Gríma - 24.10.1932, Blaðsíða 59
HULDUSTÚLKA KALLAR Á FERJU
57
12.
Hulðnstnlka kallar á terjn.
(Sögn Vilb. Friðfinnsdóttur á Gvendarstöðum í Kinn 1906.
Handrit Jónasar Jónssonar í Hriflu).
Svo bar við eitt haust á fyrri hluta 19. aldar, að
karlmenn fóru í kaupstað af nokkrum bæjum í Bárð-
ardal, svo að ekki var eftir heima nema börn og
kvenfólk. Góðri stundu eftir að þeir voru farnir,
kemur vinnukona, Helga að nafni, út á hlað á Hall-
dórsstöðum. Heyrir hún þá, að einhver kallar ferju,
en lögferja var þá, og er enn, á Litluvöllum, næsta
bæ norðan við Halldórsstaði. — Eru báðir þeir bæir
vestan við Skjálfandafljót, sunnarlega í dalnum. —
Stúlkan gengur inn og segir húsmóður sinni frá;
kveðst hún vilja ferja manninn, en á Litluvöllum sé
engin sál í bænum, nema konan með ung börn og
muni hann því enga hjálp fá þar. Konan leyfir henni
að fara, ef hún treysti sér til. Gengur Helga nú út
að Litluvöllum, og hafði kallið heyrzt þar líka. Sér
Helga nú þann, sem kallaði; er það kona, sem situr
á fljótsbakkanum við ferjustaðinn. Gefur hún kon-
unni auga meðan hún gengur ofan að ferjunni, en
þegar hún er komin ofan að fljótinu, sér hún engan.
Rær Helga þó yfir um, en þá fer á sömu leið, að
göngukonan er alveg horfin. Beitarhús eru þar
skammt frá, og leitar Helga þar, ef vera kynni að
konan biði hennar þar; en þar sást enginn. Verður
Helga nú að fara heim við svo búið og þykir atburð-
ur þessi kynlegur.
Nóttina eftir dreymir Helgu, að til hennar komi