Gríma - 24.10.1932, Page 81

Gríma - 24.10.1932, Page 81
NAUTHVELI A SKJÁLFANDA 79 gangi og boðaföllum. Skipverjar urðu fjöri fegnir og reru í skyndi heim til sín. — Nokkurn tíma eftir þenna atburð heyrðist öskur nauthvelisins öðru hvoru úr Grímsey, og þorðu eyjarskeggjar ekki að sækja kú í annað sinn. En svo hvarf nauthveli þetta af þeim slóðum og hefur þess ekki orðið vart síðan; hafa Grímseyingar oft flutt kýr út í eyna síðan og jafnan gengið slysalaust. 26. „Mtkið er andvaralejsl mannanna!" (Eftir handriti Hannesar Jónssonar í Hleiðargarði. Sögn Daníels Daníelssonar í Hólakoti). Einu sinni var vinnukona í Hólum í Eyjafirði lát- in vaka þar yfir túninu að vorlagi; var nótt albjört. Eina nótt, er hún var úti við, sótti hana svefn ákaf- lega; var hún þá stödd rétt við kirkjugarðinn. Af því að hún sá engar skepnur í nánd, lagðist hún und- ir kirkjugarðinn og sofnaði þegar. Ekki vissi hún, hve lengi hún svaf, en hana dreymdi, að ókenndur maður kæmi fram á kirkjugarðinn yfir höfði henni. Stóð náungi þessi kyrr nokkra stund og yrti ekki á hana, en loksins tók hann til máls með hárri og hvellri röddu og mælti: »Mikið er andvaraleysi mann- anna!« Við þessi orð hans hrökk stúlkan upp og þóttist um leið sjá manninn hverfa inn af garðinum. Stóð hún þá upp og litaðist um. Hefur hún vafalaust sofið töluvert lengi, því að þá var túnið orðið fullt af fénaði. — Hefur garðbúa ekki þótt stúlkan rækja starf sitt sem skyldi.

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.