Bændablaðið - 28.01.2016, Blaðsíða 29

Bændablaðið - 28.01.2016, Blaðsíða 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 2016 Starfsmaður óskast í vinnslusal Starfslýsing og helstu verkefni. Hlutverk starfsmanns í sal er að aðstoða við að hengja upp á króka, hreinsa og pússa málmhluti til lökkunar. Einnig þarf i að taka niður hlutina, pakka inn og ganga frá til afgreiðslu ásamt annarra tilfallandi starfa. Menntunar- og hæfniskröfur. Starfsmaður þarf að geta talað/skilið íslensku, vera röskur, heilsuhraustur og stundvís. Mikill kostur ef viðkomandi hefur lyftararéttindi og/eða iðnmenntun. Eldri en 25 ára er skilyrði. Um er að ræða 100% starf. Vinnutími er 8:00-16:00. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir og fyrirspurnir sendist á netfangið helga@ polyhudun.is fyrir 10.febrúar 2016. Öllum umsóknum verður svarað og farið með sem trún- aðarmál. Pólýhúðun er nútíma lökkunarfyrirtæki búið nýjustu tækni til duftlökkunar á málmhlutum. Starfsemin hefur verið í Kópavogi síðan 1998. Í hverjum mánuði eru húðaðir þúsundir fermetra af hinum ýmsu verkefnum allt frá smá skrúfum upp í bíla og trakt- orsgrindur. Fjölbreytni er eitt af kjörorðum okkar enda er ekkert verkefni svo smátt eða stórt að við tökum ekki á því. Starfsmenn fyrirtækisins eru 9. Smiðjuvegi 3 - 200 Kópavogur - Sími 544 5700 - www.polyhudun.is fyrirtækjafánar hátíðarfánar þjóðfána borðfána bannerar Handverkshátíðin við Hrafnagils- skóla verður haldinn í 24. sinn dagana 4.–7. ágúst næstkomandi. Á sama tíma fer fram landbún- aðarsýning þar sem söluaðilar og bændur munu taka höndum saman um að kynna helstu nýj- ungar í íslenskum landbúnaði. Framkvæmdastjórar sýningar- innar eru Katrín Káradóttir og Guðný Jóhannesdóttir og lofa þær stöllur að innan svæðisins muni öll fjölskyldan finna eitthvað við sitt hæfi. Fólk úti um allt land að vinna við spennandi verkefni Þær segja að verkefnið leggist gríðarlega vel í sig enda hafi hand- verkssýningin þegar haslað sér völl sem einn af stærri viðburðum sum- arsins. „Það er gaman að takast á við ný og ögrandi verkefni,“ segir Katrín sem sjálf rekur hönnunar- verslunina Kistu í Hofi á Akureyri. „Ég sá þetta sem frábært tækifæri til að rækta áfram þann áhuga sem ég hef á öllu íslensku handverki. Hún segir íslenska hönnuði á undanförnum árum sótt mjög í sig veðrið, gert frábæra hluti. „Það verður gaman að fá að taka þátt í að skapa sýningarglugga þar sem hönnuðir og handverksfólk af landinu öllu koma saman. Það er nefnilega þannig að fólk úti um allt land er að fást við spennandi hluti og við hin vitum ekki einu sinni af því.“ Góður stökkpallur Markmiðið með sýningu eins og Handverki segir Katrín einmitt vera að leiða þetta fólk saman á einn stað og líti hún á sýninguna sem frábæran stökkpall fyrir fólk sem er að byrja með eitthvað sniðugt eða vill halda áfram að markaðssetja þá vöru sem það hefur unnið að. „Það koma að meðaltali 15–20 þúsund gestir á sýninguna á hverju ári og hvað er betri mælikvarði á eftirspurn vörunnar en sá breiði hópur gesta sem heimsækir okkur á Hrafnagil ár hvert?“ segir Katrín. Kynna starf nútímabóndans á stórri landbúnaðarsýningu Að þessu sinni mun einnig verða stór landbúnaðarsýning á Hrafnagili en síðast var slík sýning samhliða Handverkinu árið 2012. „Við erum reynslunni ríkari eftir þá sýningu og stefnum að enn stærri og flottari sýningu í ár þar sem áherslan verð- ur á nútímabóndann sem rekur sitt fyrirtæki með öllu því nýjasta og besta sem til er í vél- og hugbúnaði,“ segir Guðný. „Bændastéttin er í örri þróun, hér í sveit er mikil endurnýjun og bændur eru duglegir að nýta sér þau tækifæri sem góð landfræðileg lega býður upp á,“ bætir hún við og vísar þar í Eyjafjarðarsveit. /MÞÞ Handverk og landbúnaður verður á glæsilegri sýningu við Hrafnagil − lofa stórri sýningu og mikilli skemmtun í byrjun ágúst Katrín Káradóttir og Guðný Jóhannesdóttir eru nýir framkvæmdastjórar Handverkshátíðarinnar á Hrafnagili. Sam- hliða handverkssýningunni verður efnt til glæsilegrar landbúnaðarsýningar þar sem fjölbreytt starf nútímabóndans verður kynnt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.