Fréttablaðið - 23.01.2020, Side 74
BÍLAR
Nýr Toyota Yaris kemur á markað á þessu ári og í kjöl-farið mun koma svokölluð
GR-útgáfa. GR Yaris er hannaður í
sameiningu af Toyota Gazoo Racing
og Tommi Makinen Racing. Meðal
þess sem er sérstakt fyrir þennan
bíl er sérhönnuð 1,6 lítra, þriggja
strokka vél með forþjöppu sem
skilar 261 hestaf li. Bíllinn verður
snöggur í hundraðið eða 5,5 sek-
úndur og verður hámarkshraði tak-
markaður við 230 km á klst. Einnig
er hann á sérhannaðri grind með
tveggja dyra byggingarlagi ásamt
sérhannaðri fjörðun. Gírkassinn er
beinskiptur sex gíra kassi og hann
verður að sjálfsögðu búinn fjór-
hjóladrifi. Að sögn Yumi Otsuka,
framkvæmdarstjóra Gazoo Racing,
tekur Makinen Racing mikinn þátt
í þróunarferlinu. „Þeir hafa sérstak-
lega tekið þátt í hönnun fjórhjóla-
drifsins og hjálpað okkur að ákveða
hvernig við dreifum þyngdinni,“
sagði Otsuka. „Einnig var sérfræði-
þekking þeirra hvernig við léttum
og styrkjum grind og yfirbygg-
ingu bílsins mjög mikilvæg,“ sagði
Otsuka í viðtali við blaðamann
Fréttablaðsins. GR Yaris mun ekki
nota neitt af þeirri yfirbyggingu
sem hefðbundinn Yaris notar, svo
frábrugðinn er hann.
Toyota GR Yaris er í raun og
veru fyrsta tilraun framleiðand-
ans í mörg ár til að búa til rallbíl
sem höfðar til nýrrar kynslóðar.
Sumir muna eftir bílum eins og
Celica GT-Four sem kepptu við
Subaru Impreza og Mitsubishi
Lancer Evolution. Framleiðendur
höfðu ekki undan að framleiða
götuútgáfur sem byggðu á þessum
keppnisbílum. „Það er gaman að sjá
hvernig Toyota ætlar að viðhalda
mótorsporthefðinni eins og með
þessum bíl,“ sagði Páll Þorsteins-
son, upplýsingafulltrúi Toyota,
sem staddur var í Amsterdam. „Því
miður er ekki stór markaður fyrir
bíl eins og þennan á Íslandi en
hægt verður að sérpanta hann óski
þess einhver,“ sagði Páll. Sérhanna
þurfti undirvagn og yfirbyggingu
Yaris sem keppnisbíls og þess vegna
þótti sjálfsagt að koma með fram-
leiðsluútgáfu byggða á því. Þótt
Toyota hafi ekkert gefið uppi um
verð GR Yaris er líklegt að þessi bíll
bjóði upp á „ódýr hestöf l“ eins og
GTI-bílar níunda áratugarins gerðu.
Von er á bílnum í sölu í Evrópu í lok
þessa árs.
Grimmur Toyota GR Yaris verður 261 hestafl
Toyota-merkið fer mik-inn um þessar mundir og bauð bílablaða-mönnum á sérstaka ráðstefnu í Amsterdam í síðustu viku til að
kynna hvað væri á döfinni hjá þeim
á árinu. Ráðstefnan kallast Kenshiki
Forum en það er japanska fyrir inn-
sæi eða að auka skilning. Óhætt er
að segja að skilningur blaðamanna
hafi verið mun meiri eftir að hafa
eytt degi á ráðstefnunni en þar
var marg nýtt og spennandi upp-
lýst. Má þar nefna framleiðslugerð
Mirai-vetnisbílsins sem var frum-
sýndur þarna, en einnig var RAV4
í tengiltvinn útgáfu Evrópufrum-
sýndur. Frá Lexus mátti sjá hinn
nýja LF-30 framtíðarbíl auk UX 300e
sem er fyrsti 100% raf bíll Lexus-
merkisins. Loks lék Gazoo Racing
stórt hlutverk líka en þeir frum-
sýndu nýjan GR Yaris og tveggja lítra
Supra fyrir Evrópumarkað. Síðast en
ekki síst frumkynnti Toyota nýtt
merki, Kinto, sem stendur fyrir
ferðalausnir hvaða nafni sem þær
kunna að nefnast, allt frá hlaupa-
hjólum upp í heildarlausnum fyrir
stórfyrirtæki eða borgir.
Toyota með nýja gerð
Supra fyrir Evrópumarkað
Meðal þess sem að Toyota kynnti
á Kenshiki-ráðstefnunni í Amst-
erdam var ný útgáfa Supra-sport-
bílsins með tveggja lítra vél. Vélin
kemur frá BMW Z4 og er fjögurra
strokka með forþjöppu og skilar 258
hestöflum. Upptak þessa bíls er 5,2
sekúndur í hundraðið eða aðeins
0,8 sekúndum minna en í þriggja
lítra bílnum, en þessi uppsetning
skilar sér í bíl sem er 100 kg léttari.
Togið er 400 newtonmetrar og við
vélina er átta þrepa ZF sjálfskipting.
Það vekur athygli að mengunargildi
vélarinnar er aðeins 156 g/km af
CO2 sem þýðir að bíllinn ætti ekki
að kosta of mikið hérlendis komi til
innflutnings á honum. Toyota sýndi
bílinn í svokallaðri Fuji Speedway
útgáfu sem er hvít með rauðum
Margar spennandi nýjungar
kynntar í Amsterdam
Toyota- og Lexus-merkin sækja í sig veðrið á Evrópumarkaði og héldu á dögunum
Kenshiki-upplýsingaráðstefnuna í Hollandi en Kenshiki þýðir að auka skilning á japönsku.
Meðal nýjunga voru spennandi rafbílar, vetnisbílar og sportbílar frá Gazoo Racing.
Fyrsti rafmagnsbíll Lexus er UX jepplingur sem verður með 201 hestaf la rafmótor og 300 km
drægi.
Lexus UX 300e verður fyrst um
sinn seldur í Kína en er væntan-
legur á Evrópumarkað snemma
á næsta ári. Bíllinn er búinn 54,3
kWh rafhlöðu og rafmótor bílsins
knýr framhjólin. Sá skilar 201
hestafli og 300 newtonmetra togi
sem gefur honum viðbragðstíma
uppá 7,5 sekúndur í hundraðið
en hámarkshraðinn er aðeins 160
km á klst. Undirvagninn er breytt
útgáfa TNGA GA-C undirvagnsins
sem er einnig undir tvinnútgáfu UX
og nýjum C-HR. Innréttingin er sú
sama og í UX tvinnbílnum en lagt
hefur verið meira í hljóðeinangrun
í þessum bíl. Farangursrýmið er
reyndar aðeins stærra og rúmar
367 lítra. Að utan er bíllinn meira að
segja lítið breyttur, með breyttum
áherslum á grilli og framstuðara.
Lexus sýnir
UX 300e
rafjeppann
Rafútgáfu UX jepplingsins vakti
athygli á Kenshiki ráðstefnunni.
Yumi Otsuka er framkvæmdarstjóri Gazoo Racing sem ásamt Makinen
Racing kemur mjög mikið að hönnun þessa verklega bíls.
Meðal þess sem frumsýnt var í Amsterdam var ný kynslóð Mirai-vetnisbílsins.
Upptak Toyota Supra með tveggja lítra vélinni er 5,2 sekúndur enda bíllinn
100 kg léttari en þriggja lítra útgáfan sem er aðeins 0,8 sekúndum fljótari.
Carloz Sainz sem keppir á Mini vann hið erfiða Dakarrall eftir 13 daga erfiða keppni.
Hann kom í mark sex mínútum og
21 sekúndu f ljótari en Nasser al-
Attiyah á Toyota sem vann keppn-
ina í fyrra.
Sainz er 57 ára gamall Spánverji
og hefur tvisvar unnið keppnina
áður árið 2010 og 2018. Fyrrver-
andi heimsmeistari í Formúlu 1,
Fernando Alonso, náði þrettánda
sæti í sinni fyrstu tilraun við Dak-
arrallið, en hann lenti í tveimur
óhöppum í keppninni. Sá sem varð
þriðji var enginn annar en Stephan
Peterhansel en hann hefur unnið
Dakarrallið alls 13 sinnum á bílum
og mótorhjólum.
Sá sem vann keppnina í mótor-
hjólaf lokki var Ricky Brabec og
er hann fyrsti Ameríkaninn til að
vinna keppnina. Hann keppir á
Honda sem hafði ekki unnið Dakar-
rall í 31 ár. Með sigrinum stöðvaði
hann 18 ára sigurgöngu KTM í
Dakarrallinu sem hefur unnið óslit-
ið síðan 2001. Í trukkaf lokki var
það Andrey Karginov sem vann á
Kamaz 42 mínútum á undan næstu
keppendum.
Mini vann
Dakarrallið
Njáll
Gunnlaugsson
njall@frettabladid.is
Carloz Sainz hefur tvisvar sinnum
unnið Dakarrallið áður.
speglum og svörtum felgum. Sala á
bílnum mun hefjast í mars í Evrópu.
RAV4 í tengiltvinnútgáfu
Toyota RAV4 er nú á sinni fimmtu
kynslóð en segja má að með þessum
bíl hafi jepplingshugtakið verið
fundið upp. Nýr RAV4 var vinsæl-
asti bíll ársins í fyrra á Íslandi og
það sem kaupendum hérlendis gæti
þótt spennandi er tengiltvinnú-
tgáfa hans sem kemur til landsins
á árinu. „Þar erum við að tala um
einn öflugasta bíl sem Toyota býður
upp á en hann er rúm 300 hestöfl,“
sagði Páll Þorsteinsson, upplýsinga-
fulltrúi Toyota. „Bíllinn er aðeins
6,2 sekúndur í hundraðið en hann
verður kynntur hérlendis seinna á
árinu,“ sagði Páll enn fremur. Mun
bíllinn nota sömu 2,5 lítra vél og í
tvinnbílnum en fá stærri rafhlöðu
svo hann kemst 61 km á rafmagninu
einu saman.
2 3 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R26 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð