Bændablaðið - 28.01.2016, Síða 30

Bændablaðið - 28.01.2016, Síða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 2016 Ráðstefnan „Tímavélin hans Jóns“ vel sótt: Íslendingar standa á þröskuldi nýs upphafs í skógrækt Stór hluti fagfólks í skógrækt á Íslandi kom saman á Egilsstöðum dagana 19.–20. janúar til að fagna sjötugsafmæli Jóns Loftssonar sem lét af störfum um áramótin og halda ráðstefna honum til heiðurs. Jafnframt hittist starfs- fólk Skógræktar ríkisins og Landshlutaverkefna í skógrækt á sameiginlegum starfsmannafundi vegna væntanlegrar sameiningar í nýja stofnun, Skógræktina. Á starfsmannafundinum ræddi nýr skógræktarstjóri, Þröstur Eysteinsson, um þau verkefni sem fram undan væru í skógrækt á næstu árum. Breytinga væri að vænta með nýrri stofnun auk þess sem vinna yrði að því að auka skógrækt í landinu á ný. Björn Barkarson, sérfræðingur í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, sagði mikilvægt að vandað yrði til verka við sameiningarmálin og unnið markvisst enda stefnt að því að sameiningin taki gildi 1. júlí. Arnar Jónsson, ráðgjafi hjá Capacent, ræddi um sameiningarstarfið næstu vikur og mánuði og víðtækt samráð sem þar yrði viðhaft. Síðdegis sama dag var haldinn fundur fyrir fyrir fullu húsi á Hótel Héraði þar sem var kynnt möguleg stofnun afurðamiðstöðvar viðar- afurða á Austurlandi eins og fjallað er um annars staðar hér í blaðinu. Ráðstefnan „Tímavélin hans Jóns“ Daginn eftir fór fram ráðstefna til heiðurs Jóni Loftssyni sem lét af störfum um áramótin eftir 26 ár í embætti skógræktarstjóra en alls ríflega 40 ára starf hjá Skógrækt ríkisins. Heiti ráðstefnunnar, „Tímavélin hans Jóns“, vísar til þess þegar Jón fór með bændur um Hallormsstaðaskóg, sýndi þeim plöntur í uppeldi í gróðrarstöð, ungar og efnilegar trjáplöntur úti í skógi og loks 40–50 ára gamlan lerkiskóg í Guttormslundi til að sýna þeim fram á möguleika skógrækt- ar á bújörðum. Ríflega 160 manns sátu ráðstefnuna í Valaskjálf. Þetta er ein stærsta skógræktarráðstefna sem haldin hefur verið og var umtalað meðal ráðstefnugesta að fyrirlestrar hefðu verið hver öðrum betri. Skógrækt frá stríðslokum til okkar daga Fyrri hluti ráðstefnunnar var helgað- ur skógræktarstarfi í landinu síðustu 70 ár með sitkagreni í brennidepli. Helgi Sigurðsson, dýralæknir og sagnfræðingur, rakti í fyrsta fyrir- lestrinum upphafsár skógræktar og sandgræðslu á Íslandi upp úr alda- mótunum 1900. Þar kom greinilega fram hvílíkt mótlæti fyrsti skóg- ræktarstjórinn, hinn danski Agner Kofoed-Hansen, mátti þola á ferli sínum, m.a. frá hendi bændafor- ystunnar og alþingismanna þótt hann ætti sér líka trausta fylgismenn. Aðalsteinn Sigurgeirsson, for- stöðumaður Rannsóknastöðvar skógræktar, Mógilsá, fjallaði um Hákon Bjarnason sem tók við skóg- ræktarstjórastöðunni 1935 og lagði grunninn að því sem síðar varð, ekki síst með því að fara vestur um haf og finna nýjar trjátegundir til skógræktar. Ein þeirra tegunda var einmitt sitkagrenið sem nú er ein fjögurra helstu nytjategunda í skógrækt hérlendis. Engin tegund myndar meiri við og bindur meira kolefni en sitkagreni. Betri vöxtur en búist var við Fyrstu hugmyndir Íslendinga um timburskóga voru umfjöllunarefni Þorbergs Hjalta Jónssonar, skóg- fræðings á Mógilsá, sem minntist á þær hugmyndir Páls Jónssonar Vídalíns og Arngríms Þorkelssonar Vídalíns frá því um aldamótin 1700 að hefja nýræktun skóga með erlendum timburtrjám. Lítið fór þó að gerast fyrr en um 200 árum síðar og framan af 20. öld var skógrækt á Íslandi einkum stunduð til að afla eldiviðar. Við lok seinni heims- styrjaldarinnar fóru menn fyrst að huga fyrir alvöru að timburskóg- rækt. Um 1950 var gert ráð fyrir að viðarvöxtur sitkagrenis yrði 2–3 rúmmetrar á hektara á ári en grenið óx framar vonum og mældur við- arvöxtur reyndist 5,6 rúmmetrar á ári á hverjum hektara og sums staðar mun meiri. Þorbergur Hjalti telur að Íslendingar standi nú á þröskuldi nýs upphafs í skógrækt. Myndir / Pétur Halldórsson

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.