að sér
fjölbreytt verkefni auk þess að
kenna námskeið í sölustjórnun hjá
Markaðsakademíunni. Ásamt því
hafa þær haldið sérsniðin nám-
skeið fyrir fyrirtæki í verslun og
þjónustu.
„Að vinna með Markaðsaka-
demíunni hefur verið mjög
skemmtilegt og gaman að kynnast
fjölbreyttu og flottu fólki sem
starfar við sölu og þjónustu,“ segja
þær. Á námskeiðinu hjálpa þær
fólki og fyrirtækjum að efla og
nýta þau tól sem til eru til að efla
sölu og þjónustu innan sinnar ein-
ingar. „Við teljum að það sé mikil
þörf á námskeiði sem þessu enda
hafa viðtökurnar verið gríðarlega
góðar. Við hlökkum til að taka á
móti næsta hópi þann 12. febrúar
næstkomandi.“
En af hverju FKA?
Þær segja FKA vera frábæran
félagsskap kvenna úr öllum
atvinnugreinum. „Það er virki-
lega gaman að vera hluti af slíku
tengslaneti en FKA styður kven-
leiðtoga, styrkir og leiðbeinir. Við
erum stoltar af því að vera hluti
af FKA og hlökkum til að kynnast
enn fleiri f lottum konum. Hlutfall
kvenna í stjórnendastöðum er
bara of lágt því miður, við þurfum
að gera betur,“ segja þær stöllur að
lokum.
Markaðskonur láta til sín taka
Lovísa Anna Pálmadóttir og Unnur María Pálmadóttir reka markaðs- og viðburðastofuna
KVARTZ en þær sérhæfa sig í markaðs- og auglýsingaráðgjöf og stafrænni markaðssetningu.
Lovísa Anna og Unnur María hjá KVARTZ nýta þekkingu sína og reynslu til
að aðstoða fyrirtæki við markaðs- og kynningarmál. MYND/GASSI
Rafiðnaðarsamband Íslands er stoltur bakhjarl UN Women
RAFIÐNAÐARSTÖRF ERU LÍKA KVENNASTÖRF
12 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RKONUR Í ATVINNULÍFNU