Fréttablaðið - 23.01.2020, Side 68

Fréttablaðið - 23.01.2020, Side 68
Litríkir, munstraðir kjólar og stuttir jakkar við buxur eru skilaboðin frá Armani fyrir komandi vor og sumar. Ítalski tískuhönnuðurinn Giorgio Armani sýndi hátískuna fyrir vor og sumar komanda á tískuvikunni í París í fyrradag. Þar fór hann með áhorfendur í ferðalag sem hófst á malasískum flóamarkaði fyrir þrjátíu árum en endaði á nýjum áfangastað í hliðstæðum alheimi nútímans. Við hönnun litríks kvenklæðnaðar fyrir sumarið 2020 var Armani undir áhrifum þess sem fyrir augu bar þegar hann skoðaði malasísk munstur í teppum sem ofin voru og lituð djúpum, undurfögrum litum. Þar keypti hann sér munstrað og litríkt teppi sem hann saumaði úr þrjá jakka sem hann notaði í sumartískuna sína 1990 og segist Armani hafa heillast af óskýrleika munstursins. Hann segir hátískuna engan hægðarleik að vinna en í þetta sinn hafi hann viljað leggja sér- staka áherslu á kvöldklæðnað kvenna og gera hann einstakan. Áhrifin eru exótísk, allt frá kínabláu til smaragðsgræns með kynstrunum öllum af skrautlegum útsaumi, mynstrum og kristöllum. Stuttir jakkar og litríkar buxur; einlitar, munstraðar eða bróderaðar fyrir fagra sumardaga á meðan kvöldklæðnaðurinn var f lóknari með léttri pilsaglennu til að þenja út pils, útsaumuðu tjulli og löngum þráðum í bláum og grænum kjólum, svörtum grunni og rauðu og purpuralitu ívafi. Exótískt sumar frá malasískum flóamarkaði Vor- og sumartíska Armani er undir heillandi áhrifum fram- andi slóða; kvenleg, seiðandi og til þess fallin að vekja athygli fyrir dulúðugt litaval og dáleiðandi munstur. Buxur Kjólar Túnikur Jakkar Toppar Bolir Peysur Str. 36-56 Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook 20% aukaafsláttur af allri útsöluvöru Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna NETVERSLUN WWW.BELLADONNA.IS ÚTSALAN Í FULLUM GANGI 30-50% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM ÚTSÖLUVÖRUM DAG HVERN LESA 96.000 ÍSLENDINGAR FRÉTTABLAÐIÐ AÐ MEÐALTALI HEIMILD: PRENTMIðLAMÆLING GALLUP APR-JÚN 2019, 12-80 ÁRA, ALLT LANDIð HAGSTOFA ÍSLANDS, MANNFJÖLDATÖLUR, 2019 FRÉTTABLAÐIÐ - MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.