Fréttablaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 23.01.2020, Blaðsíða 45
Hvernig nýtir þú þína styttingu? Vinnudagur félagsmanna VR styttist um 9 mínútur 1. janúar 2020. Ef ekki er búið að semja um útfærslu á þínum vinnustað þá styttist vinnudagur þinn strax um 9 mínútur. Kynntu þér mögulegar útfærslur á vr.is/9min Á DAG Á VIKU Á MÁNUÐI3 51 54 9 Hvernig er samkomulagið á þínum vinnustað? Vinnudagur félagsmanna VR hefur styst um 9 mínútur Heyrnar- og talmeinastöð Íslands sinnir stórum hópi einstaklinga á degi hverjum. Hún þjónustar börn og fullorðna, þá sem farið hafa í kuðungs- ígræðslu, fólk með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, suð fyrir eyrum og aldraða sem eru farnir að heyra illa. Einnig býður HTÍ aðstandendum fræðslu og ráðgjöf. Þar starfar fjöldi sérfræðinga, m.a. heyrnarfræðingar. „Heyrnarfræði er þverfagleg grein sem tvinnar saman líffræði, hugvísindi, eðlisfræði og tækni- fræði. Sem vísindagrein snýst hún um að rannsaka mismunandi tegundir heyrnarskerðingar og lögð er áhersla á að nálgast endurhæfingu heyrnarskertra á heildrænan hátt,“ segir Kristbjörg Gunnarsdóttir. „Heyrnarfræði snýst einnig um að greina orsök heyrnarskerð- ingar og afleiðingar hennar á líf einstaklingsins og hvaða með- höndlun hentar hverju sinni. Í dag snúast rannsóknir vísindamanna helst að því hvernig hægt er að koma í veg fyrir heyrnarskerðingu. Mikil tækniþróun er á þessu sviði sem snýr að því að létta heyrnar- skertum lífið,“ bætir Kristbjörg Pálsdóttir við. Þær eru sammála um að starf heyrnarfræðings sé fjölbreytt og áhugavert. Það felst m.a. í heyrnar- mælingu, ráðgjöf um val og still- ingu á heyrnartækjum og öðrum hjálpartækjum, sem og skipu- lagningu á endurhæfingu. „Við vinnum með einstakl- ingum á öllum aldri, með allar tegundir heyrnarskerðingar. Hægt er að sérhæfa sig á ákveðnum sviðum, svo sem heyrnarskerð- ingu barna, kuðungsígræðslu, tinnitus, heilastofnsmælingum og fleiru,“ segir Kristbjörg Pálsdóttir. Nafna hennar bætir við að þróun á sviði heyrnarfræðinnar sé hröð, bæði hvað varðar tækni og læknisfræði. „Góð undirstöðu- þekking á heyrnarfræði er nauð- synleg til að tileinka sér nýja tækni og geta um leið horft gagnrýnum augum á hana. Siðferði er mikil- vægt í þjónustu við einstaklinga með heyrnarskerðingu, líkt og hjá öðrum heilbrigðisstéttum. Við val á heyrnartækjum og öðrum hjálpartækjum er t.d. nauðsynlegt að þörf einstaklingsins sé höfð í forgangi en ekki sölusjónarmið.“ Vantar fleiri heyrnarfræðinga Þær segja brýna þörf á f leiri vel menntuðum heyrnarfræðingum þar sem þjóðin sé að eldast og stöðug fleiri glími við heyrnar- skerðingu. Vorið 2018 fengu heyrnarfræðingar löggildingu sem heilbrigðisstétt. Fagið er ekki kennt á Íslandi en hægt er að fara í nám t.d. til Svíþjóðar, Noregs, Bretlands, Bandaríkjanna og Ástralíu. Kristbjörg Pálsdóttir er sérhæfð í heyrnarskerðingu barna, endur- hæfingu og fræðslu til foreldra. „Á Heyrnar- og talmeinastöð Íslands sjáum við um að greina heyrnar- skerðingu hjá börnum og með- höndla hana eftir þörfum hvers og eins. Með tilkomu nýburaskimana höfum við nú möguleika á að finna heyrnarskerðingu fyrr og þá er hægt að hefja meðhöndlun fyrr sem eykur líkur á nær eðlilegum málþroska. Sumir geta ekki nýtt sér hefðbundin heyrnartæki og hafa þá möguleika á að fara í kuðungsígræðslu, bæði börn og fullorðnir. Þá er rafskautum komið yfir í kuðungi innraeyrans sem örva þannig taugaenda heyrnar- taugarinnar í stað hárfrumnanna. Við erum líka með svokölluð beinleiðnitæki, sem hjálpa þeim sem glíma við miðeyrnavandamál og geta ekki nýtt sér hefðbundin heyrnartæki.“ Kristbjörg Gunnarsdóttir segir heyrnarskerðingu hjá fullorðnum vaxandi vanda þar sem fólk lifi að jafnaði lengur nú en áður. „Heyrn- arskerðing flokkast sem krónískur sjúkdómur en þeir eiga það sam- eiginlegt að breyta lífsgæðum og lífsformi einstaklinga, oftast til frambúðar. Ekki er einungis brýnt að greina heyrnarskerðingu heldur er endurhæfing líka mikilvæg. Endurhæfing felur í sér marg- þættar aðgerðir með það markmið að bæta stöðu þess heyrnarskerta í samfélaginu og stuðla að því að viðkomandi læri að lifa með henni. Aðgerðirnar eru og eiga að vera einstaklingsmiðaðar og leiða til þess að einstaklingurinn verði sjálfstæður og virkur þátttakandi í samfélaginu. Með hækkandi aldri fjölgar þeim sem glíma við hvort tveggja í senn; heyrnarskerðingu og sjónskerðingu og það hefur margföldunaráhrif á lífsgæði ein- staklingsins.“ Vinna við að bæta lífsgæði fólks Kristbjörg Gunnarsdóttir og Kristbjörg Pálsdóttir, heyrnarfræðingar hjá Heyrnar- og talmeina- stöð Íslands, segja fagið áhugavert og fjölbreytt. Það snúist um lífsgæði barna og fullorðinna. „Brýn þörf er á fleiri heyrnarfræðingum því þjóðin er að eldast og stöðug fleiri glíma við heyrnarskerðingu,“ segja þær nöfnur hjá Heyrnar- og tal- meinastöð Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXKYNNINGARBLAÐ 23 F I M MT U DAG U R 2 3 . JA N ÚA R 2 0 2 0 KONUR Í ATVINNULÍFINU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.