Gríma - 24.10.1932, Page 63

Gríma - 24.10.1932, Page 63
LJÚFLINGS-BJARNI 61 dvaldi stutta stund hjá þeim. Þess varð eg bráðlega áskynja, að báðar systurnar elskuðu mig og vildu fá mig að eiginmanni, því að báðar sóttust þær eftir að njóta ástar minnar. Þótt báðar væru þær fagrar, elskaði eg aðeins aðra þeirra, þá yngri, sem hörpuna sló; hún hafði gagntekið svo hjarta mitt með söng sínum, að eg mátti eigi af henni líta. Þetta varð þeim systrum misklíðarefni, svo að þær deildu um mig á degi sem nóttu; tók eg mér það mjög nærri, en fékk ekki að gert. Svo fór að lokum, að til skarar skreið með systrunum; fylltist sú eldri heift og reiði og mælti af miklum móði : Sé eg það systir, sorg er fyrir höndum; hryllir minn huga við hermdarverkum. Þó skaltu aldrei auðnu bera að njóta þess manns, er mest eg unni. Heit er mín ást sem eldur logi, en heitari skal heift min til hefndar vera; því skaltu dauð á þessum degi, áður sól er setzt að sævi köldum. Þá svaraði yngri systirin og mælti: Brátt þótt búir mér banaráð og hafir heiftarorð, er hrína fast, skal eg gjalda grimmt gremju þína

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.